Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Qupperneq 20

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Qupperneq 20
brot á dýraverndunarlögunum, að menn hafi ekki hús yfir þau dýr, sem þeir eiga, eða hafa undir hönd- um, og bera þar með ábyrgð á. Þá vill félagið hvetja allt gott fólk sem áhuga hefur á velferð dýr- anna, að bæta lífsskilyrði þessara „málleysingja" sem ekki hafa tök á því, að gera kröfur til okkar mannanna. Ennfremur er það ósk félagsins, að sem flestir gangi í fé- lagið, og vill m. a. benda á, að börn innan 12 ára aldurs þurfa ekki að greiða nein félagsgjöld til þess. Að lokum vill félagið þakka öll- um þeim mörgu sem á margvísleg- an hátt sýna dýrum og fuglum til- litssemi, gefa þeim fæðu og hlúa að þeim á ýmsan hátt, sem sýnir kærleika þess fólks, til þeirra sem minnimáttar eru og skapa mönn- unum ánægju. Fréttatilkynning. Þá höfum við í félaginu sent eft- irfarandi til birtingar í blöðum bæjarins, sem við vonum að þau birti. „Okumenn og aðrir vegfarend- ur akið gætilega þegar þér sjáið skepnu á veginum framundan". Dýraverndunarfélag Akureyrar. „Vegfarendur athugið, að lömb- in sækja mikið að vegunum, og meðan þau ekki hafa vanist um- ferðinni grípur þau hræðsla við hávaða í ökutæki og hlaupa þá oft upp á veginn, því er nauðsynlegt að hægja ferðina og gæta fyllstu varkárni". Dýraverndunarfélag Akureyrar. „Ökumenn athugið að séu hross á veginum framundan og þér hald- ið óbreyttri ferð, hlaupa þau undan Forsíðumyndin Maríuerla. - Karlfuglinn er hér að koma út úr hreiðrinu eftir að hafa mettað ungana á skordýrum. Nokkr- ir unganna sjást með opinn gogg- inn, tákn um, að þeir gcetu þegið meiri mat. — Bceði karl- og kven- fuglinn mata ungana samtímis. Hér var kvenfuglinn greinilega dug- legri við fceðuöflun og kom tölu- vert oftar, og alltaf var það hún, sem tók með sér saurpokann frá ungunum, til að halda hreiðrinu hreinu. Þann vikutíma, sem ég fylgdist með þessu hreiðri og búskapnum þar, kynntist ég ýmsum persónu- legurn háttum þessara einstaklinga, en fuglar sömu tegundar geta ver- ið mjög msimunandi, persónulega séð. - Háttalag og sérhyggja er á ýmsan veg meðal fugla, ekki stður en manna, og náin kynni geta ver- ið ákaflega fróðleg. - Margs má verða vísari, þegar fuglar eru at- hugaðir náið í lengri tíma og svo var einnig hér. — Um þessi kynni mcetti rita langa sögu, en þessi fáu orð til að fylgja forsíðumyndinni verða að nœgja í þetta sinn. Hjálmar Bárðarson. ökutækinu eftir veginum, en ef þér dragið úr ferðinni eða stopp- ið augnablik, þá átta þau sig á, að hlaupa út af veginum". Dýraverndunarfélag Akureyrar. „Góðir samborgarar. Verum öll samtaka í því, að hlúa að og sýna dýrum og fuglum fyllstu nærgætni og umönnun". Dýraverndunarfélag Akureyrar. Fróðleiksmolar Ung íslensk stúlka er við nám í dýrahjúkrun í Englandi. Hún mun Ijúka námi í júní. Hún sendi Dýra- verndaranum nokkrar glefsur af ýmsu því er dýravinir í Englandi leita ráða um og vonandi verður það lesendum Dýraverndarans til gagns og ánægju. — pillan „OVARID" er notuð til að gera tíkur ófrjóar. — ef einhver hefur í umsjá sinni uglu, eða hrafn, eða eitthvað af þessum stærri fuglum á að gefa þeim hrátt kjöt blandað örlítið með bómul eða mjúku hænsna- fiðri, til þess að gefa fuglinum eitthvað sem er gott fyrir melt- inguna. — eða ef kisan eða hundurinn er lystarlaus er gott að setja GLU- COSE (sem ætti að fást í apó- tekum) í vatnsskálina. Magn: 1—2 teskeiðar í skálina. — GLUCOSE er líka gott ef um uppköst er að ræða. Þá skal notað ÍSKALT vatn -j- GLU- COSE. Leiðrétting í síðasta blaði var grein um köttinn Bröndu eftir Sigríði Steff- ensen. - Vísa um Bröndu átti að fylgja með, en féll niður. Hún er svona: Sólin skín á skykkju þína, skrautlega ofna fögrum röndum, við erum tvær í trega og gleði, tengdar föstum ástarböndum. Höfundur er beðinn velvirðing- ar á þessum mistökum. 20 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.