Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1955, Blaðsíða 2

Dýraverndarinn - 01.03.1955, Blaðsíða 2
10 DÝRAVERNDARINN Hreindýrahjörðin á Austuröræfum Hreindýrin eru fögur dýr og tíguleg, og það er heillandi sjón að sjá homprúðan hóp þessara dýra, þar sem þau geysast frjáls og stygg um mosagróin öræfin, undir bláheiðum himni í sindr- andi sól. Eða sjá hópinn nema staðar á hæð: Hornstiklamir bera við loft, veðrandi snoppurn- ar teygjast gegn vindáttinni, nasirnar fnæstar, augun frán, og svo allt í einu snögg hreyfing: öll dýrin snarsnúa sér við og þeytast af stað, fóta- takið eins og jódynur; það rýkur úr þurrum mel, og sólin glitar hið rauða ryk. Eins og lesendum Dýraverndarans er kunnugt, eru heimkynni hreindýranna heimskautalöndin svokölluðu, á norðurhveli jarðar. Lapparnir í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eiga tamin hrein- dýr, og er talið, að í hreinhjörðum þeirra séu upp undir hálf milljón dýra. Þá mim vera um ein milljón taminna hreindýra í freðmýrahér- uðum Rússlands. Hreindýrin eru hirðingjaþjóð- unum það, sem kýr, hestar og kindur eru íslenzk- um bónda. Fullorðið hreindýr mun vera 120—150 kíló að þyngd, og hreinkjötið er mjög lostætt. Skinnið af hreinunum er bæði haldgott og hlýtt, og horn og sinar dýranna kunna hirðingjarnir að nota sér. Hreindýrin eru ekki nythá, en mjólk- in úr þeim er margfalt kostbetri en kúamjólk. Hreindýrin þykja óþjál í tamningu, en eru þó notuð bæði til dráttar og burðar. Fullorðinn hreinn getur dregið 200 kílóa hlass sextíu kíló- metra í lotu, eða eins og frá Reykjavík og austur í Flóa. Hreindýr þola ekki mjög þungar klyfjar, en talið er, að þeim veitist létt að bera fjörutiu kílóa byrði, tuttugu í hvorri klyf. Hreindýrin voru flutt til Islands seint á 18. öld. Þau hafa aðeins lifað hér villt, og nú um langt skeið hafa þau ekki verið til annars staðar á landinu en á öræfum Austurlands. Fyrir hálf- um öðrum áratug voru framtaksmenn á Austur- landi vel á veg komnir með að útrýma þessum fögru dýrum, en þá var það, að stjórnarvöldin tóku þann kost að hlíta þekkingu og ráðum Helga rithöfundar Valtýssonar, sem hefur kynnt sér lífshætti og lífsskilyrði hreinadýra, ræktun þeirra og gagnsemi öðrum Islendingum fremur og ann raunar öllum fögrum eða gagnlegum gróðri í ríki manna, dýra og jurta. Dugðu ráð Helga svo vel til viðgangs dýrunum, að þeim fjölgaði ört, og var áætlað, að í stað á að gizka hundrað hrein- dýra á Austuröræfum árið 1939, væru þau sum- arið 1954 orðin um það bil tvö þúsund. Nú var talið, að beitilönd eystra þyldu ekki slíka hreindýrahjörð, hvað þá stærri, og kvört- uðu bændur mjög undan því, að hreindýrin spilltu fyrir þeim högum. Stjórnarráðið og ráðunautar þess, svo sem Helgi Valtýsson, töldu æskilegt, að dýrunum yrði nú fyrst og fremst fækkað á þann hátt á Austuröræfum, að allmörg dýr yrðu flutt til annarra landshluta. Var skrifað sýslu- nefndum Árnessýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu og Borgarfjarðar- og Mýrasýslu og þær spurðar, hvort þær teldu æskilegt, að hreindýr væru flutt í afréttarlönd þeirra. Svöruðu allar sýslunefnd- irnar neitandi nema sýslunefnd Árnessýslu, en þau lönd Árnesinga, sem koma þóttu einkum til greina, liggja að afréttarlöndum bænda í Gull- bringu- og Kjósarsýslu. Þótti stjórnarráðinu ekki fært að láta flytja hreindýr í afréttarlöndin gegn mótmælum hlutaðeigandi sýslunefnda, ekki sízt þar sem ekki var talið með öllu útilokað, að með hreindýrunum kynni að flytjast hin illræmda og skæða garnaveiki, sem herjað hefur í sauðfé Aust- firðinga. Varð það svo að ráði, að skotin væru sex hundruð hreindýr, tarfar, kýr og kálfar úr hjörðinni. Var síðan efnt til hreindýraveiða eystra, og víst er um það, að ekki munu veiði- leyfin hafa verið látin ónotuð. Báru veiðigarparnir þær fregnir kinnroða- og athugasemdalaust í blöðin, að margt særðra dýra hefði gengið þeim úr greipum. Nýlega hefur ungur menntamaður, Egill Jón- asson frá Stardal, skrifað grein um þessi mál í dagblaðið Vísi. Hann sýnir þar réttilega fram á, að hægt sé að hafa mikið gagn af hreindýrunum sem veiðidýrum og halda hreindýrastofninum inn- an skynsamlegra takmarka með því að gefa ákveð- inn fjölda veiðileyfa. En hann leggur í greinum

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.