Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1947, Side 8

Dýraverndarinn - 01.09.1947, Side 8
38 DtRAVERNDARINN með svartan blett á miðju bakinu og hlaut nafnið Spóla, af þvi að hún var svo litil. Spóla litla var lijá mömmu sinni, þangað til hún var mánaðargömul, en það gekk ckki þrautalaust. Hún var fju’st og fremst svo smá vexti, að hún gat með naumindum náð til að sjúga mömmu sína, svo að við urðum alltaf að hjálpa iienni. Auk þess var hún svo sein að koma scr af stað til að ná i björgina, að bróð- ir bennar var búinn með allt og ærin komin af stað, áður en Spóla var byrjuð. Ekki mátti ég taka hana i bæinn til mín fvrir pilt- unum, ])ví að ég iield þeir liafi flestir átt sam- merkt með það að bafa horn i síðu þessa vesalings, og loks sagði eigandinn, að hann vildi ekki sjá hana, ef hún ætti að alast upp i bænum. Það varð því úr, að ég tók hana, vegna þess að enginn vildi liana, ncma ég. Það eiga svo mai’gir bágt, sem enga eiga að. Mér ofbauð, hvað vina min var litil og mikill vesalingur. Hún var ekki stærri en það, að hún gat staðið undir eldavél- inni hjá mér, og fæturnir eins og fugls- bein, svo mjóir og bognir. Ég sá frain á, að Spóla yrði aldrei alin fyrir mig, ef ég gæti ekki látið hana slækka. Hins vegar var mér ómögulegt að hugsa til þess, að hún yrði að deyja. Eg fékk mér því þorskalýsi handa lienni og gaf henni mjólk, eins og hún vildi drekka. Fyrir bragðið elti bún mig, livert sem ég fór, var hjá mér, meðan ég mjólkaði kýrn- ar oö mátti aldrei af mér sjá. Hún tók skjótum framförum, stækkaði fljótt, og fæturnir urðu beinir á stuttum tíma og stinnir, og nú kemur hún alltaf til mín á hverju kvöldi að skúrnum á kjallaranum, tii þess að fá sér ofurlitinn brauðbita. Það cr vissulega gaman að fara á móti kind- unum og hafa þá auðvitað einlivern glaðning meðferðis, þegar þær eru komnar úr hagan- um heim undir túnið. Þá drifa vinirnir að úr öllum áttum. Þar kemur golsóttur sauður, sem er uppalinn í bænum, eins og Spóla litla, og ég kalla bann Grím. Þar kemur lika mó- hosótt ær, sem var heimaalningur í sama sinn, og þannjg mætti lengi telja, en ég býst ekki við, að þetta þyki merkilegur vinahópur. Samt vil ég heldur horfa inn i saklausu, tryggu aug- GÓÐAR SKEPNUR BÚKOLLA. Yeturinn 1907 varð ég fyrir þvi óhappi að missa kú. Ég varð þvi að kaupa aðra í slað- inn þá um vorið. Um sama levti var mér sagt það i draumi, að svarta kvígan á Reykjum yrði 16 marka kýr. Það var kona, sem ég bekkti, er kom til min i draumnum, en þessa konu hafði mig dreymt ofl áður, og sagði hún jafnan fyrir um mikilsverða atburði, er snertu mig persónulega. Þetta sama vor gerðust þau tíðindi, að Árr' Eiríksson bóndi á Reykjum brá búi og flutt- ist til Akureyrar. Við hjónin fórum út að Reykjum, áður cn bann flutti, i þeim tilgangi að fá keypta kú að Árna, en hann var bá bú- inn að auglýsa uppboð og var þar getið stór- gripa beirra, er selja átti. Af þessum ástæðum vildi Árni siður selja kýrnar utan uppboðs, en bauðst til að selja okkur svartkollótta kvígu. ársgamla. Kvígan var kevpt, enda þótt við yrðum eftir sem áður að kaupa mjólkandi kú. Svartkolla frá Reykjum var skirð Búkolla, og reyndist hinn mesti happagripur. Búkolla var alsvört, stór og falleg, mjólkaði 16—18 merkur eftir burð og hélt þeirri nyt vel, komsl í 18 merkur, þcgar vel áraði, en þá tiðkaðist ekki að gefa kúm annað en heyið tómt. Bú- kolla var 16 vetra, þegar hún féll. Es. eignaðist góðar kvr út af Búkollu. Dófl- urdóttir hennar liéf Dimma og var ágæt kýr. Hún fékk fyrstu verðlaun á sýningum oftar en einu sinni oa komst i 22 merkur eftir burð. Allmargt af kúm er til bér i sveit af þcssu svonefnda Kollukyni, og liafa þær revnzt vel vfirleitt. HREGGUR. Það var vorið 1907, að faðir minn, Sveinn Guðmundsson bóndi í Bjarnastaðahlíð, afréð un þessara vina minna en sumra mannanna, scm snúa við mér baki, hvað litið, sem þeir geta að mér fundið. Herdís Zakaríasdóttir, Djúpadal.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.