Dýraverndarinn - 01.06.1976, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Síða 10
Fundargerð S. D. í. Aðalfundur S. D. í. var settur í Tjarnarbúð sunnudaginn 7. desem- ber 1975 af formanni sambandsins Jórunni Sörensen. Fundarstjóri var kjörinn Marteinn Skaftfells og fundarritari Guðmundur Hannes- son. Formaður bauð alla fundar- menn velkomna. í kjörbréfanefnd voru kjörnir Hörður Zophoniasson, (form.), Alfheiður Guðmundsdóttir og Sig- rún Stefánsdóttir og var þeim falið að athuga kjörbréfin. Kjörbréfin voru lesin upp til að kanna þátt- töku. Formaður hóf síðan lestur starfs- skýrslu sambandsins. Skýrslan var einnig lögð fram á fundinum, fjöl- rituð. Gjaldkeri las upp reikninga og sagði frá rekstri Dýraverndar- ans. Síðan hófust umræður um skýrsluna og reikningana. Ásgeir Guðmundsson þakkaði Jórunni Sörensen fyrir afburða starf og óskaði henni einnig til hamingju með heiðursorðuna. Þorsteinn Einarsson óskaði Jór- unni einnig til hamingju með veitta viðurkenningu. Hann þakk- aði einnig útgáfustarfsemi Dýra- verndarans. Þorsteinn er fulltrúi S. D. í. í fuglafriðunarnefnd ríkisins og ræddi hann um starf nefndar- innar. Þórður Þórðarson mælti nokkur orð um starf sambandsins og þá miklu vinnu sem þar liggur á bak við. Hann óskaði félaginu þess að fleira ungt fólk legði félaginu lið því allt byggðist á eðlilegri endur- nýjun virkra félaga. Jóhann Sveinsson sagði frá ferð sinni um landið s. 1. sumar og tal- aði um að vaðfuglar lifðu víða ekki lengur eðlilegu lífi, vegna framræslu og þurrkunar landsins. Mennirnir rifu lífkeðju dýranna. Eyþór Erlendsson sagði að dýrin væru algjörlega háð manninum og honum undirorpin. Allar lífverur eiga sinn rétt á jörðinni. Sérstak- lega minntist hann á kettina og réttleysi þeirra t. d. hér í borginni. Ásgeir Einarsson talaði um dýra- spítalann og vonaði að dýrahjúkr- unarkona kæmi til starfa næsta haust og að dýralæknir fengist til starfa við spítalann. Einnig talaði Ásgeir um P.-pilluna við fækkun flækingskatta, og mávapláguna, sem landsmenn ættu sök á sjálfir. Ásgeir talaði um vandamálin í sambandi við selina, og ómannúð- legt dráp hans og hvernig best væri að fækka honum á sem mannúð- legastan hátt. Hilmar Norðfjörð talaði um fjáröflunarleiðir og óskaði form. til hamingju með veitta viðurkenn- ingu. Erlingur Þorsteinsson talaði um Sólskríkjusjóðinn sem móðir hans stofnaði til minningar um föður hans Þorstein Erlingsson. Aðaltekj- ur hans hafa verið í sambandi við sölu jólakorta og nú hefur silfur- merki verið gefið út aftur. Nokkrar umræður urðu um snjó- tittlingana og nauðsyn þess að gefa þeim þar sem kettir næðu ekki til þeirra. Miklar umræður urðu um úti- gang hrossa og þá þjóðarskömm sem hann er. Og hvernig mætti bæta þar um. í þeim umræðum tóku þátt Ásgeir Einarsson, Ófeig- ur Ófeigsson, Bergljót Guðmunds- dóttir o. fl. í forföllum formanns Hunda- vinafélagi íslands flutti Guðmund- ur Hannesson skýrslu Hundavina- félagsins. Þá flutti Gunnar Péturs- son skýrslu Dýraverndunarfélags Reykjavíkur. Ásgeir Guðmundsson minntist á háhyrningana og með- ferðina á þeim og talaði einnig um nauðsyn þess að allir dýravinir stæðu saman. Eftir að umræðum var lokið svaraði formaður ýmsum fyrir- spurnum. Formaður skýrði frá því að Jó- hann Sveinsson hefði á þessum að- alfundi gefið 50 þús. krónur til sambandsins, og var Jóhanni þakk- að innilega. Einnig gat formaður nýrra fjáröflunarleiða og sagði að í ráði væri að halda bílhappdrættt með vorinu. Næst lá fyrir kosning stjórnar og var Jórunn Sörensen endurkjör- in sem formaður sambandsins með lófataki. Ennfremur voru kjörnir með lófataki eftirtaldir menn sem með- stjórnendur: Gunnar Steinsson, Ól- afur Jónsson, Hilmar Norðfjörð, Gauti Hannesson, Sigurður Jóns- son og Kristleifur Einarsson. 10 dýraverndarinn

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.