Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1981, Blaðsíða 17

Dýraverndarinn - 01.05.1981, Blaðsíða 17
— Ég vil hafa hundinn, ég vil eiga hann. Hann má ekki fara. Daginn eftir kom ókunni maS- urinn til mömmu Lalla. Hann sagði, að veiki drengurinn vildi fyr- ir hvern mun fá hundinn. Hann hefði verið óhuggandi þegar Lappi fór. Ókunni maðurinn vildi kaupa Lappa, og bauð fyrir hann þúsund krónur. Vesalings móðirin horfði á þúsund krónurnar, sem henni voru réttar, og svo á Lappa. Auðvitað var hann ekki svona mikils virði. - Lalla þótti ákaflega vænt um hann, en hundur var þó ekki nema hund- ur. Börnin voru svöng og enginn biti til í búrskápnum. Hún tók við peningunum, og maðurinn fór burt með Lappa. Um kvöldið, þegar Lalli kom heim, hljóp Lappi ekki á móti hon- um, eins og hann var vanur. — Lappi! Lappi! kallaði hann. Hvar er Lappi? Þegar honum var sagt það, fór hann að gráta. Daginn eftir var hann fárveikur, og dagana þar á eftir. Hann kallaði stöðugt á Lappa. Gamli læknirinn hristi höfuðið. - Á hvað er drengurinn alltaf að kalla? sagði hann. Þið verðið að koma með Lappa. Það er það eina, sem getur bjargað honum. Vesalings konan var úrvinda af sorg. Henni hafði ekki dottið í hug, að Lalli elskaði hundinn svona mikið. Hún vildi fegin ná í Lappa aftur, en því miður gat hún það ekki. Hún fór heim að gistihúsinu og spurði eftir ókunna manninum. Henni var sagt, að hann væri far- inn. Þjónarnir hristu höfuðin og sögðust ekki hafa hugmynd um, hvert hann hefði farið. III Menn voru orðnir vonlausir um að Lalli myndi lifa, en þá kom DÝRAVERNDARINN Hann kom þjótandi upp tröppurn- ar eitt kvöldið, þegar sólin var að setjast. Hann var horaður og ó- hreinn og allur leirstokkinn. Hann varð eins glaður af því að sjá þau, eins og þau urðu glöð af því að sjá hann. Hann ætlaði alveg að ærast af kæti. Frá þeirri stundu fór Lalla að batna. Hann mátti aldrei sjá af Lappa. Tíu dagar liðu, og móðirin gat ekki fengið af sér að segja Lalla, að þau ættu ekki Labba lengur. Eng- inn vissi hvaðan hundurinn hafði komið. Bróðir Lalla fór heim að gistihúsinu og spurði eftir ókunna manninum, en enginn vissi neitt um hann. Daglega bjuggust þau við að hann kæmi eftir Lappa. Móðirin geymdi þúsund krónurnar vand- lega. Hún vildi svo fegin borga þær aftur. Hún óttaðist mest, að ókunni maðurinn vildi ekki gefa kaupin eftir. Loksins fréttist, að ókunni mað- urinn væri kominn. Bróðir Lalla hljóp heim að gisti- húsinu. Þar fann hann manninn með litla drenginn í sama herberg- inu. Hann sagði honum alla sög- una af veikindum Lalla, hve mjög hann hefði saknað hundsins, en farið svo strax að batna þegar hund- urinn kom heim. Hann fékk ó- kunna manninum þúsund krónurn- ar og bað hann að lofa þeim að hafa Lappa. - Hann sagði, að þau vildu fegin útvega honum annan hund og kenna honum listir Lappa. Ókunni maðurinn þagði svolitla stund. Svo sagði hann: — Lappi er undraverður hundur. Hann komst einsamall alla leið frá Rómaborg. Hann sneri sér að litla drengnum og spurði hann hvort hann hefði Gardeigandinn er fjúkandi vondur. Tver slíemir strákar hafa stolið öllum eplun- um af eftirlætistrénu hans, og nú œtlar hann að flengja þá fyrir strákapörin. En strákarnir hafa orðið hræddir og falið sig fyrir garðeigandanum. Geturðu fundið þá? skilið það, sem þeir voru að segja. - Já, já, sagði litli drengurinn. Góði pabbi, láttu Lalla fá hundinn aftur. Faðir hans brosti og rétti bróður Lalla þúsund krónurnar. - Þetta er borgunin fyrir hund- inn, sem þið ætlið að útvega mér, sagði hann. Drengurinn tók við peningun- um. Hann var svo glaður, að hann gat varla þakkað fyrir sig. Lappi og Lalli náðu sér nú fljót- lega og urðu eins hraustir og kátir og áður. Þeir fengu lítinn hund og kenndu honum ýmsar listir. Svo fóru þeir með hann til litla drengs- ins í gistihúsinu. Hann sagði, að þessi hundur væri alveg eins góð- ur og Lappi. En Lalli var nú á annarri skoðun. 13

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.