Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 285
281
í viku, og enn fremur notum við þær í brauð, bæði rúg-
brauð og hveitibrauð.
Helminginn af áíunum frá rjómabúunum álít eg að
eigi að nota til manneldis, en hinn helminginn þar á
móti handa kálfum, eða þá helzt handa svínum. Kálfar
2 — 3 mánaða gamlir þola þær vel, ef þeim eru gefnar
þær nýjar og ætíð jafnsúrar.
Hentugast mun að gefa svinum áfirnar að svo miklu
leyti sem þær eru ekki notaðar til .manneldis.
Svínin éta alt, sem tönn festir á, og eru mjög skjót
að taka út vöxt. Svín af góðu kyni og vel alin, eru
6 — 7 mánaða gömul nálægt 200 pd. að þyngd. Og raeð
því verði, sem nú er á fleski í Reykjavik, þá álít eg mjög
þarft, að það væri íhugað alvarlega, hvort eigi mundi
ráðlegt að flytja svín hingað til landsins.
Hentugast mundi að ala svínin á rjómabúunum og
nota áfirnar handa þeim, og með því spara heimflutning
þeirra. En með því það er annmörkum bundið, að sjá
þeim fyrir hirðingu eins og nú hagar til á búunum, þá
mundi fara bezt á því, að fá einhvern í nágrenni við
rjómabúið til þess að hirða svínin á rjómabúsfélagsins
kostnað. Útvegun grísanna hefi eg hugsað mér að gæti
verið þannig, að öll rjómabúin gerðu félag með sér, og
pöntuðu utanlands frá 2—4 grísi handa hverju búí.
Grísirnir þurfa að vera komnir hingað snemma í maí.
Þegar svo búin taka til starfa, eru þeir orðnir það
stálpaðir, að þeir geta drukkið mikið af áfum, og breytt
þeim í flesk. Verðið á 4—5 vikna gömium grísum, er
i Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku 10—15 kr. En
annars fer verðið mezt eftir framboði og stærð grísanna.
— Hingað kominn mundi hver grís kosta 15—20 kr.
Þetta fyrirkomulag, að kaupa grísana ætti þó eigi að
vara lengur en 1—2 ár. Hitt mundi verða ódýrara, er
fram líða stundir, að rjómabúin skifta sér í 2 félög;
annað félagið tæki yfir Árnes, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslu, með svínabúi í Ölfusinu, en hitt félagið