Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 9
DÝRAVERNDARINN 25 inn vegur aö moka flórinn nema láta dyrnar standa opnar á meöan — ef fjósrangalinn lokaöi þá ekki fyrir alla skimu, þó aö opið stæöi út i hann. I þessu svartholi liföu skepnurnar svo 8 mánuði ársins. Fjárhúsin voru víst viöast hvar bjartari, en þó sumstaðar koldimm. Og ekki var 1 o f t i ð betra í fjósunum. Alt húsið innan blautt og vellandi í raka; í fúlu pestarlofti uröu þessar þarfaskepnur aö lifa allan veturinn. Og mikill var fögnuðurinn á vorin, þegar föngunum var hleypt út í dagsljósið og hreina loftið á vorin! Þau ærsl og ólæti eru víst mörgum í barnsminni, því að það er hátíðadagur fyrir börnin aö horfa á þeytinginn í þessum ófimu skepnum, þegar þær fá loksins leyfi til að svelgja i sig vorloft- ið. Hvílík nautn fyrir þær! En h e s t h ú s i n ; þau voru bæði d i m m og k ö 1 d. Það er, eins og kunnugt er, orðtak um köld og léleg hús hér á landi, að þau séu regluleg „hesthús". Sú skoðun er jafnvel enn í dag ekki mjög óalmenn, að hestar hafi ekki gott af að vera hýstir í hlýju húsi. Oft eru heslhús ekki fokheld. En sannleikurinn er sá, að hestar þurfa alveg eins mikinn húshita og kýr, ef þeim á að líða vel. „Hitinn er á við hálfa gjöf“. Og ekki þarf að taka lengi eftir hestum til að sjá, aö þeir eru ljóselskir og fellur afar illa aö vera i myrlcri. Loft- vandir eru þeir mjög, og veröur þungt um andardrátt í loft- illum húsum. Hver sem vill láta skepnum sínum líða vel, og hver sem vill hafa þær liraustar og hafa gott gagn af þeim, ætti að hafa það hugfast, að loft og ljós og hiti er þeim eins nauðsynlegt og okkur mönnunum. Þær sýkjast og veiklast fyrir aldur fram, ef þær hafa ekki þessi lífsskilyrði. Þegar þess er gætt, a ð skepnurnar þurfa meira fóður í köld- um húsum en hlýjum — þvi að þá fer miklu meira af fóðrinu til aö viðhalda líkamshitanum, a ð þær sýkjast og veiklast og endast illa, ef þær lifa i myrkri og slæmu lofti, og a ð kýr gera minna gagn í slæmum fjósum en góðum, þá ætti það að skiljast, að það er ó s p a r n a ð u r og fjáreyðsla að láta þær lifa við illan húsaskort. Hvað sem líður umhugsuninni um líðun skepnunnar, ætti að mega vænta þess að menn væru svo umhugsunarsamir um e i g i n h a g s m u n i að þeir kostuðu kapps um að hafa fénaðarhús í góðu lagi.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.