Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 04.02.1932, Blaðsíða 5
4. febrúar 1932.
VIKUoTGÁFAN
5
Nýtt „Krossanesshneyksli“.
---- /
Svikin síldarmál við verksraSðp ,IveIMifs‘ á fðesteyri*
18. jan.
Stjórn Sjómannafélags Reykja-
Yikur hefir sent dómsmálaráSu-
neytlnu svo hljóðandi kæru:
Reykjavík, 2. jan. 1932.
Þar eð svo að heita sömu
niennimir hafa verið ó togurum
Kveldúlfsfélagsins ár eftir ár, er
ekki að furða pó þeir séu farniir
að þekkja skipin svo vel, að þeitr
geti sagt með töluverðri ná-
kvæmni hvað mörg mál af síld
þau séu með innanborðs, þegar
þau eru á leið til lands. Þessiu
hefir heldur. ekki skeikað meiru
en sem munaði 10 málum, til
annarar hvorrar hliðarinnar, yfir
eða undir það, sem áætlað var,
en langoftast hefir munað minna
en þessu. Það er siður að skip-
stjórinn sendi útgerðarfélaginu
loftskeyti, þegar lagt hefir verið
af stað með aflann táil lands, og
mun útkoman, þegar mælt var
npp úr skipinu á síldarbræösilu-
stöð Kveldúlfs á Hesteyri, oftast
hafa orðið sú, að aflinn hafi verið
eitthvað litilsháttar meiri en á-
ætlað hafði verið.
Nú bar það við í sumar að
togarinn „Snorri goði“ var á leið
til lands með afla sinn, en var
með loftskeyti snúið tiil síldar-
bræðslustöðvarinnar á Sólbakka,
að aflinn, sem áætlaður hafði
verið 1900 mál, reyndist á Sól-
bakka að vera 2200 mál.
Togarinn „Þórólfur“, sem var
með afla, er áætlaður hafði verið
2000 mál, var látinn fara til Sól-
bakka, og reyndist veiðin þar
2593 mál.
Togarinn „Arinbjörn hersir“
var sendur til Sólbakka, og gerðu
skipverjar ráð fyrir að í honum
væru 1400 mál af síld, en mæld-
ist á Sólbakka 1735 mál. I næstu
ferð á eftir þóttust skipverjar
\ássir um að þeir væru með 200
til 250 málum meiTa en í ferð-
inni þar á undan, en nú var fariðí
til Hesteyrar eins og venja vár
til, og mældist veiðin þar ekki
nema 1734 mál.
Togarinn „Egill Skallagríms-
son“ fór til Sólbakka, og gerðu
skipverjar ráð fyrir að í honum
væru 1600 mál, eins og síldin
mældist venjulega á Hesteyri, er
hún reyndist á Sólbakka 1929
mál.
Þess má geta, að á einum þess-
um togara var eiít síldarmálið af
Hesteyri, og var það notað þar
tii þess að taka salt upp með.
Var vigtað innihald úr fjórum
síldarmálum mældum með þessu
máli, og reyndist 27 kg. þyngra
hvert mál en það átti að vera.
Af því, sem að framan er sagt,
virðist bersýnilegt, að mál þau,
sem síldin er mæld með á síld-
arbræðslustöð Kveldúlfs á Hest-
eyri, séu mjög svikin, og að þessi
sviknu mál hafi verið notuð öll
árin, sem síldarbræðslustöðin
hefir verið notúð.
Þess má geta, að jafnan var á
Hesteyri heimtað, að kúfur væri
á málunum, eftir því sem hægt
var að hafa, og varð tvisvar í
sumar þjark út af því að skip-
verjar hefðu málin ekki eins full
og yfirmenn Kveldúlfs á Hesteyri
heimtuðu. Var skipverjum sagt
að þeir gætu hætt veiðum, ef
þeir ekki mældu með kúf.
Vegna þess, að skipverjar á
áðurnefndum skipum eru ráðnir
upp á aflaverðlaun, og hér vir'ð-
ist því af þeim dregið af kaup-
gjaldi þeirra, viljum vér fara þess
á leit við dómsmálaráðuneytið,
að það láti rannsaka þetta mál,
en þó fyrst athuga hin umgetnu
síldarmál á Hesteyri.
