Dýraverndarinn - 01.05.1981, Síða 24

Dýraverndarinn - 01.05.1981, Síða 24
til hennar. Rétt er að gera ráð fyrir þessu síðara tilfelli, þó að lambið sé stórt. — Aðgœsluleysi ökumanna í þessmn tilvikum veldur tíðustum skakkaföllum af þessu tagi. Eftir sólbjarta daga er yfirborð vega hlýrra en grasigróna landið umhverfis þá. Þegar kólnar með kvöldinu eftir slíka daga, einkum í september og október, sækja sauð- kindur mjög á að leggjast á vegina. Þær geta og gert það í vætutíð, ef umhverfi veganna er blautt. Þar sem fé er sérstaklega spakt, vill það helst ekki víkja fyrir umferð- inni. Jafnvel þótt lúður sé þeyttur, stendur það ekki upp fyrr en í síð- ustu lög. Þegar þetta á sér stað er oft kominn Ijósatími, og eru þá skepnur seinni til að víkja undan bifreiðum en við dagsbirtu. Sé lúð- ur þeyttur trítlar féð að vísu á stað út af veginum eða eftir honum, en ökumaður verður óhjákvæmilega að aka hægt. Þegar svo stendur á þykir mér ánægjulegast að stugga ekki við fénu, ef unnt er að komast hjá því, heldur krækja á milli þess. Það er með öllu hættulaust, ef gæti- lega er ekið, er skepnuvinum nokk- ur ánægju og veldur oftast lítið meiri töfum. Okumenn, sem hirða um að veita búfénaði með vegum fram athygli, læra furðu fljótt að þekkja viðbrögð hans. Sú athugun er mörgum til ánægju og tilbreytingar á ökuferð- inni, en það að drepa skepnur eða slasa, vegna vítaverðs aksturs, og svíkjast síðan frá verknaðinum, ber vitni um óþokkainnræti á háu stigi. Morgunbl. - Asgeir L. Jónsson. „KETTIRNIR VÖKTU MIG" Nöturleg lífsreynsla ungra hjóna, sem misstu allt sitt í húsbruna í Vestmananeyjum í fyrrinótt. 20 „Þegar ég kom heim í hlað var aðkoman heldur nöturleg — eldur og mikill reykur. Eg hljóp inn i húsið, komst upp á efri hæðina og inn í barnaherbergið, en þarna uppi sást ekki út úr augum, allt fullt af reyk. Ég þreifaði ofan í barnarúm- in, en þau voru tóm, ætlaði síðan að brjótast áfram og inn í svefn- herbergið, því ég þóttist fullviss að þau væru innilokuð þar, en varð frá að hverfa." Þetta er lýsing Reyn- is Markússonar, ungs heimilisföður í Vestmannaeyjum, sem kom heim frá vaktavinnu í Saltfiskverkun Ein- ars Sigurðssonar á fimmta tímanum í fyrrinótt að heimili sínu í björtu báli. En hann og fjö’skylda hans misstu svo til allt sitt í brunanum. Fréttaritari Mbl. í Vestmannaeyjum hitti ungu hjónin að máli í gær. Eiginkona Reynis, Steinunn Ól- afsdóttir, var mikið hrufluð á fót- leggjum og auðsjáanlega mjög eft- ir sig eftir óvægna lífsreynslu. Hún sagði svo frá: „Ég get ekki meint annað en að það hafi ferið kettirn- ir sem vöktu mig af fastasvefni. Ég vaknaði við heilmikil læti í þeim fyrir utan húsið. Þá var kominn mikill reykur á efri hæðinni, en mér tókst að ná báðum börnunum úr rúmum sínum og komast út. Þau voru á náttfötunum, en mér tókst að grípa smávegis af fatnaði með mér." Kettir þessir, fimm að tölu, eru hálfgildings heimiliskettir. Heimili ungu hjónanna er utarlega í bænum og stendur eitt sér. Þar var áður heilmikið kúabú og voru kettirnir þarna fyrir þegar unga fólkið flutt- ist inn sl. haust, en þau eru aðflutt, bjuggu áður í Hafnarfirði. Ungu hjónin hafa gefið köttunum að éta og þeir orðið hændir að þeim. Framhaldinu sagðist Steinunn ekki gera sér vel grein fyrir, nema að hún hefði á einhvern hátt talið einu hjálpina fólgna í því að kom- ast upp að flugturninum. Þau hefðu ekki haft síma og einhvern tíma rætt það sín í milli að hægt yrði að leita aðstoðar þar, ef með þyrfti. Hún sagðist hafa reynt að finna tryggan stað og skilið börnin þar eftir og sagt eldra barninu að passa það yngra vel, en þau eru eins og þriggja ára gömul. Morgunbl. DÝRALÆKNIR FENGINN AÐ DÝRASPÍTALANUM Ragnar Ragnarsson, héraðsdýra- læknir í Norðausturlandsumdæmi, hefur tekið að sér rekstur Dýra- spítala Watsons frá 1. júlí nk. Ragnar er á förum til Þýskalands þar sem hann mun stunda störf um mánaðarskeið á sérstakri smádýra- deild við dýraspítala í Hannover, þar sem hann nam dýralæknisfræði. Þetta mun verða í fyrsta sinn sem dýralæknir starfar sjálfstætt hér- lendis, en það hefur háð mjög rekstri Dýraspítalans að ekki hefur fengist dýralæknir til starfa þar. Ragnar hefur fengið ársleyfi frá störfum sem héraðsdýralæknir. Hann tekur Dýraspítalann á leigu með öllum áhöldum og aðstöðu og sér alfarið um rekstur hans. Leigu- samningurinn, sem er til nokkurra ára, en uppsegjanlegur af hálfu Ragnars með þriggja mánaða fyrir- vara. Morgunbl. 16. 5. '81. RÝMRI REGLUR UM HUNDAHALD í KÓPAVOGI? Rúmar undanþágur í nágranna- byggðum gera erfitt fyrir í Reykja- vík og Kópavogi. Ört vaxandi hundahald í Kópa- OÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.