Alþýðumaðurinn - 01.05.1943, Side 4
4
^ALPÝÐCV AÐUJWNíin
Nýtt klofningsfélag
Getur hið nýja klofningsfélag, sem nefnir
sig „Verkamannafélag Akureyrarkaupstað-
ar“ knúið atvinnurekendur á Akureyri til
samninga við sig, eða náð kaupgjaldsmál-
um verkamanna og verkakvenna úr hönd-
um Verklýðsfél. Akureyrar á annan hátt?
Eins og kunnugt er hefir Verk-
lýðsfélag Akureyrar verið hið raun-
hæfa félag veikamanna og verka
kvenna á Akureyri frá því það var
stofnað f Febrúarmánuði árið 1933,
eða um rúmlega 10 ára skeið.
Strax eftir að það var stofnað
gerði það samning við Vmnuveit-
endafélag Akureyrar um kaup og
kjör verkamanna og verkakvenna á
Akureyri, og hefir sfðan ýmist
samið við þetta félag atvinnurek-
enda hér um þessi mál verkaíólks-
ins á Akureyri, eða sett kauptaxta,
sem atvinnurekendur hafa fylgt í
kaupgreiðslum til verkafólks. Svo
gott samkomulag hefir verið milli
atvinnurekenda hér og Verklýðsfé-
lags Akureyrar um þessi hags-
munamál beggja aðila,. að aldrei
hefir orðið eins dags vinnustöðv-
un f þessi 10 ár, sem sambúð
þessi hefir varað, auk heldur meiri
truflanir á vinnu í bænum. Pað
kaup og kjör, sem Verklýðsfélag
Akureyrar hefir útvegað verkafólki
f bænurn, bæði innan félags og
utan, — því það hefir jafnt gælt
hagsmuna þess verkafólks, sem ekki
var félagsbundið, eins og þess er
tók á sig félagsskyldur í Verklýðs-
félaginu, — hefir verið e tt hið
besta kaup er verkafólk hefir notið
í landinu, svo það góða samlyndi,
sem verið hefir milli atvinnurek-
enda og þess, stafar ekki af þvf
að Verklýðsfélagið hafi verið efrir-
látssamara f kröfum sfnum fyrir
verkafóikið hér en viðgengist hefir
á öðrum stöðum landsins, heldur
mun það byggjast á góðum skiln-
ingi beggja aðila á hagsmunum
þeirra. Verklýðsfélag Akureyrar
hefir tryggt vinnufrið í bænum og
litið á atvinnurekendur, sem vin-
veitta aðila, sem veiðskulduðu á
allan hátt siðaðra rnanna framkomu,
og félaginu hefir fyllilega oiðið að
þessari skoðun sinni Því er á
þetta bent hér að til er í landinu
viss tegund manna, er telur sig
málsvara verkafólks, sem virðist á-
lita það vænlegast í skiftum þess
við atvinnurekendur að beila þá
sem verstum orðum og athöfnum.
Nú hafa þau tíðir.di gerst hér í
bæ að nýt* klofningsfélag hefir
verið stofnað, sem nefnt er í upp-
hafi þessarar greinar, og sem sam-
kvæmt nafni þess ætti að hafa
kaupgjaldsmál veikamanna á Akur-
eyri í sfnum höndum, en aðstaða
þess er svipuð kálfs, sem borinn
er f flórinn, þar sem allir básar
eru fullskipaðir, og virðist svo, sem
þeir >sameiningar< Jónarnir, sem
stofnuðu þetta klofningsfé'ag, hafi
ekki áttað sig á þvf, að jafnvel
þeim- afkvæmum, sem skyndilega
fæðast, þarf að ætla lífsskilyrði ef
vel á að fara;
Hér á Akureyri er félag í hverju*
rúmi þeirra atvinnugreina, sem
stundaðar eru í bænum. Tilveru-
möguleikar þessa félags verða því
að byggjast á því að því takist að
ryðja úr vegi frá sér því félagi,
sem nú og að undanförnu hefir
haft kaupgjaldsmál verkamanna hér
f sínum höndum, en það er eins
og áður er sagt, Verklýðsfélag Ak-
ureyrar, og yrði þá þetta nýja fé-
lag að ná þeim samningum í sín-
ar hendur, sem Verklýðsfélagið>
hefir nú við Vinnuveitendafélag
Akureyrar.
Hvar sem um þessi nýju félags-
mál er talað í bænum, en það er
víða, og um þessar mundir, kveður
við sama skoðun, að atvinnurek
endur muni ekki semja við þetta
nýja fé'ag. Þeir, sem um þessf
mál tala, hafa það á tilfinningunni
að sambúðin milli atvinnurekenda
hér og Verklýðsfélags Akureyrar
sé svipuð og á milli húsbænda og
hjúa, sem um langt skeið hafa
unnið saman að velferð heimilis
síns, og að atvinnurekendur hér
muni ekki vísa góðum samverka-
manni úr vistinni þó einhver ó-
þektur kaupahéðinn bjóði fram
þjónustu sína. Til eru þau daemi
úr sögu þjóðarinnar að slíkir menn
hafa borið vopn undir klæðum
sínum, sem heirnilinu hefir ekkí
orðið til gæfu eða góðs. Hinsveg-
ar er því haldið fram af ýmsum
að atvinnurekendur muni verða
knúðir til þess með ofbeldi a&
semja við hið nýja félag, ef þeir
geri það ekki af fúsum vilja, og
sjálfsagt mun ýmsa í nefndu félagf
ekki skorta vilja til þess að ota
rýtingnum sér til framdráttar, og er
þá ekki úr vegi að athuga þann
möguleika.
Svipuð saga því sem hér hefir
gerst í verklýðsmálunum nú, gerð-
ist í Hafnarfirði fyrir nokkrum ár-
um síðan. Verkamannafélaginu Hlff
var vikið úr Alþýðusambandi ís-
lands, eins og Verklýðsfélagi Ak-
ureyrar er nú vikið úr Alþýðusam-
bandinu. Að sönnu er sá munur á
aðstöðu Hlífar og Verklýðsfélags
Akureyrar, að Hlif hafði fyllilega
unnið til þess að henni yrði viki®
úr Afþýðusambandinu, með þvf að
hún hafði rekið úr félaginu 12
brautryðjendur verklýðshreyfingar-
innar í Hafnarfirði og var þvf sjálf-
sagt að líöa ekki félagið innan alls-
herjarsamtaka verkalýðsins í land-
inu, eftir að það hafði framið slfkt
óhæfuvérk. En Verklýðsfélag Ak-