Dýraverndarinn - 01.05.1981, Page 8

Dýraverndarinn - 01.05.1981, Page 8
í byrjun apríl og fer úr því að dreif- ast út um land og leita uppi gamla og nýja varpstaði; en varptími hennar er þó ekki fyrr en í byrjun júní að öllum jafnaði. Seföndin er hænd að öllum vötnum, tjörnum og smápollum, sem mikill sefgróður er í, einkum við bakkana. Þar hefur hún fylgsni. Hún gerir sér hreiður inni í sefbeltinu, og eru þau stund- um alveg á floti. En þau eru þá ætíð fest við botnfastan gróður, því að ella gæti þau rekið á brott. Sef- öndin verpur ætíð á grynningum, þar sem nokkurn veginn er öruggt fyrir öldugangi, sem gæti spillt hreiðri og eggjum. Hún verpur 5- 7 eggjum, hvítum á lit, frekar litl- um, dálítið aflöngum eggjum. Ut- ungunartíminn er talinn vera um það bil 20-24 dagar, og bendir það til þess, að þetta sé ágiskun að nokkru leyti. Þegar ungarnir eru komnir á kreik, eru þeir í umsjá foreldranna allt að mánaðartíma eða lengur, þangað til þeir eru orðnir fleygir og sjálfbjarga. For- eldrarnir kenna þeim að vinna fyr- ir sér, þ. e. að veiða smá vatnadýr, fiskaseiði o. fl. Fyrst framan af synda þau oft með ungana á bak- inu. Þeir þurfa ekki að læra að synda, það er þeim meðfætt, en þeir þurfa þó tilsagnar með til þess að læra að stinga sér á kaf og veiða í kafi. Er oft gaman að sjá, þegar sef- andarmamman stingur sér með alla ungana á bakinu. Þeir fljóta þá á vatninu eins og dálitlir hnoðrar og skilja ekkert í því, hvað varð af mömmu. En hún kemur brátt aftur og endurtekur leikinn, þangað til ungarnir átta sig á þessu og elta hana, þ. e. þeir herma eftir henni, þeim tekst að sjá, hvert hún fer og þar með hafa þeir lært að stinga sér. Sefendurnar fara oftast nær ekki fyrr en um réttir eða stundum ekki 4 fyrr en um mánaðamótin sept.-okt. A vetrum eru sefendurnar suður við Miðjarðarhaf, austanhafs, en vestan Atlantshafs fara þær suður að Mexi- kóflóa. Fullorðin sefönd í sumarbúningi er reglulega fallegur fugl. Höfuðið er svartleitt, og er fiðrið þar lengra en annars staðar og myndar því eins konar hettu eða „drengjakoll", en framan frá nefrótum og aftur um augun og aftur á hnakka er mó- gulur fjaðraskúfur, sem seföndin getur ýft upp og lagt niður að vild sinni. Er þetta mjög áberandi. Aft- anverður hálsinn og bakið er svart- leitt, en víða með ljósgráum jöðrum á fiðrinu. En framanverður hálsinn og eins að utanverðu rauð-móleit- ur, og nær þessi litur niður á síður, sem líka eru rauðmóleitar. Að neð- anverðu er seföndin hvít á lit, ?neð sterkri silkislikju á fiðrinu, sem er þar mjög þétt og leggst fast að búknum. Gljáir því enn meir á fiðrið en ella. Flugfjaðrirnar eru mósvartar, en armflugfjaðrirnar hvítar og mynda því eins konar „spegil" (sjá endur). Nefið er svart, en þó dálítið ljósara í oddinn. Fæt- urnir eru grænsvartir að utanverðu, en óhreint gulleitir að innanverðu. Augað er blóðrautt. í vetrarbúningi er seföndin mósvört á höfði og aft- an á hálsinum, „drengjakollurinn" er horfinn, en vangarnir, framan- verður hálsinn, bringa og kviður- inn allur er þá hvítt, en síðurnar eru gráleitar. Ungarnir eru svipað- ir fullorðnum seföndum í vetrar- búningi. Heimkynni sefandarinnar erlend- is eru m. a. á Norðurlöndum og á Finnlandi, Lettlandi og Rússlandi, víða í norðanverðri Asíu og á Jap- an. Þá er hún einnig heimilisföst norðantil í Ameríku, aðallega í Kanada. Einkenni: Frekar lítill fugl, grannvaxinn að sjá, með langt og frammjótt, beint nef, fæturnir eru beint aftur úr búknum og því sýni- lega ekki hæfir til gangs; fótlegg- irnir eru flatir og breiðir eins og árablöð og sundblöðkur á tánum. Hafa fjaðrahettu á höfði á sumrum og gullgula eða mógula, hreyfan- lega „eyrnaskúfa". Hafast mest við á sundi og kafa vel, eru styggir fugl- ar, sem fljúga vel og rösklega, þ. e. framan á hálsi, á bringu og kviði. Seföndin er nærri því stéllaus. (Stærð: 1. um 346-373 mm; v. 137-150 mm; n. 21-27 mm; fl. 43 —47 mm, allt erlend mál, sem þó munu vera nærri lagi fyrir ísl. sef- endur. Þyngd um 750 gr). KELDUSVÍNS- ÆTTBÁLKURINN ( Gruiformes) KELDUSVÍNIÐ (Rallus aquaticus, L) Keldusvínið kannast flestir við að nafni, en færri munu þó þeir vera meðal almennings hér á landi, sem hafa séð það, og enn færri þeir, sem nokkur veruleg kynni hafa af því. Þó er keldusvínið alls eigi eins sjaldgæft og almennt er álitið. En það kann vel feluleikinn, og því er það, að menn sjá það svo sjaldan. Jafnvel þó að menn gangi fram á það af hendingu, eins og ætíð er, þegar menn sjá það, er það óðar horfið aftur. Það neytir sjaldan vængjanna, en hleypur og felur sig í grasi og sefi, og af því stafaði þjóðtrúin, að keldusvínið gæti smogið í jörð niður, því að það væri „hálft fugl, en ormur að hálfu" . Svo vel kann það að fela DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.