Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 277
273
og som eg hefi lýst nokkuð í áðurnefndri ritgjörð í „Bún-
aðarritinu", hafa breiðst svo mjög út, ekki einungis í
Danmörku heldur á öllum Norðurlöudum og Þjóðverja-
landi.
íslenzkir hændur viðurkenna einnig fyllilega nauð-
synina á þessu eítirliti, sem sjá má á því, að öll þau
nautgripafélög, sem stofnuð eru, hafa tekið upp í lög sín
ákvæði um, að taka sér eftirlitsmann (Kontrollassistent)
svo fljótt sem ástæður leyfa. Og að Búnaðarfélagi ís-
iauds er Ijós nauðsyn slíks eftirlits, sést bezt á því, að
það hefir heitið þeim nautgripafélögum, er eftirlitsmann
halda árlegum styrk, er nemur 50 aurum á hverja mjólk-
andi kú í félaginu, fram yfir þann styrk, sem veíttur
er félögum þeim, sem eigi hafa eftirlitsmenn.
Óhætt er því að fullyrða, að sú skoðun sé ráðandi
hjá oss, eins og hjá nágrannaþjóðum vorum, að nauð-
synlegt sé, að sérstakir þar til hæfir menn, hafi eftirlit
með mjólkur- og fóðurskýrslum bænda, ef á þeim á að
vera fyllilega byggjandi.
Munurinn hjá oss og nágrannaþjóðunum er að eins
sá, að þær hafa sérstök eftirlitsfélög, sem ekki standa í
neinu beinu sambandi við hin eiginlegu nautgripafélög.
Yór höfurn þetta þar á móti sameinað, af því að það
er eftir okkar ástæðum og staðhættum umsvifanrinst.
Ættu eftirlitsmenn nautgrlpafélaga ekki að gera
annað en að iíta eftir, að mjólkur- og fóðurskýrslur fó-
lagsmanna væru réttar, og reikna þær út við lok
reikningsársins, þyrfti ekki að gera aðrar kröfur til þeirra,
en að þeir væru vandaðir og reglusamir menn, er skrif-
uðu og reiknuðu sæmilega. Við nánari uthugun sjáum
vér þó, að mjög er æskilegt, að þeir hafi sem bezta
þekkingu á nautgriparækt yfir höfuð, því þá geta þeir
um leið og þeir inna af hendi störf þau, sem að fram-
an eru nefnd, orðið fólagsmönnum á ýmsan annan hátt
til mjög mikils gagns, t. d. með að leiðbeina þeim í
fóðrun og hirðing nautgripa, mjöltuu á kúm, uppeldi
18