Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Síða 5

Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Síða 5
J Ó L A B L A Ð ALÞÝÐVMANNSINS 19 5 0 5 drekkja mér i árhylnum í sumar, svo að ég li'afði feng- ið suðu fyrir eyrun af skelfingu, og þarna var líka stelpufjandinn vestan yfir heiði, sú sem aldrei sat sig úr færi að angra mig og kvel ja.. Hér mundi áreiðanlega inargt geta borið við, áður en kvöldið vséri úti, bæði skemmtilegt og miður skemmtilegt. Loksins var sjalurinn opnaður og við krakkarnir ruddumst inn. Þarna blasti við á miðju gólfi stærðar birkitré á stórum krossfæti. Jólakertin voru svo mörg, að ég sá mér tilgangslaust að telja þau. Greinar trés- ins svignuðu undan marglitum pokum, körfum, hyrn- um og hornum, og hér og þar héngu eldrauð epli á greinunum. En það gaf^st enginn tirni til að virða þess- ar dásemdir fyrir sér. Kvenfélagskonurnar röouðu okkur börnunum í þrefaldain hring kringum jólatréð, sálmasöngurinn hófst og við gengum hring eftir hring kringum tréð stóra. En'ósköp og skelfing geta sálnv arnir verið langdregnir og leiðinlegir, þegar sælgætis- pokar b:ða eftir litlum höndum til að halda á sér og litlum munnurn til að borða úr sér. Að lokuin fór þó svo, að söngurihn hljóðnaði og út- deiling sakarmentisins hófst. Upp úr körfum og pok- um komu súkkulaðismolar, gráfíkjur og kandís, ásamt smákökum, sein bráðnuðu eins og smjör uppi í manni. Þetta var nú borðandi. Og svo viar farið í leiki, síðan drukkið súkkulaði niður í kjallaranum, síðan aftur farið í leiki. Steminn- ingin var orðin stríðþanifn. Ég hafði glímt við Jóa, og það hafði orðið bræðrabilta. Ég hafði flogizt á við Halla og hann hafði slitið úr mér tölu, en ég hafði líka getað rifið ögn út úr öðrum buxnavasanum hans. Ég hafði getað laumazt til og nælt miða með orðinu EITRAÐUR aftan á strákinn, sem þóttist liafa ætlað að drekkja mér sumrinu fyrir. Það hafði verið hlegið að honum og haínn hafði farið hjá sér, en ekki haft grun um, hver ódæðið hafði framið, enda þótt á miðann hefði verið skrifað með prentletri, og á frámunalegan viðvaningslegan hátt. En viðvaningarnir voru svo margir þarna inni. Og síðast en ekki sízt hafði ég sagt stelpufjiahdanum vestan yfir heiði að halda kjafti, þeg- ar hún hafði tekið til að stríða, mér, og mér hafði verið ósegjanleg hugsvölun að því að taka svo hreystimann- lega til orða. Og sfðast átti svo að dansla. Ég var ekki alveg viss um, hvort það væri tilhlýðilegt fyrir hraustan strák að dansa við stelpur. En mig langaði ósköp.mikið til að dansa. Þess vegna. gladcli þ|að mig stóriega, þegar ungu stúlkurnar, sem komnar voru til að vera á hinni raú'nverulegu skennntun á eftir barnaskemmtuninni, fóru að dekstra mig til að clansa við’sig,-Auðvit'að var þa.ð fyrir neðan virðingu inína að Iáta undán strax, en því miður héldu þær, að mér viæri aivara meo þao að vilja ekki dansa, og hættu að ganga eftir mér. Það þótti I mér svo slæmt, að ég fór fram á gang og skældi. Þar gekk pabbi urri gólf og beið eftir því 'að fara heim með okkur systkinin. En hann lét mig skæla í íriði. Mér faniist nú raunar, að hann gæti spurt mig, hvað að mér gengi, en hann gerði það ekki. Ein kvenfélagskon- an kom þá þarna að og sagðist ekki trúa því, að ég vildi ekki koma inn í sal og dansa við sig, frænku sína, en mér fanhst ég verða að skæla ofurlítið lengur, af því að ég var einu sinni byrjaður, enda þótt mig dauð- langaði að láta að orðum hennar. Og svo hélt ég áfram að skæla. Ég man ekki lengur hvenœr .um kvöldið pabbi fór heim með okkur yngstu systkinin, en ég var orðin úr- vihda af þreytu. Engan dansinn hafði ég dansað og ineð sjálfum mér hugsaði ég, að ég skyldi hundur heita ef ég færi að ári á eins auðvirðilega samkomu og jóla- trésskemmtun, þar sem krakkar og fullorðnir snérust í hring og syngju jólasálma og snérust hvert um ann- að og kölluðu dans! Hvílík endemis vitleysa Þá væri betra að sitja heima og lesa íslendingasögur eða þreyta skíðagöngu og skautahlaup. Þannig hugsaði ég þetta kvöld. En að ári var aftur haldiin jólatrésskemmtun fyrir börn í sveitinni heima. Og aftur tók mig að hlakka óstjórnlega til, og enn dansaði ég af fögnuði eftir hjarnbreiðunum, þegar loks var lagt af stað á þessa miklu hátíð ársins. Aðeins eilt hafði ég lært af reynslu minni frá árinu á undan, það, að láta ekki ganga of lengi eftir mér. Á þess’ari jólatrésskemmtun dainsaði ég marga dansa. G. I. S. S M / ö R V A T N S H E I Ð I Enn sá heiðar andskoti ekkert strá né kvikindi, en hundrað milljón helyíti af hnullungunum og stórgrýti. Árni frá Múla. B E I N AK E R L / N G A RV / S A Fyrr var m'argur fjörugur, fáa þelckti ég sTka. Ert þú, séra Sigurður, sonur Adams líka? FundiS í Beinvörðu á Smjörvatfrsheiöi.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.