Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1940, Side 16

Dýraverndarinn - 01.04.1940, Side 16
28 D Y R A V E R N D A R I N N Vildi þakka hjálpina. Einhverju sinni var ma'ður á gangi úti í haga, segir í gamalli bók danskri, og sá hvar kýr ein æddi aftur og fram, baulaði mjög og bar sig illa. Og er hún kom auga á manninn virtist hún veröa alls hugar fegin. Hljóp til hans og baulaði nokk- urum sinnum, en fór þá sömu leiö og hún var kom- in og hann á eftir. Þótti honum atferli kýrinnar ærið kynlegt og vildi forvitnast um hverju gegna mundi. En kýrin hljóp að skurði nokkurum og horfSi ýmist niður í hann eSa á manninn. í skurð- inurn var kálfur lítt stálpaður og nær dauða en lífi af kulda. Ma'öurinn bjargaöi kálfinum og fór síöan leiöar sinnar. En kýrin tók aö sleikja barn sitt meö miklum fagnaöarlátum. Nokkurum dögurn síöar varö manninum reikaö um þessar slóöir og var þá kýrin þar á beit meö kálfi sínum og virtist hann nú hinn brattasti — Og er hún sér manninn, gengur hún í veg fyrir hann og er þá meö miklu gleöibragöi, þefar af honúm og sýnir ýms vináttu- merki. Talar hann nú við kúna og klappar henni, en hún gefur sér góöan tíma, stendur kyr og fer að jórtra. Þótti manninum auðsætt, aö kýrin haföi ver- iö aö „þakka fyrir síöast“, er hann bjargaði kálf- inum hennar úr skuröinum. — r Astasaga. Það var á sólbjörtum sumardegi, aö Gráni rann okkar gömlu vegi svo sporaléttur, því lund hans var míns insta fagnaðar endursvar. Eg hleypti dalinn svo dundi í klettum á hlemmiskeiði og hörðum sprettum, og fjörið geislaði af Grána brá, því sál hans lýsti mín leynda þrá. Við áðum snöggvast í lindarleyni viö bjarkarunnann hjá Banasteini. Þar brann til ösku mín æsta þrá. Eg heyrði úr kjarrinu hvíslast á. Og Gráni skildi ]rá kossakæti; meö höfði drúptu og höllum fæti, með úrug talandi augun sín: Eg veit hún situr þar vinan þín. DÝRAVERNDARINN kernur að minsta kosti á 11 a s i n n u m út á ári. Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er gefið út hér á landi. Argangur hans kostar að eins 3 krónur. Ætlunarverk Dýraverndarans er að vinna að upp- eldis- og menningarmáli allra þjóða, en það er sú siðbót, sem fram kemur í verndun málleysingja og miskunnsemi við munaðarlausa. Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og í honurn munu verða ritgerðir og sögur eftir ritfæra menn og merka. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góðra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt leitað liðsinnis kennara og ungmennafélaga um að kynna blaðið. Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar- anum, eða fleiri, fá 20% í sölulaun. Dýraverndunarfélag Islands. Eg steig á bak, en eg bað hann ekki um hýruspor eða hlaup; eg þekki svo Grána lund. Og eg gróf minn harm sem dýpst í léttíetans breiða barm. — Og Gráni eigrar heim engjaslóðann með hug minn dapran 0g dauðahljóðan á baki sínu. Það böl hans er, að skynja harminn í hjarta mér. Eg ríð í hlaðið. Við hliðið liggur minn' göngufélagi, hann gamli Tryggur; hann geyr eitt smábofs við Grána sinn, en setur hljóðan við svipinn minn. Pétur Benteinsson frá Grafardal. Munið að gjalddagi blaðsins er 1. júlí. Afgreiðslu og inheimtu „Dýraverndarans“ annast Hjörtur Hansson, Aðalstræti 18 (Uppsölum), 2. hæð, Pósthólf 566, Iteykjavík, og þangað eru menn vin- samlega beðnir að snúa sér með fyrirspurnir sínar, eða annað, sem við kemur blaðinu. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Utgefandi: Dýraverndunarfélag Islands. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.