Virðingarfylst.
1 stjórn Sjómannafél. Reykjavíkur.
Sigurjón Á. Ólafsson.
Ólafur Friarilisson. Sig. Ólafsson.
Björn J. Blöndal. Jón Bach.
Rannsóknardómari í máiinu
hefir verið skipaður ólafur Þor-
grímsson lögfræðingur, og segir
lausleg fregn að vestan, að hann
sé búinn að rannsaka síldarmálin
og að þau hafi reynst fölsuð.
19. jan.
Starf rannsóknardómar-
ans vestra.
Rannsóknardómarinn, Ólafur
Þorgrimsson lögfræðingur, kom
með „Þór“ til Hesteyrar á föstu-
daginn var. Hið fyrsta, sem hann
gerði, er þangað kom, var, að
stöðva allar skeytasendingar frá
Hesteyri, og lét hann loftskeyta-
manninn á „Þór“ hafa eftirlit með
að þvi yrði hlýtt. —
Eftir þetta fór rannsóknardóm-
arinn að síldarbræðslustöð Kveld-
úlfs og krafðist þess af fulltrúa
Kveldúlfs þar, að sér yrðu afhent
mælikerin. Neitaði Kveldúlfs-
fulltrúinn þvi tafarlaust. Gerðist
hann hinn þverasti og kvaðst alls
ekki vita hvar kerin væru niður
komin.
Setti rannsóknardómarinn þá
rétt og kvað upp þrjá úrskurði.
Opnaði hann síðan húsin með
valdi og leitaði að kerunum. Fann
hann þau loks eftir 5 klukku-
stunda leit og mældi mörg af
þeim tafarlaust. Reyndust þau, er
hann mældi, vera svikin.
Kom nú í Ijós, að nokkuÖ af
kerunum hafði verið farið með
til Reykjavíkur, og símaði rann-
sóknardómarinn því til lögreglu-
stjórans hér og bað hann um að
ná í kerin og taka þau til gæzlu,
þar til hann kæmi hingað aftur.
Rannsóknardómarinn fór nú til
Isafjarðar og tók með sér 14
ker, er hann hafði ekki áður mælt.
Mældi hann þau þar, og reyndust
þau einnig vera fölsuð.
Vlðtal við logreglastjóra.
I morgun átti Alþýðublaðið við-
ta! við Hermann Jónasson lög-
reglustjóra. Kvað hann lögregl-
una engin mæliker hafa fundið
|hér í Reykjavík,,enda tjáði beyk-
ir Hesteyrar-stöðvarinnar henni
að sér vitanlega hefðu engin
mæliker verið flutt hingað að
vestan.
Vðrn Kveldúlls.
Rikard Thors, sem er í mestu
áliti af þeim Thors-bræðrum, er
í dag látinn undirskrifa greinar-
gerð um síldarmálin, er birtist
í Morgunblaðinu. En þó greinar-
gerð þessi sé 3 dálka löng, er
ekkert á henni að græða. Reyn-
ir herra Thors að skríða á bak
við Einar beyki Þorsteinsson á
Lindargötu, en sér þó strax að
svo mikill maður og hann er
getur ekki dulist á bak við beyk-
inn. Hann reynir því með út-
reikningi að sýna fram á, að
gróðinn af sviknu málunum sé
miMu minni en það, að svo stórir
herrar sem þeir Kveldúlfseigend-
ur geti lagt sig niður við að
svíkja svo lítið. En nú er bæði
það, að útreikningur hans um
að þeir hafi ekki svikið nema
6°/o, er vitlaus, því sum málin á
Hesteyri reyndust 165 lítra (en
áttu að vera 150) og aö eftir því
sem síldin mældist ver á Hest-
eyri en Sólbakka munar 15—22»/o.
Það er kunnugt, að félagið, sem
á verksmiðjuna í Krossanesi, er
stórríkt, og forstjórinn þar, Hol-
dö, var stórþingsmaður.
