Dýraverndarinn - 01.06.1976, Side 2

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Side 2
Fuglalíf á tjörninni A fundi u?nhverfismálaráðs Reykjavíkur 25. febrúar s. I. lagði garðyrkjustjórinn í Reykjavík fram skýrslu um Tjörnina og fuglalíf hennar á síðasta ári. í henni segir meðal annars: Alls sátu á Reykjavíkurtjörn 39 fuglategundir. Þar af tvær, sem ekki er vitað um, að hér hafi áður sést, þ. e. grágrípur og garðsöngvari. Fimm andartegundir urpu við Tjörnina, þ. e. stokkönd, gargönd, duggönd, skúfönd og æður. Gekk misjafnlega vel hjá tegundunum að koma ungunum upp og ætíð eru brögð að því að hreiðrum sé um- turnað og eggjum rænt. Allmikið kemst upp af ungum stokkandar og gargandi og æðarfuglinn kom á þessu sumri upp 25 ungum. Urtönd, húsönd, rauðhöfðaönd og skeiðönd eru að mestu horfnar frá Tjörninni, en rauðhöfðinn er þó viðloðandi að vetrinum. Kríuvarp heppnaðist all- vel og fundust alls 77 hreiður og skiptist varpið þannig milli varp- stöðva: Stóra-tjörn, stærri hólminn 61 hreiður Stóra-tjörn, minni hólminn 6 hreiður Syðsta tjörn, (Þor- finnstjörn) 10 hreiður Ur litla hólmanum komust engir ungar upp, en 10-12 ungar í „Þor- finnshólma" og 20-25 ungar í Stóra hólmanum, eða alls 30-37 ungar. Um 100 grágæsir hafa vetursetu við Reykjavíkurtjörn, en leggjast frá að sumrinu og verpa í upplandi borgarinnar. Um 10 svanir halda sig yfir vet- urinn á tjörninni, en verpa utan við borgina t. d. við Elliðaár, Elliðavatn og víðar. Aðeins tveir hnúðsvanir eru nú eftir af þeim stofni, sem gef- inn var frá Þýskalandi, og eru báðir karlfuglar. Á síðastliðnu vori voru gerðar umfangsmiklar lagfæringar á stóra tjarnarhólmanum og virðast þær hafa borið þann árangur, sem að var stefnt, þar sem aðeins fundust 13 kríuhreiður á tjarnarsvæðinu öllu 1974, en voru eins og að fram- an getur 77 á s. 1. sumri.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.