Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 11
Lög S. D. I
1. gr.
Sambandið heitir Samband dýra-
verndunarfélaga íslands, skamm-
stafað S. D. í. Varnarþing þess er í
Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur sambandsins er:
1. að sameina öll félög, sem vinna
að verndun dýra, svo og þá ein-
staklinga, sem búsettir eru þar,
sem sérstakt dýraverndunarfélag
er ekki starfandi.
2. að koma fram gagnvart opin-
berum aðilum varðandi dýra-
vernd.
3. að hafa afskipti af málum, sem
varða dýr og velferð þeirra.
4. að stuðla að aukinni náttúru-
vernd.
Þessum tilgangi vill sambandið
ná með því að:
a) halda úti riti til fræðslu og
hvatningar um dýraverndun.
b) kynna almenningi dýravernd-
un í blöðum, erindum og með
kvikmyndasýningum eða á annan
þann hátt, sem við verður komið.
c) vinna að stofnun dýravernd-
unarfélaga.
d) Styðja starfsemi félaga, skóla
og einstaklinga, sem vilja vinna að
dýravernd og náttúruvernd.
3. gr.
Sambandsaðilar geta orðið starf-
andi dýraverndunarfélög, sem í eru
hið fæsta 5 félagar, svo og ein-
staklingar, sem búa í þeim byggð-
arlögum, þar sem dýraverndunar-
félög eru ekki starfandi.
4. gr.
Félög skulu ekki greiða skatt til
sambandsins, en hver félagi skal
skyldugur að vera áskrifandi að
riti þess, en þó skal ekki fjölskylda
skuldbundin til að kaupa nema eitt
eintak.
Einstaklingar, sem eru ófélags-
bundnir, skulu greiða árstillag til
sambandsins, sem ákveðið er á
hverjum aðalfundi. Dýraverndunar-
félög skulu undanþegin kaup-
skyldu, en hins vegar skulu félagar
þeirra skyldir að vinna að út-
breiðslu blaðsins.
5. gr.
Hverjum félaga sambandsins er
skylt að vera á verði um það, að
haldin séu lög og reglugerðir um
dýravernd og náttúrufriðun.
6. gr.
Sambandið skal láta í té þeim,
sem stofna vilja dýraverndunarfé-
lög, fyrirmynd að lögum.
Þegar stjórn sambandsins hefur
borist tilkynning um stofnun og
stjórn dýraverndunarfélags og sam-
þykkt lög þess, er félagið orðið
lögmætur aðili að sambandinu.
Árlega fyrir septemberlok skulu
stjórnir sambandsfélaga hafa sent
skrá yfir nöfn og heimilisföng
félaga sinna, svo og frásögn um
störf sín.
7. gr.
Reikningsár sambandsins er frá
1. sept. til 31. ágúst.
Áskriftargjöld að riti sambands-
ins falla í gjalddaga 1. júlí ár hvert.
Varamenn: Paula Sörensen, Skúli
Ólafsson, Gunnlaugur Skúlason og
Álfheiður Guðmundsdóttir.
Endurskoðendur: Þórður Þórðar-
son og Magnús Þorleifsson.
Undir liðnum önnur mál komu
frarn ýmsar tillögur og ályktanir
urn meðferð katta og athugun á því
að koma málefnum dýraverndunar-
tnanna á framfæri í skólum Iands-
ins. Þær tillögur komu frá Dýra-
verndunarfélagi Reykjavíkur.
Marteinn Skaftfells kom fram
með ýmsar fyrirspurnir um Dag
dýranna og ályktanir í sambandi
við hann, einnig um dýraspítalann.
Formaður bar upp þá tillögu að
aðalfundurinn samþykkti að gera
Hans Hvass, formann fyrir Foren-
ingen til dyrenes beskyttelse i Dan-
mark, að heiðursfélaga S. D. í. Hans
Hvass hefur um langt árabil verið
fulltrúi íslands á fundum erlendis
um dýraverndunarmál og hefur
ætíð sýnt sambandinu mikinn vel-
vilja og hjálp. Tillaga þessi var
samþykkt í einu hljóði.
Að lokum þakkaði formaður
fundarmönnum komuna. Síðan var
fundi slitið.
dýraverndarinn
11