Síldarmálin á Hesteyri voru fal-
in og fundust ekki fyrr en eftir
langa leit.
22. jan.
Fölsaðuða málin voro falin
Eins og skýrt hefir verið frá
áður hér í blaðinu, neitaði um-
boðsmaður Kveldúlfs á Hesteyri,
Eiríkur Benjamínsson, að segja til
hvar síldarmálin væru. Rann-
sóknardómarinn þurfti þvi að
hefja leit að þeim, og var nær
svo farið, að þau fyndust ekki.
1 einu dimmu afhýsi var rimla-
loft, og sagði umsjónarmaður
Kveldúlfs, að þar væri ekkert
geymt uppi, enda væri loftið svo
veikt, að það myndi ekki þola
að maður færi þar upp. Það varð
f>ó úr, er leitað hafði verið grand-
gæfilega um alla verksmiðjuna,
að farið var upp á þetta loft, og
voru málin þá þar uppi. Hafði
þeim auðsjáanlega verið komið
fyrir þar, sem minst bar á þeim.
Alls voru málin fjörutíu, og
voru tuttugu og átta þeirra göm-
ul, eri tólf þeirra voru ný. Voru
þau nýju sízt réttari en hin
gömlu.
Við mælingu kom í ljós, að
málin í stað þess að taka 150 lítra
sléttfull tóku frá 153 lítrum upp
1 165 lítra.
Ekkert þeirra er löggilt, ein®
og líka má sjá af grein Im. Rík-
arðs Thors í Morgunblaöinu.
Bolongavík.
Eins og sagt hefir verið frá í
blaðinu, var gerður samningur i
Bolungavik og gildir hann frá
19. jan. til 1. april. Kaupgjald-
ið er samkvæmt þessum samning-
um:
Almenn vinna.
Dagvinna 6—6 karlm). kr. 0,80
kvenfólk — 0,50
Eftirvinna 6—10 karlm. — 1,00
kvenf. — 0,70
Næturv. eftir 10 karlm. — 1,30
kvenf. — 0,90
Helgidagavinna karlm. — 1,50
kvenf. — 1,10
Skipavinna.
Karlmenn kr. 1,20
Kvenfólk — 0,90
Kola- og salt-uinna.
Karlmenn kr. 1,60
Fiskpvottur.
Kr. 1,20 pr. 160 kg. stórfiskjar.
— 1,10 — — — labrador.
Verkalýðsmeðlimir gangi fyrir
vinnu.
Félagið viðurkendur aðili fram-
vegis.
Til 1. apríl er aðalvinnan frá
kl. 4—10 e. h. að frádregnum
1 matartíma. Fyrir það fékst áð-
ur kr. 3,25, nú 4,60.
Eindœma snarrœoi. Það bar ný-
lega við í Noregi, er lestin frá
Rjúkan till Mæl var að komast
að kirkjunni í Dal, að lítdl stúlka
var á brautarteinunum og gat
ekkii komist af þeim vegna hálku.
Var fyrirsjáanlegt að Mtla stúlk-
an mynidi verða undir lestinni,
en á síðasta augnabMki stökk eám-
reiðarstjórinn af lestinni og tókst
honum af miklu snarræði að
hrinda barninu út af teinunum, en
sjálfur komst hann ekki undan;
Lestin reif hann með sér og lim-
lesti hann töluvert. Var þó ekki
talið, er síðast fréttíist, að hann
mundi deyja.
Svikaprestur nokkur var nýlega
tekinn fastur í borginni Kuncitz í
Tékkó-Slóvakíu. Hafði hann gift
185 hjón, og reyndust þau öll ó-
löglega gift. Urðu þau því að
gifta sig aftur, sem ekki notuðu
tækifærið og skildu.
Hjónaskilnaðir aukgsl. I öllum
Evrópulöndunum hefir hjónasikiln-
uðum farið fjölgandi síöan ófriön-
um lauk. Aukningin er frá 8,5
upp i 89,6 af þúsundi í hinum
ýmsu löndum.