Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 21

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 21
Föndurhornið SVARTBAKURINN eða veiðibjallan, eins og þessi fugl er stundum kallaður, er að verða einn algengasti sundfugl hér á landi. - Honum hefur fjölgað mjög á síðari árum og má segja að svart- bakurinn hafi verið „höfuðverkur" þingmanna okkar á Alþingi und- anfarið, því að erfiðlega hefur gengið að semja lög, sem stuðluðu að fækkun hans, svo að gagni kæmi. - En fugl þessi er fallegur, hraustur og harðgerður og ágætur flugfugl. Við skulum saga svartbakinn út úr 5 mm krossvið, helst birki. Álita- mál er, hvort við eigum að saga burtu stikkið milli fóta hans, en ef það er gert, verður að fara varlega, svo að ekki Itrotni fótleggirnir. Reynið að teikna á bakhlið hans sömu liti og eru á framhliðinni, þ. e. a. s. bakið svart og vængur einnig að mestu leyti. Smíðið hæfi- lega stóran pall undir fuglinn og þá úr aðeins þykkra efni eða 6 mm krossviði. - Málið þúfuna, sem svartbakurinn stendur á, gulgræna, en pallinn grasgrænan. Lakkið með þunnu, glæru lakki. G. H. ÖÝRAVERNDARINN 21

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.