Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 286
282
næði yfir Kjósarsýslu, Borgarfjörð og Dalasýslu, með
samskonar búi á Hvitárvöllum, eða á öðru rjómabúi, er
befði Jangan st.arfstíma. Þessi félög fengu sér svo t. (L
1 gölt og 2— 3 gyltur, hvort þeirrn, og öllum kostnafi
við eldi svínanna og hirðingu ætti svo að jafna á rjóma-
búin í hvoru félaginu fyrir sig, eða þá, að þau greiddu
árlegt tíllag til svínabúanna. — Eftir eitt ár, mundu
svo þessi bú geta látið rjómabúin fá það af grísum,
sem þau þurfa, og ef til vill auk þess hjálpað einstök-
uin mönnum um grísi fyrir Jægra verð en hægt er að
fá þá utanlands frá. Hvað svínaeldið yfir höfuð kostar,.
skal eg eigi að þessu sinni skýra nánar, með því að
tilgangurinn með þessari grein er einungis sá að vekja
áhuga rjómabúanna á þessu máli, og það nú strax í vetur.
Komi það í ijós, að menn hafi áhuga á málinu,
mun eg seinna gera betri grein fyrir, hvernig bezt er
að fóðra og hirða svín, hvort heldur er til fitunar eða
undaneldis. Æskilegt væri, að þessu yrði hreift i vetur
á rjómabúafundinum, sem í ráði er að haldinn verði
fyrir Árnes- og Rangárvallasýslur.
Áfirnar eru ofgóðar til þess, að þeim sje helt niður.
Eg bið menn athuga það, að framtíð rjómabúanna hér
á landi er komin undir því, hvecnig þau bera sig í fjár-
hagslegu tilliti. Og þetta, sem hér hefir verið talað um,.
mundi styðja að þrifum og velgengni þeirra.
Hvitárvöllum í desemb. 1904.
H, Grönféldt.
SturJa kaupmaður Jónsson í Reykjavik liefir Laft í Luga að
koma upp svinarœkt í Brautarholt á Kjalarnosi, og áttu rjóma-
búin að geta koypt grisi þaðan af góðu kyni. Búnaðarfólagið
vildi og styðja að þessu, en taldi nauðsynlegt að þar vœri þá
um leið einLver, sem árciðanlega kynni að fara með grísi, því
að vandfarið er með þær skepnur nýfæddar. Af atvikum liefir
cnn eigi orðið af þvi að sú kunnátta fengist.
Aths. útg,