Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1927, Blaðsíða 6

Dýraverndarinn - 01.04.1927, Blaðsíða 6
2b DÝRAV erndarinn unum, stundum nokku'ö ömurlegt, en oítast draum- hýrt, ljúft og laöandi. Þá hefir og fjölradda klið- ur fuglanna borist að eyrum mjer mörgum stund- um. Mjer finst, sem þessar raddir, dauðar og lif- andi, flytji vitund minni málfar náttúrunnar. Og kensluna, sem þær raddir færa oss, hygg jeg holla og lærdómsríka mjer og öðrum. Sjálfsagt hafið þjer, prestur minn, átt einhvern kost hennar ekki síður en jeg og mínir likar. Sigurði hafði gefist litill kostur bókfræða, en rýningasamur var hann um alt, sem hann mátti heyrn nema, sjón festa eða hendi á koma af því tæi. Og ekki beitti hann bækur þær, er honum bár- ust, ætlunarlausu hugsanafáhni eða handahrifsi hirðuleysingjans. Hann fór með þær sem helgan hlut og las með þeirri gaumgæfni og festu, að heita mátti, að hann kynni flestar spjaldanna milli.---- Þegar við höfðum mælst við langa hrið og rætt um flest það úr átthögunum, sem okkur hugkvæmd- ist í það sinn, varð málhlje nokkura stund. En Sig- urður rauf þó þögnina á þessa leið: — Sástu nokkurn tíma hana Kápu mína? Jeg sagði honum, sem satt var, að jeg myndi ekki til þess. — Fyrst svo er, mælti hann, þá myndi ekki fjær lagi, að segja þér af henni en að þegja. Jeg ljet vel yfir því. Og hann hóf þegar söguna: — Það var eitt haustið, í skilarjettinni, að seld- ir voru ómerkingar og mýjetningar. Einn ómerk- inganna var mókápótt gimbrarlamb, þrýstið og bragðfrítt. -Jeg keypti lambið. Það tók ágætlega vetrarfóðrinu og varð um vorið vænsti gemlingur- inn minn. Sumarið eftir náði Kápa ágætum fram- förum, og mátti hún um haustið heita metfje. Vor- ið þar eftir var hún tvílembd og fæddi bæði lömb- in snildarlega vel. Þegar hjer var komið, hafði jeg látið til leiðast, að taka þann háttinn upp, eins og aðrir, að færa ekki frá. Gekk því Kápa með lömbin sin á fjalli og skilaði þeim vænum og gervilegum um haustið. Jeg tók eftir þvi, þegar Kápa var á annan vetur, að nokkuð hafði hún aðra háttu um sumt en hin- ar kindurnar. Hún var ærið hvatger, stygg alloft og fór sinu fratn um margt. Stundum fór hún fremst í rekstri, og var þá ekki ólíkt því, sem hún vildi ráða ferðinni. í annan tíma var háttur henn- ar sá, að dragnast öftust, vera seingeng og nærri þvi ólundarleg. í húsi hafði hún ýmsa kenja. Stund- um var hún inst i kró og fór siöust út. Annað veií- ið hafðist hún við fremst í húsi og fór fyrst út. Mjer kom i hug, að hún myndi eiga i sjer falið eitthvert forustueðli. En hvernig sem jeg virti háttu hennar fyrir mjer, gat jeg þó með engu móti skil- ið neitt það samhengi i þeim, er bera mætti vott um, að hún myndi verða fráræk. Þegar hún var á þriðja vetur, varð atferli henn- ar um flest mun ótviræðara. Þá kom berlega fram, að hún var aö verða forustuær. Hún fór alt af fyrst i rekstri, heinian og heim. En i húsi hafði hún svipaða háttu og veturinn áður. Þó var sá munur fyá þvi, er verið hafði fyrri veturinn, að nú sýnd- ist alt framar af setningi slegið hjá henni. Væri veður ekki tvisýnt, var hún fremst i krónni og þaut þegar út, er opnað var. En ævinlega beið hún, þangað til allar kindurnar voru komnar út. Þá lagði hún af stað, en leit þó eftir því, að hóp- urinn skipaði sjer á eftir henni. Væri veður aftur á móti óráðið eða tvísýnt, þá var hún ævinlega inst og gekk síðust til dyra, seint og treglega. En þeg- ar út kom, var eins og hún vildi koma skipulagi á hópinn og fór fyrst, en þó hægt og seinlega. Þar er skemst af að segja, að fjögra vetra var Kápa orðin sú fyrirmyndar forustuær, að jeg hefi aldrei neinu þvi liku kynst hjá nokkurri sauðkind, og slikt var álit allra þeirra, er kynni höfðu af henni, Og vitsmunir hennar sýndust mjer miklir og margháttaðir og þó eigi auðskildir ævinlega. Þjer mun þykja, sem jeg kveði óliklega að orði, láti jeg svo um mælt, að Kápa hafi verið ekki sist bústoðin mín, meðan hennar naut við. En satt er það þó. Löngum var hún í raun rjettri smalinn minn haust og vor, nema meðan burðurinn stóð yfir. Þá var móðurskyldan svo kröfufrek, að hún mátti engu sinna öðru en lömbunum sínum. En þegar lömbin hennar voru orðin hálfsmánaðar eða þriggja vikna gömul, tók hún að mestu leyti á sig umsjón kindanna. Og þeirri umsjón hennar gat jeg lengst um treyst, hvað sem í skarst. Það er mála sannast, að seint myndi hafa sótst lijá mjer, að korna upp hlöðukofunum í Seli og að gera mjer matjurtagarða, eða þá að færa heifn lækinn, sem rann fyrir vestan túnið, hefði Kápa ekki löngum sparað mjer spor og snúninga við kindurnar. Og hitt er jafn-satt, að ekki væri nú horfnar allar þúfurnar úr Selstúninu eða túnið teygt það

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.