Dýraverndarinn - 01.06.1976, Qupperneq 18
bólgu væri að ræða, því að ærin
virtist vera með mikinn hita og
ekkert vildi hún éta. - Var farið
með uilarteppi o. fl. til þess að
skýla ánni fyrir næturkuldanum og
börn Jóns reyndu að reita gras
handa sjúklingnum, en allt kom
fyrir ekki, ánni batnaði ekki. -
Þá var það að Jóni datt í hug að
nota talstöðina til hjálpar, því að
enginn var síminn.
Eftirfarandi samtal fór fram á
öldum ijósvakans eitthvað á þessa
leið:
„Halló, Gufunes, Gufunes. Land-
mannalaugar kalla. Gufunes, heyrið
þið til mín? Skipti."
„Já, Gufunes hér, Landmanna-
laugar, já ég heyri, hlusta. Skipti."
„Já, Gufunes, Gufunes, Land-
mannalaugar kalla. Já, það er hérna
lambær frá Skarði á Landi, líklega
veik af lungnabólgu, þarf meðöl.
Gætir þú komið boðum til Guðna
á Skarði um þetta. Ær veik - lík-
lega lungnabólga. Hefur þú þetta?
Skipti."
„Halló, Landmannalaugar. Já, ég
hef þetta, líklega lungnabólga, þarf
meðöl send til ykkar. Skal koma
þessum boðum, nokkuð fleira? -
Skipti."
„Já, Gufunes, Gufunes. Land-
mannalaugar svara. Þakka þér fyrir;
nei, ekkert annað, bless. Skipti."
„Halló, Landmannaiaugar, ég
heyrði þetta, bless. Farinn."
Þetta samtal minnti vissulega á
þá sögu í þjóðsögunum, þegar
skessurnar kölluðust á, á milli fjall-
anna: „Systir, ljáðu mér pott."
„Hvað vilt þú með hann?"
„Sjóða í honum mann."
„Hver er hann?"
„Gissur á Botnum - Gissur á
Lækjarbotnum."
Um kvöldið kom heimasætan á
Skarði í jeppabíl með meðölin og
lungnabólgusjúklingurinn fékk
stóra sprautu af penisilíni eða
sulfa. Og daginn eftir var ærin
strax orðin betri. Þótt mjög væri
hún máttfarin. Börnin reittu og
báru að henni grænt grasið af bökk-
um Laugalækjarins og svo eftir
nokkra daga virtist hún nokkurn-
vegin jafngóð orðin, þótt hætt sé
við að lítið hafi hún mjólkað lömb-
um sínum það sem eftir lifði sum-
arsins.
Hefði ærin fengið þennan sjúk-
dóm einhvers staðar lengra inn á
afréttinum, er hætt við að hún hefði
borið beinin þar, en þarna komst
að hin nýja tækni í talsamböndum
og bjargaði lífi kindarinnar frá
Skarði.
Gauti Hannesson.
HUNDA Sérverzlun fyrir heimiiisdýr KETTI
NAGGRÍSI HAMSTUR
STOFUFUGLA SKRAUTFISKA
og fleiri dýr.
Gnllfishabiiðiii
Skóiavörðustíg 7 - Pósthólf 5248 - Reykjavík - Talsími 11757
18
DÝRAVERNDARINN