Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Page 4

Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Page 4
4 J Ó L A B L A Ð ALÞÝÐUMANNSINS 19 5 0 Kvenfélagið í syeitinm ætlaði að lialda jólatrés- Skemmtun miíli jóla og nýjárs fyrir börnin, og það var í fyrsta skipti, sem slíkt stóð til, síðan ég komst svo á legg, að ferðafær gæti talizt á samkomustað sveitar- biia. Tilhlökkunin var því geysileg. Ég gerði mér alls- konar hugmyndir um jólatré, flestar firnalangt frá því sem raulnveruleikinn síðar sýndi, en ég hafði þá aldr- ei séð sk'kt fyrirbæri fyrr, hvort sem þið trúið því eða ekki um níu ára b|arn. Það var ekki venja. heima í litlu, gömlu borðstofunni með sex rúðna stafnglugganum að hafa jólatré, og þóttu ágæt jól samt. Síðustu dagana fyrir jólin gerði asahláku. Áin, sem rennur eftir endilangri sveitínni og getur stundum orð- ið óþægilegur fanartálmi, hélzt ekki lengur við undir vetrarísnum, heldur braut sig upp um vakir og rann í stríðum álum ofan á íshellunni. Þeir tóku manni þetta í kálfa og kné, og voru enginn ósigrandi'farartáimi í raiin og sanneika, en skuggalegur slaint í augum níu ára drengs, sem biður þess í ofvæni að komast á fyrstu jólatrésskemmtunina sína. Ég var með stórfelldar brúunaráætlanir í kollinum þessa dagfana. Ein var sú, að velta rekaviðartrénu, sem Iá í hlaðvarpanum heinra, niður að ánni og leggja. það yfir aðalálinn. Höfuðgallinn á þeirri áætlun var sanrt sá, að ég gat lalls ekki velt trénu eina veltu, hvað þá fleiri, og því síður lagt það yfir nokkurn ál. Önnur hug- myndin var sú, að leggja stiklur þar, sem áin félli grynnst ofan á ísnum. En einínig það reyndist mér of- vaxið, því að það eru engin stórbjörg, sem níu ára patti getur þrifið upp og snariað út í djúpa ála. Hann ræð- ur aðeins við gremjulega litla steina, sem árstraunr urinn skolar jafnharðan með sér. En drottílnn allsherjar Ieysii allan vanda með sinni íalkunnu ráðsnilld, þegar til kom. Jóladagana lét hann vera. stillt og bjart veður, svo að árskollinn skreið í skjól undir ísana, hjarn gerði yfir allt, þar sem ekki var þá autt: Ö!1 sveitin var eins og gólf að ganga um. Og þriðja í jólum, rétt fyrir rökkurbyrjun, mátti víða Ut'a marga einkennilega hópa á ferð í sveiti/nni. Tvær, þrjár eða fjórar litlar verur í fylgd með einum eða tveimur fullorðnum. Þetta voru eins og reikistjörn- ur kringum fastastjörnur, eða kannske er réttara að segja, að þær hafi verið eins og hlalastjörnur, því að öðru hvoru tóku þessar litlu verur á dansandi spretti eftir svelium og hjarnsköflum. Tilhlökkunin var svo takmarkalaus, að fæturnir urðu öviöráðaíilegir. Við fórum þrjú yngstu systkinin að heiman og pbbbi fylgdi okkur. Eldri systkinin ætluðu að koma seinna, því að um kvöldið og nóttina ætlaði fullorðna fólkið að skemmta sér. Leiðin var ekki löng, en við gerðum okkur hana fimm sinnum lengri með eifnlægum króka- hlaupuin. Rabbi gekk hægt og var hugsi eins og venju- lega, þegar hanh var á ferð. Hann virtist ekki vita af okkur nema endrum og eins, en þá brosti hann góð- látlega að ákafanum í okkur. Og svo vorum við komin á áfangastaðilnn. Það iðaði allt af krökkum, litlum krökkum og stórum krökkum, stilltum krökkum og gangmiklum krökkum, en innan um krakkaskarann börðust kvenfélagskonurnar hraust- legri baráttu við að haldja reglu á hlutunum, taka yfir- föt til hand'argagns og laga ýmislegt, sem aflaga hafði gengið. En inni í kjallara samkomuhússi/ns sá öðru hverju, þegþr um var gengið, í hvítdúkuð borð, sem svignuðu undan dýrindis krásum, svo að vatn kom í munn okkar barnanna, og úr eldhúsinu lagði unaðs- sætain súkkulaðisilminn fyrir vit okkar. Það gerðist brátt harla þröngt í göngum og lofti samkomuhússins, því að enn hafði salurinn, þar sein hið Ieyndardómsfulla jólatré stóð, ekki verið opnaður. Allstaðar voru börn og unglingar, sem gáfu hvert öðru forvitnisleg hornaugu, hálffeimin og þvinguð í fyrstu, an brátt uppburðarmeiri, unz flest voru farin að taia hvert upp í annað, hlæjia og kankast á. Þarna var hann Jói. sein lagði mig á hælkróknum -í sumar, þarna hann Halli, sem ég stóð ekki snúning í tuski, þótt hann væri ári ytngri en ég, þarna strákurinn, sem lézt ætla að

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.