Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 276
272
Kensla fyrir eftirlitsmenn.
Nautgripafélagshugmyndin virðist falia í góðanjarð-
veg hér á landí, sem sjá má því, að seinast liðið ár
voru stofnuð 7 nautgripafélög1 (sbr. „Frey“ I. nr. 4), 5
hafa verið stofnuð í haust, sem mér er kannugt um,
og viðsvegar um land eru slík félög í undirbúningi. —
Eins og lesendum Búnaðarritsins er kunnugt, eru aðal-
atriði þessa félagsskapar, að veita fólagsmönnum auð-
veldan aðgang að fullþroskuðum nautum af góðu kyni
til afnota fyrir kýr sínar, og að stuðla að því, að þeir
haldi áreiðanlegar mjólkur- og fóðurskýrsiur.
Um fyrra atriðið skal eg ekki ræða hér, enda hefi
eg gjört það áður við fleiri tækifæri.
Síðara atriðið er bein afieiðing af hinu fyrra, því
eins og eg hefi sýnt fram á 1 innganginum til Fóður- og
mjólkurskýrslna eyðublaðanna, sem Búnaðarfélagið gaf
út, og í ritgerð minni: „Um kynbætnr búpenings" í
„Búnaðarritinu" 17. árg. 2. hefti, er ómögulegt að segja
með vissu, að eitthvert naut sé af góðu kyni eða kýr
góður búmannsgripur, nema að haldnar séu áreiðanlegar
mjölkur- og fóðurskýrslur. Nú sýnir reynsla annara
þjóða, og sú litla reynsla er vér höfum í því efni, að
eigi er hægt að fá bændur alment til að halda mjólkur-
og fóðurskýrslur, sem fyllilega má treysta, nema að haft
sé sérstakt eftirlit með að þær séu réttar, af þar til
völdum mönnum. Af þessari ástæðu er það, að eftir-
litsfélögin, sem byrjuðu á Jótlandi fyrir 9 árum síðan,
i) Orðið nautgripafélög cr hér notað í sömn merkingu og
orðin nautgriparæktarfólag og nautgriparæktunarlélag liafa áður
vcrið böfð. Það er eius og mcnn sjá gert fyrir stuttleika sakir,
þvl óþægilegt er að orð, sem mikið cru notuð séu mjög löng
cða mjög atkvæðamörg.