Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.08.1932, Síða 6

Dýraverndarinn - 01.08.1932, Síða 6
34 DÝRAVERNDARINN Heimþrá dýra. ÞaÖ er oft æri'Ö torskilið hvernig sum dýr fá rat- aÖ aftur til fyrri heimkynna sinna. En torskildast verður það þó, þegar um ketti er að ræða, sem fluttir hafa verið um langa vegu í poka, er bundið var fyrir. Fuglinn, sem flýgur hátt uppi, fær þó ljósa hug- mynd urn landið, trippið skokkar ef til vill sömu leið til Ijaka og komið var með það, og hundurinn er gæddur þeim eiginleikum að geta rakið spor. — En kötturinn, sem fluttur er að heiman í þéttum poka, er ekki sér í gegnum? Hvaða máttur hjálpar hon- um til að rata aftur til fyrri heimkynna sinna, sem oft getur þó verið löng og torsótt leið ? Það var einhvern tíma um haustið 1930, að Isak- sen skipstjóri, sem heima á í nágrenni Ebberup, ók að heiman með konu sinni, og var ferðinni heitið til kunningjafólks þeirra, Pedersen, slátrara í Köng við Glamsbjerg. Mun láta nærri, að vegalengdin á rnilli þessara tveggja heimila sé um 2 milur danskar. Fluttu hjónin með sér í vagninum tvo ketti, móður og dóttur, og vóru mæðgurnar geymdar hvor í sín- um poka. Var kisa fjögurra ára og átti að vera á heimili slátrarahjónanna á meðan ketlingurinn, sem þangað var gefinn, væri að kynnast fólkinu og venj- ast í vistinni. En þrátt fyrir alla þá hlýju og nærgætni, sem kisu var sýnd á heimili slátrarans, leyndi sér ekki, að henni leiddist rnjög mikið og tæplega að hún fengizt til að neyta nokkurs matar þá átta daga, sem hún dvaldi þar. Og dag einn, er leiða átti belju, afar- miklu óhemju, út úr fjósinu til slátrunar, sá kisa sér tækifæri að flýja á burt með ketlinginn, og sá- ust þau ekki framar þar á staðnum. Liðu svo þrjár vikur að ekkert spurðist til kisu. Þá var það nóvembernótt eina áflíðandi óttu, a'Ö kona ísaksens skipstjóra vaknaði heima hjá sér við það, að köttur mjálmaði við útidyrahurðina. Og konan, sem alt af saknaði kisu sinnar, er verið hafði henni mjög vinveitt, þóttist þekkja hljóðið. Hjónin ruku fram úr rúminu, kveiktu ljós og opnuðu fyrir kisu, er svo var viti sínu fjær af feginleik, að þvi verður ekki með orðum lýst. Hún læddist á milli húsbænda sinna og nuggaði sér ánægjulega upp að þeim, og mat kærði hún sig ekki um fyrr en dálítið leið frá. Hjónin vóru fyrir sitt leyti svo gagntekin af því, að kisu skyldi hafa tekizt að komast þessa löngu og hættulegu leið heitn til sín, að það var þeg- ar ákveðið, að hún yrði aldrei framar látin að heiman. á milli þessara tveggja heimila eru engar beinar samgöngur, hvorki þjóðvegur eða járnbraut, sem kisa hefði getað haft stuðning af að fylgja. Enda var það álit húsbænda hennar, að hún hefði á heirn- leiðinni rækilega forðast hús og bæi, er hún var hrædd að koma í grend við vegna hunda, sem þar eru víðast hvar. Og menn gerðu sér í hugarlund, að flækingsrakki, á einum eða öðrum stað, hefði flæmt ketlinginn írá móður sinni, úr því hún náði aðeins ein að komast heim til sín. Það þarf varla að eíast um, að það hafi verið heimþráin, sem rak kisu áfram til þess að leita uppi sitt fyrra heimkynni. Alfrida Krarup. (Lauslcga snúið úr „Dyrevennen", blaði danska dýra- verndnnarfélagsins.) Vörður. Allir kannast við nafnið „Vörður“ af íhaldsmál- gagninu sáluga. Þess vegna vil eg taka það fram þegar í upphafi, að hann var af alt öðru bergi brot- inn en sá Vörður, er hér verður sagt frá. Það er móstrútóttur hundur og að mörgu ólíkur nafna sín- um. Þó komu báðir á vettvang um líkt leyti. Ann- ar bar nafnið af ]>ví, að hann átti að vera „vörð- ur laga og réttar“. En hinn af þvi, hvað fylgispak- ur hann var og er enn. Eg gæti gjarnán sagt írá mörgum atvikum, sem vel eru i frásögur færandi, um Vörð. En eftirfar- andi sögu læt eg nægja að sinni. Eg bjó þá á Eldjárnsstöðum í Blöndudal. Vörður var þá rúmlega ársgamall. Þannig hagar til á Eld- járnssstöðum, að túnið nær ofan á árbakkann við Blöndu. En fyrir sunnan og neðan túnið er hvamm- ur, sem venjulega er sleginn árlega. í þetta sinn var það að afstöðnum túnaslætti, að eg heyjaði hvamm þennan. Astmar litli sonur okkar hjónanna var þá á öðru ári. Var honum daglega lofað að vera hjá okkur í hvamminum við heyskapinn. Enda vóru þá einlægir þurkar og b'líðutið. Að íá-

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.