Dýraverndarinn - 01.05.1981, Side 10
grátt, að neðanverðu er hún ljós-
grárri. Fiugfjaðrirnar eru mósvart-
ar. Fremsta flugfjöðrin er með hvít-
um jaðri, en armflugfjaðrirnar eru
hvítar í endana. Nefið er stutt og
alldigurt, hvítt á lit, og ofan við
það er hyrnisplata, sem nær upp á
ennið, samlit nefinu. Það er blesan,
sem fugl þessi er kenndur við. Fæt-
urnir eru mjög aftarlega á búknum,
eru gráir á lit og fótleggirnir eru
flatvaxnir. Tærnar eru fjórar, og
vita þrjár fram, og eru þær með
breiðum sundblöðkum. Dálítil
sundblaðka er einnig á afturtánni.
Stélið er stutt og lítilfjörlegt. Aug-
að er móleitt.
Ungarnir eru hvítgráir framan á
hálsi og að neðanverðu; nefið og
ennisplatan er gráleitt. Nýskriðinn
úr eggi er unginn aðallega svartur
á litinn, en á höfðinu og á hálsin-
um er dúnninn þráðlaga og gulleit-
ur í oddinn. Fremst á enninu er
stuttur og þéttur rauðleitur dúnn.
Seföndin syndir og kafar vel,
enda er hún reglulegur sundfugl í
háttum. Henni virðist frekar erfitt
að hefja sig til flugs, en þó flýgur
hún allrösklega þegar hún er komin
af stað. Hún verpur líkt og sefend-
ur í hreiður, sem hún hefur gert
sér inni í þéttu sefi, og eru þau oft-
ast á floti ða að meira eða minna
leyti umflotin af vatni. Hún verp-
ur 7-14 gulgráleitum eggjum, með
þéttum dökkleitum dröfnum eða
dropum. Blesöndin er bæði jurta-
og dýraæta. Hér er mjög lítið kunn-
ugt um hætti hennar.
Blesöndin á heima víðast hvar í
Norðurálfunni og í Norðvestur-
Afríku og víða í norðanverðri Asíu,
allt austur í Kína og Japan.
(Stærð: 1. 360-445 mm; v. 187-
225 mm; n. 54—66 mm; fl. 53-65
mm).
Frá Dýraverndunarféiagi
Akureyrar
ÖKUMENN OG AÐRIR VEGFARENDUR! Nú eru lömbin
og ærnar farnar að koma víða að vegunum. Vinsamlega hægið
ferðina og gefið ekki hljóðmerki þegar þið sjáið skeþnur við
eða á vegunum.
Dýraverndunarfélag Akureyrar.
☆ ☆
OKUMENN! Þegar þið sjáið hesta á vegunum er besta ráðið
að stoppa bifreiðina alveg, þá munu hestarnir átta sig og fara
út af veginum strax og aðstæður leyfa.
Dýraverndunarfélag Akureyrar.
☆ ☆
KATTAEIGENDUR! Vinsamlegast gætið katta ykkar vel, ekki
hvað síst núna þegar ungarnir eru að koma úr hreiðrunum
ófleygir. Nauðsynlegt er að hafa bjöllu á hálsbandinu og taka
ekki „kólfinn" úr bjöllunni.
Dýraverndunarfélag Akureyrar.
☆ ☆
HÚSRÁÐENDUR! Við viljum vinsamlegast minna á að ef þið
sjáið ykkur fært nú yfir sumarið að byrgja reykháfana, sem ekki
eru lengur notaðir, með vírneti. Ef þið málið þakið eða þurfið
að dytta að því, væri gott að gera þetta um leið. Hugsið til
fuglanna þegar vetur gengur aftur x garð.
Dýraverndunarfélag Akureyrar.
6
DÝRAVERNDARINN