Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 279
íiftur. Þá skal gefa nemendunum æflngu í, að nota
íeitimæli, til að ákveða með feiti í nýmjólk og
undanrennu, og loks að þekkja efnasamsetning,
notagildi og hagnýting mjólkur.
'5. Vppeldi liálfa. Aðalreglurnar um uppeldi kálfa
með tilliti til fóðrunar, hirðingar og meðferðar yfir
höfuð.
<i. SJiapnaðarlag á lcúm. Hér undir heyrir að kenna
nemendunum að þekkja muninn á skapnaðarlagi
kúa, eftir því hvort þær eru fremur af holdakyni
eða mjólkurkyni, og að gefa þeim æflngu í að meta
gæði þeirra eftir ytra útliti.
7. Doöalœlmingar. í doðalækningum á að kenna
nemendunum að þekkja doða, orsakir lians, og
helztu ráðstafanir til að verjast honum. Jafnframt
skal gefa nemendunum verklega æfingu í doðalækn-
ingum eftir því, sem ástæður leyfa.
Auk þeirra námsgreina, sem að framan eru nefnd-
ar, væri mjög æskilegt, að hægt væri að kenna eftirlits-
mannaefnunum heiztu atriðin viðvíkjandi byggingu á
fjósum og haugshúsum. Einnig væri ákjósanlegt, að
hægt væi’i að kenna þeim að gera berklatilraunir á kúm,
því leitt er að það dragist enn um tugi ára, að vér
fáum að vita nokkurn veginn hversu útbreidd berkla-
veiki í kúm er her á landi. Þörfin fyrir þekkingu í
þessu efni fer stöðugt vaxandi, eftir því sem sönnunun-
um fjölgar fyrir því, að berklagerlar nautgripanna geti
sýkt menn.
Það gefur að skilja, að æskilegt væri, að eftirlits-
mennirnir væru sem allra bezt að sér i sínum náms-
greinum, og hefðu svo mikinn andlegan þroska, að þekk-
ing þeirra gæti komið að sem fylstum notum. En hér
sem oftar verða menn að slá nokkuð af kröfunum, til
þess að geta sameinað þær við kringumstæðurnar. —
Að vísu mun mega gánga að því sem gefnu, að kostn-
aðurinn við námsskeiðið verði ekki meiri en svo, aÖ