Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 22

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 22
Fuglarnir okkar Nú hefst í blaðinu nýr flokkur greina um íslenska fugla. Þær eru teknar úr Fuglabók Ferðafélags ís- lands, eftir Magnús Björnsson, sem gefin var út 1939 og mun nú lík- lega vera illfáanleg, a. m. k. ekki í hvers manns eigu og er það því von okkar að nokkur fengur þyki í því að fá þessar greinar, en þær eru bæði fróðlegar og skemmtilegar og mjög vel skrifaðar. Byrjað verður á spörvaœttbálkin- um og má þar fyrst frægan telja, hrafninn. SPÖRVAÆTTBÁLKURINN (Passeriformes) Hrafninn (Corvus corax, L.jé Fyrst skal frægan telja. Krumma gamla þekkja flestir og ekki allir að góðu. Því fer fjarri, að hann sé „ljótr og svartr". Hann er fallega gljáandi svartur, en stálblá og fjólu- lituð sJikja er aftan á höfðinu, á hálsinum og niður á herðar. Hann er staðfugl og fellur því oft í harð- indum. Hann kann þó fugla best að bjarga sér, því að hann er alœta. Eru lifnaðarhættir hans í því efni alkunnir. Hrafninn verður kynþroska, þeg- 1 Islenski hrafninn er í sumu frá- brugðinn hröfnum í nágrannalöndun- um og er því sérstök undirtegund (sub- species), en menn eru enn eigi á eitt sáttir, hvernig skuli nefna hann, - kenna hann við Island (islandicus) eða á annan hátt. ar hann er tvævetur. Hjónin halda tryggð hvort við annað ævilangt. Fjölskyldurnar halda hópinn langt fram á vetur og sundrast stundum ekki fyrr en líður að næsta varp- tíma. Hann verpur oftast um sum- armál og á að jafnaði 5 egg. Hrafn- inn liggur á eggjum hátt á fjórðu viku (21-24 daga). Ungarnir eru skemmst 6-7 vikur í hreiðrinu, og verða foreldrarnir að fæða þá á meðan og oft lengur. Hreiðrin eru stórar dyngjur (laupar) úr ým- is háttar rusli, þangi, hrísi o. fl., en mýkra er undir eggjunum, t. d. gras eða mosi eða ann- að, sem nærtækt hefir verið. Hann verpur oftast á klettasyllum í gljúfrabörmum, sjávarhömrum eða á hraunnybbum og borgum. Sjald- an er hann mjög langt frá sjó, því að þar er að jafnaði verra til fanga. Hann er glysgjarn og ber ýmsa annarlega hluti í hreiðrin af þeim sökum. Hrafninn er bráðskynsamur fugl, auðtaminn en þjófgefinn, stríðinn og óþekkur oft og tíðum. Hann er hin mesta hermikráka og hefir hljóð úr hverju kvikindi í ná- grenni við hann, jarmar, geltir, mjálmar o. s. frv. Hrafninn er talinn langlífur, en hér nær hann sjaldan háum aldri vegna ófriðar af manna völdum. Hrafnsungar, sem merktir hafa verið hér s.l. 5-6 ár, hafa flestir verið drepnir, áður en þeir voru orðnir þriggja vetra. 22 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.