Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Side 21

Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Side 21
JÓLABLAÐ ALÞÝÐUMANNSINS 1950 21 Um hádegisbilið vöknuðu stúlkurnar við vondan draum, því að norðan stórhríð reið tjaldþekju þeirrla. Var sem í snjóvegg einn sæi, er út var litið. Eigi leizt stúlkunum ráðlegt að bíða með öllu aðgerðarlausar. Bjuggust tvær þeirra til að sækja 'vjatn í lind skammt frá tjaldínu. Rejmdist hún þá kaffennt, og urðu þær að moka snjónum frá með berum höndum, áður en þær náðu vatni í tvær fötur og ketil. Næst var að huga að hlóðunum, og reyndust þær einnig í kafi í fönn. Rifu stúlkurnar upp hlóðarsteinána og gerðu nýjar hlóði i skjóli við tjaldið. Tókst þeim þar að kveikja eld, enda höfðu þær gnægð þurra spreka í tjaldi sínu. Hresstust þær mjög við góðain kaffisopa. Ekki slotaði hríðinni, þótt fram á d|aginn liði, og um kvöldið var öskubylur. Fór stúlkunum nú að þykja hagur sinn allóvænlegur. Tjald þeirra var ekki sem sterklegast, saumað úr ábreiðum og strigi i stöfnun- um. óttuðust stúlkurnar, að veðurofsinn og fannburð- urinn mundi slíta og sliga tjaldið, og yrði þá lítið sæld- arbrauð að sitja i bli’ndbyl norður á Flateyjardalsheiði. Þó misstu þær ekki kjarkinn, en fólu sig guði á vald og treystu því, að Hann mundi sjá hag þeirra borgið. Samt sem áður voru þær vel minnugar þeirrar speki, lað guð hjálpar fyrst og fremst þeim, sem hjálpar sér sjálfur, og því vöktu þær alla nóttina og sátu á tjald- homunum, svo að síður sliti upp. En kuldalegt verk var það, að sitja þannig hreyfing'arlaus klukkustund- um saman. Erfiðastur reyndist þeim samt þorstiinn, því að löngu var það vatn upp drukkið, sem þær höfðu sótt sér daginn .fyrir, Varð það fangaráð þeinla að setja snjó í flöskur- og hafa þær síðan inn á sér, unz bráðið var. Gátu þær þannig svalað sárasta þorstanum. Búið hlafði verið fyrir byl þennan að reka rúið geld- fé frá Laufásþog víðar á Heiðina, og hópaðist Viú féð að tjaldi þeirra grasakvennanna, svo að búið var, að það træði tjaldið niður. Sárt þótti stúlkunum að geta ekki búið blessúðum skeppnunum betra skjól en var í hlé við tjaldið, en eigi var um slíkt að ræða. Á mánudagsmorgun tók veðrið heldur að lægja, en ekki dró úr fannkomunni nema síður væri. Hafði nú skeflt mjög að tjaldi þeirra stallsystra, svo að stórum var hlýrra þar inni. Reyndu þær ’að sofna um stund, en lítið vildi verða úr því. Óttuðust þær, að aftur hvessti og vildu gæta tjaldsins sem bezt. Um miðjan dag brutust stúlkurnar út úr tjaldbúð sinni og skyggndust um. Vþr veður stórum vægara orðið, hríð lírtil og djarfaði fyrir sól. En alhvítt var um að litast og hvergi sá á dökkan díl. Hurfu stúlkurn- ar aftur í dyngju sína, fengu sér matarbita, en tóku síðan að kveðast á til að drepa tímann. Er tjaldbúar höfðu kveðist á eigi allskamma hríð, heyrðu þeir marr í snjónum úti fyrir, og virtust þar tveir, fremur en einn á ferð. Snöruðust stúlkurnar þá hið hvatasta út. Reyndust þar komnir Þormóður frá Borgargex-ði og Bjöm frá Laufási og voru að leita Halldóru og Sigurleifar, en frá Lómatjörn var engi'nn, því að húsráðendur þar hugðu stúlkur sínar á Kanxbs- mýrum vera. Þeir Þormóður og Björn höfðu komið við á hverj- um bæ á Ieiðinni og spurt um stúlkurnar, en enginn hafði kunnað neitt frá þeim að segja. óttuðust allir, að þær hefðu lagt af stað í hríðinni iínn Skarðsdal og orðið þar úti. Mjög hafði fólkinu á Kainbsmýrum orðið bilt við, er það hafði frétt af stúlkununx úti á Heiði, og kvaðst mundi hafa sótt þær strax á sunnudag, ef það hefði af þeim vitað. Er ekki að orðlengja, það, að þarnja við tjaldið varð hinn mesti fagnaðarfundur. Þóttust piltarnir hafa heimt stúlkurnar úr helju, en þeim fannst Inú öllum sínum örðugleikum lokið, enda hessar vej og ekkert þrekað- ar, aðeins þyrstar mjög. Létu þeir Þormóður og Björn það vera fyrsta verk sitt að sækja þeim vatn til drykkj- ar, og fengu stúlkurnar þá inatarlyst sina, er þær höfðu svalað þorstanum, en áður haf^i þær lítt fýst að eta. Var nú búizt til heimferðar. Höfðu þeir Björn og Þormóður komið ríðandi og með hesta handa Sigui'- leif og Halldói'u, en Lómatjai’narstúlkur voru hest- laus|ar. Léðu piltaxtnir þeim því hesta sína, en köfuðu sjálfir snjóinn. Var færið hið versta og víða umbrot fyrir hestana. Gekk mjög seint inn hjá Vestari-Krók- um, en þá tók færð talsvert að létta. Þær Sigríður og Friðfinna fóru eigi lengra en í Þúfu, þar sem þær voru hestlausar, og gistu þar. Hin riðu ofan í Hverfi og heim. Gott þótti þeim Sigríði og Friðfinnu að njóta hvíld- ar að Þúfu og alldasaðar fundu þær, að þær voru oi’ðn- ar eftir ferðavolkið, dn heim gengu þær að morgni, og engri stúlknianna vai’ð nokkurt mein að útivist þessari. Eigi var hægt að ná tjaldinu og grösunum utan af Heiði fyrr en að viku Iiðinni, en þá náðist allt með góð- um skilum. Þannig lauk þeixri grasaferð. Þótti hún hafa verið all söguleg, enda sýint, að ungu stúlkui'nar fjórar, er ferð þessa fóru, væru engir kalviðir á hinunx fslenzka ættarmeiði.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.