Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Qupperneq 8

Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Qupperneq 8
8 JÓLABLAÐ ALÞÝÐUMANNSINS 1950 REYKJAVÍK, 1. desember 1950, kl. 8 árdegis. Grá, sofandi borg undir óveðurshimni. í austri bera élja- rifrildi við fyrstu dagsbrún. Við söfnumst saman, nokkrir óveðursfuglar, niður við Ferðaskrifstofu ríkisins. Ferðinni er lieitið norð- ur í land með áætlunarbifreiðum Norðurleiðar. Þær eru tvær ferðbúnar. Flestir eru komnir á undan mér og setztir upp í aðra bifreiðina. Hin á ekki að fara lengra en í Foraa- hvamm. Skollinn sjálfur, hugsa ég í hljóði, nú verð ég að Esjuhlíðar. Þar er svo rokhvasst, að bílJinn virðist svigna til undan verstu byljunum. Bíllinn, sem aðeins á að fara í Fomahvamm, liefir dregizt aftur úr, og bílstjórinn okkar nemur staðar. Hann er hálfsmeykur um, að hinn bíllinn, sem er hálftómur, kunni að reyn- ast léttur og laus á veginum. En innan skannns hefir hann náð okkur, svo að við liöldum af stað. Ferðin gengur seint um Kjós og Hvalfjörð, en sækist þó. Við reynum að drepa tímann með spjalli og spaugi, en enginn er í essinu sínu, svo að það verða langar þagn- ir á milli. Helzt er það Fritz Magnússon frá Skaga- Oveðursfuélar hírast aftur í skut. Mér sýnist fullsetið í öllum sætum nema því aftasta. Þetta eykur á óánægju mína við sjálfan mig og tilveruna. Undir niðri er ég semsé sann- færður um, að ég sé að flana út í bölvaða vitleysu, en á hinn bóginn liefi ég ætlað heim í dag, og í mér situr rótgróin óbeit á því, að liætta við gerða áætlun. Ég stumra því upp í bifreiðina og skima til beggja handa. Þarna þekki ég Harald Gunnlaugsson frá Siglu- firði. Aldrei fór þó svo, að ég þekkti ekki einhvern. Og þarna Gunnar Steindórsson frá Ólafsfirði. Mér finnst ég þegar meðal -kunnugra. Aftur í miðjum l)íl situr kona ein í hekk, og það hvarflar að mér að sitj- ast hjá henni. Ég hefi mestu óbeit á aftasta bekknum. Þar hefir mér oftar en einu sinni legið við roti í þess- um stóm bílum, þegar þeir hafa tekið til að ausa á ójöfnum veganna. En ef konan ætti nú mann í fórum sínum, sem ekki væri enn setztur inn, en kæmi brátt og ræki mig eins og rakka burtu? Ekki vildi ég hætta á slíkt. Ég held því aftar í bílinn og sé loks autt sæti í næstaftasta bekk og hlamma mér þar niður. „Nei, góðan daginn,“ segir um leið glaðleg rödd við hlið- ina á mér. Þarna er þá fyrir Valdemar Pétursson frá Sauðárkrók. Ég er dauðfeginn að hafa einhvern, sem ég kannast við, að sessunaut. Nú hemlar bílstjórinn okkar frá og leggur af stað. Norðanstormurinn beljar á rúðum og þekju. Flestir eru þegjandalegir inni í bílnum. Reykjavík liverfur að baki, Korpúlfsstaðir þjóta framhjá, KolJafjörður er tekinn í löngum skrefum, og brátt er komið undir strönd, sem ber uppi gamansemina, en ekki kunna all- ir að meta hana af vörum hans. í aftursætinu situr unglingspiltur, hár, og unglings- stúlka, hnellin. Það eru þau Gvendur og Stína, að því er síðar vitnast. Þau sitja sitt í hvoru horni og þekkj- ast ekki, svo að séð verði. Fritz finnst þau alltof alvar- leg og hafa alltof langt á milli sín. Hann lætur þau heyra þessa skoðun sína skilmerkilega, en Gvendur brosir aðeins daufingjalega og Stína fussar. Og ekki færa þau sig til í seti. í Fornahvammi er loks áð og borðað. Skuggsýnt er þar innan dyra, því að snjóklístur er á öllum glugg- um frá deginum fyrir. Þá hafði þar verið afspyrnu- stórhríð. Við borðum þögul, en öllum er okkur hið sama í sinni: Hvernig er Holtavörðuheiði og livernig eru vegirnir norðan heiðar? Símasambandslaust er norður yfir, svo að ekki er þaðan fréttir að fá. Strax að lokinni máltíð vill Hörður, bílstjórinn okk- ar, lialda af stað. Hann er ötull ferðaþjarkur og segir ekki eftir neinu að bíða. Við skipum okkur í bílsætin, og nú verður hvert sæti setið, því að fjórir farþegar bætast úr bílnum, sem eftir verður. Nii sitja þau Gvendur og Stína ekki sitt í livoru horni, heldur sam- an. Og var nolíkuð við það að athuga? Fritz segir líka, að svona eigi blessuð bömin að hafa það. Á Fornahvammshlaði gerir slíkan kófbyl, að bíl- stjórinn hikar við að leggja af stað. Sumir ympra jafn- vel á því, að líklega verði ekki lengra haldið í dag. Samt fer það ekki svo. Af stað er lagt, en alla götu

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.