Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 275
sm
að mikill hluti þess fjár, sem sýnt er, er beinlínís komið
frá Hodne eða ættað þaðan.
Bændur viðsvegar úr Stafanguramti, og öðrum ömt-
um, gera sér ferðir til Hodne á eigin kostnað og auk þess
koma þangað árlega styrknotar víðsvegar úr öliu landinu
og jafnvel útlendingar til þess að sjá sauðféð, staðinn og
alla umgengni.
Sultarfóðrun er nú liðin undir lok í Noregi, að minsta
kosti allvíðast, landinu til ómetanlegra hagsmuna, sæmdar
og framfara. Kvikfjárræktin tekur árlega miklum fram-
förum, bændnr og búalið ber allvíðast gott skynbragð á
eftirsóknarverð einkenni og eftirsóknarvert sköpulag bú-
fjár, sem og hið gagnstæða. Sú hugarhvöt og hags-
munasemi, sem hér kemur í ijós og einkennir bændur
og búalið frá því, sem eg hefi átt að venjast, er að þakka
mentun alþýðu í þessu efni o. fl.—Það er talið að Norð-
menn hafi nú eina hina beztu alþýðuskóla í heimi, ásamt
sýningum búfjár, sem árlega eru haldnar í öllum ömt-
um landsins á öllum tegundum búfjár. Þær eru sem kunn-
ugt er ómetanlega góð hvöt fyrir bændur til þess að hafa
kynliætur og ala upp fallegan, hraustan og afnotagóðan
búpening, að svo miklu leyti, sem þetta þrent verður
sameinað, án þess að arður skerðist, eítir réttum reikn-
ingi. — Það er komið í Ijós, að fjárbúinu á Hodne hefir tekist
vel að brjóta isinn í þessu efni; en þar eru auðvitað aðrar
ástæður en alment gerist. Þar er aðaltakmarkið að kom-
ast sem allra lengst, hvað sem það lcostar.
Hallgr. Þorhergsson.