Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 281
277
Mjólkurskólinn.
Eins og lesendum Búnaðarritsins mun vera kunn-
ugt brann mjólkurskólinn á Hvanneyri 6. október 1903,
og var hann þá fluttur til Reykjavíkur og haldið þar
áfram í fyrra vetur.
í fyrra voru haldnir margir fundir í Búnaðarfélagi
íslands til að ræða um, hvar injólkurskólinn ætti að
vera framvegis.
Loks var tekið tilboði Ólafs bónda Davíðssonar á
Hvítárvöllum um að kaupa af honnm lnís með tilheyr-
andi lóð, 30—(—30 álnir, fyrir 1700 kr. í sambandi við
flutning skólans að Hvitárvöllum var þar stofnað rjómabú.
Milli Búnaðarfélagsins og rjómabúsfélagsins voru svo
gerðir samningar, er gilda fyrst um sinn í 6 ár, þar
sem meðal annars er tekið fram, að félagar búsins séu
skyldir til að láta skólanum í té nægan rjóma til
mjólkurmeðferðarkenslunnar. — Húsíð sem Búnaðarfé-
lagið keypti þurfti mikillar aðgerðar við, og auk þess
varð að gera skúr við annan enda hússins til þess að
fá nóg rúm.
Ætlast var til, að vátryggingarupphæð mjólkurskól-
ans sem brann nægði til þess að kaupa hús og lóð og
gera við það sem þurfti, en það reyndist eigi svo. —
Vonandi er, að næsta alþingi veiti ríflega fé til skólans,
svo auðið verði að borga skuldir hans og auka við hús-
um, er þarf og síðar verður getið um.
Það virðist ef til vill í fljótu bragði hafa verið ó-
þarft, að auka við húsið, og með því hieypa kostnaðin-
um fram úr þvi, er vátryggingar upphæðinni nam. —
En hór er þess að gæta, að skólinn á Iívanneyri var
að eins ætlaður handa 6 nemendum, og að nemendurnir
höíðu fæði hjá búnaðarskólanum. Mjóikurskólaherbergin
voru lítil, með því að gert var ráð fyiir, að skólinn tæki