Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 3

Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 3
DÝRAVERNDARINN !9 að honum detti í hug, aö hann sé aö brjóta guös og manna lög, sem dýravinurinn telur miskunarlausa meðferö. Ef kærð er ill meðferð á skepnum, kernur til kasta dórnar- ans að meta, hvort brotið heyrir undir ákvæði nefndrar grein- ar í hegningarlögunum. Enginn efi er á því, að dómurunum sýnist oft sitt hverjum. Annars kemur það ótrúlega sjaldan fyrir að kært sé til yfirvalda, þó að illa sýnist farið með skepnur. Einn dómarinn mundi sýkna fyrir sarna brotið sem annar dærndi í sekt fyrir. Ef þeir dómarar eru góðir, þá eru lögin ekki góð. Dæmin eru deginum ljósari um það, að eitthvað er bogið við löggjöfina, eða þá mennina, sem eiga að lifa eftir lögunum og beita þeirn. Bóndi tekur hest, sem hefur gengið inn um opið hlið inn í túnið hans, hefur hann inni í hestarétt, lofar honum að standa þar i svelti í tvo sólarhringa í slagviðrisrigningu, nötrandi af kulda og vosi, nótt og dag. Eigandi finnur loks hest sinn, og kærir til yfirvalds meðferð á honum. Yfirvaldið getur ekki skoðað þetta sem miskunarlausa meðferð, og þvi srður þrælslega misþyrmingu, eða grimdarfulla meðferð; — sér m. ö. o. ekki fært að sekta bónda. Maður riður hálfgerðri ótemju, 4 vetra fola, í 4—5 kl.stundir, marga, rnarga harða spretti, og oftast þess á rnilli í hálfum hlaupum, en enga hvild 1 milli. Eigandi fer til sýslumanns og ráðgerir að kæra mann- nm til sekta. Sýslumaður ræður honum eindregið frá því, með því að vegalengdin, sem folanum hafi verið riðið, sé oft far- m á 4—5 kl.stundum, og geti því maðurinn ekki orðið dæmdur fyrir illa meðferð á folanum. Skepnuvinur tekur drepmeiddan hest undan reiðingi hjá lestamanni; reiðingurinn lá niðri í opnu og blóöugu sárinu, og þorskhausaklyfjar á klökkunum. l’er með hestinn til sýslúmanns. Sýslumaður fann að þetta var ekki eins og það átti að vera, og lét korna hestinum fyrir ti’l kekninga. En sekt? Nei, svo mikið þótti ekki ástæða til að láta þetta kosta. Slík dæmi má lengi telja forn 0g ný; en það er óþarft og til- gangslaust. Þau þekkjast svo víða. Og hitt þó oftar, að brotið er móti hegningarlaga ákvæði því, sem nefnt var, á n þ e s s nð kært sé. 299. gr. er dauður bókstafur. En hún þarf ekki aö yera það og á ekki að vera það. Eíkt er að segja um horfellislögin. Sauðfé og hross falla úr

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.