Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 16
32
DÝRAVERNDARINN
MÁFURINN.
Vesalings vængbrotni máfur,
sem velkist um hafiö.
Bylgjurnar bláar því ráöa,
livar ber þig aö landi.
Því hefur fuglinn minn fleygi
fluginu tapaö ?
Hver hefur veriö svo vondur
aö vængbrjóta máfinn?
Sárt er að fá ekki ílogiö
og flugsins aö njóta.
En sárara’ er fuglinum fleyga
flugið aö missa.
í loftinu laust þú ei neinum
og lifðir sem óskin.
Nú tekur þig bylgjan og ber þér
við brimsorfinn klettinn.
ARNGRÍMUR ÓLAFSSON.
Aukafundur í Dýraverndunarfélagi íslands
var haldinn 17. þ. m. — Aðal fundarefnið var um 1 a g a-
s e t n i n g u m d ý r a v e r n d u n, og sýndist sitt hverjum.
Nefnd var kosin til aö íliuga málið, og verður álit hennar lagt
fyrir næsta fund. í nefndinni eru:
Eggert Claessen, yfirdómslögmaður,
Magnús Einarsson, dýralæknir, og
Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri.
Dýraverndarinn
hefur veriö sendur nokkrum mönnum víðsvegar á landinu.
Frá mörgum þeirra eru komnar pantanir á blaðjnu, og yfir-
leitt hefur því verið tekið mjög vel. Blaöið er þakklátt fyrir
þessar góðu viðtökur og hlýleg bréf, sem því hafa borist. Þeir,
sem fyrstir veröa aö greiða götu þess, valda miklu um fram-
tíð þess. — N ý i r útsölumenn ó s k a s t.
„DÝRAVERNDARIKF
kemur út fjórum sinnum á ári (16 síður hvert blað). Kostar 50 aura. —
Útsölumenn fá 20 pct. i sölulaun. — Borgist fyrir júlímánaðarlok.
Afgreiðslumaður: JÖH. ÖGM. ODDSSON, Laugaveg 63.
Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.
Ritstjóri: Jón Þórarinsson.
Prentsmiðjan Rún.