Dýraverndarinn - 01.05.1981, Blaðsíða 15
in að láta verulega á sjá, einkum
þau hús safnsins, sern eldri eru.
Sum þeirra eru orðnir hjallahróf,
sem ekki er forsvaranlegt að geyma
skepnur í.
Girðingar umhverfis safnið eru
nokkuð víða fallnar algerlega riið-
ur, þannig að rnenn og skepnur
eiga greiðan aðgang út og inn. Stí-
ur inn í safninu eru einnig illa
farnar, eða fallnar.
Ekki er að sjá, að niðurníðslan
komi verulega niður á líðan dýr-
anna sjálfra, enn sem komið er. Þó
mátti sjá, í fyrradag, að vatriið í
annari selalauginni var skítugt, að
laugin var ekki vel hirt.
Hvalalaugin fyrirhugaða ber nú
uppi trönur, þar sem þurrkaðir eru
fiskhausar. Ljón, apar, ísbhnir og
önnur dýr ráfa um í stíum sínum,
laugum og búrum, bíðandi eftir
nœsta matmálstíma. Hús eru ómál-
uð og illa farin, grindverk niður-
jöskuð og víða má sjá rusl á svceð-
inu, sem fokið hefur úr nálcegum
sorphaugum. Einn starfsmaður að
deginum gerir vart annað en fóðra
dýrin. Annar, sem starfar að nóttu
til, er gceslumaður, því það gceti
verið hcettulegt ef óviðkomandi
fólk fer að atast í dýrunum á staðn-
um.
Með öðrum orðum: undanfarna
mánuði hefur ekkert verið gert
nema lífi hefur verið haldið í þeim
dýranna, sem létt eru á fóðrum, eða
auðvelt vceri að endurnýja. Þess er
ekki langt að bíða, að Scedýrasafnið
verði orðinn óþrifalegur blettur á
íslensku landslagi, í stað þess
skemmtistaðar, sem það átti að
verða.
Er það vegna stirfni kerfisins?
Er það vegna þess að Scedýrasafnið
hafi alltaf verið óþarft og íslend-
ingum til skammar, og því best það
leggðist niður?"
DÝRAVERNDARINN
Blaðamanninum varð starsýnt á
niðurnýddar girðingarnar og ann-
að drasl. í öll þau ár sem SDÍ hef-
ur gagnrýnt safnið, hefur það verið
í þessu ástandi.
Og ég leyfi mér að svara spurn-
ingu blaðamannsins með því að
segja að eins og staðið hefur verið
að rekstri Sædýrasafnsins við Hafn-
arfjörð, hefur það verið íslelnding-
um til háborinnar skammar og fyr-
ir löngu kominn tími til að leggja
það niður.
]. S.
Api notaður til að rantisaka áhrif radiaton-bruna á augu við Aerospace Medicvine-
skólann í Texax.
Sprautan getur verið saklaus, en getur líka orsakað miklar þjáningar.
11