Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Blaðsíða 23

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Blaðsíða 23
Einkenni: Stór, alsvartur, með stinnar hár- eða burstkenndar fjaðrir ofan á nefinu, sem hylja nasaholurnar. Flýgur vel og leikur ýmsar listir á flugi, einkum á vorin og framan af sumri. Röddin breyti- leg, krunk, klong o. s. frv. Heimkynni. Hrafnar eiga heima í flestum löndum, þó eru þeir ekki til á New Zealand, eða á Kyrrahafs- eyjum víðast hvar. Þeir eru heldur ekki til á Madagacar, í Suður- Ameríku eða Antillueyjum hinum minni. (Stærð:1 1. 360-710, v. 423-450, n. 72-80, fl. 71-73 mm. (Hantzsch). BLÁHRAFN (Corvus frugile- gus frugilegus, L.). Erlendur haust- og vetrargestur hér á landi, einkum sunnanlands. Hann er svipaður ís- lenska hrafninum á vöxt og lit, en mun minni og öllu grannvaxnari. Það eru sérkenni á þessum hrafni, að hann sýnist oft vera hvítblesótt- ur við nefrótina, sem stafar af því, að fiðurburstirnar, sem hylja nasa- holurnar, falla af, þegar bláhrafninn er veturgamall eða eldri og sér í bera húðina fyrir ofan nefið. Bláhrafninn er minni alæta en íslenski hrafninn. Skordýr, ormar og ýmis háttar önnur smádýr eru aðalfæða hans, og er hann víða tal- inn fremur vera nytjafugl en hitt. Þó bregður honum allmjög til sinnar ættar, ef hart gerist í ári. Hann ílendist hér aldrei. KRÁKA (Corvus cornix, L.) er einnig nefnd Færeyjahrafn og kem- ur hingað oft eins og bláhrafninn og á sömu tímum árs. Krákan er auðþekkt frá öðrum hröfnum á því, að hún er gráskjótt á litinn. Höf- uðið, hálsinn ljósgrár, og eru lita- 1 1. = lengd, v. = vængur, n. = nef, fl. = fótleggur. DÝRAVERNDARINN mörkin allglögg og áberandi. Krák- an er minni en íslenski hrafninn, en stærri en bláhrafninn. Krákan er víðast hvar illa þokk- uð, enda er hún hinn argasti eggja- þjófur og ungamorðingi. Fer hún yfir í hópum og gerir því mikinn usla, þar sem hún er. Hún hefir ekki ílenst hér ennþá, enda er lít- ili fengur í henni. Erlendis eru krákur og bláhrafnar skotin til manneldis og talin vera sæmileg- asti matur. STARI (Sturnus vulgaris, sub- sp. [?]). Haust- og vetrargestur hér á landi eins og bláhrafninn og krák- an, en öllu algengari, einkum sunn- anlands og austan. Koma þessir fuglar líklegast frá nágrannalönd- um okkar austanhafs, þ. e. frá Norð- urlöndum og Bretlandseyjum(P) og sjást hér helst eftir undanfarin aust- an- og suðaustan-stórviðri. Starinn er á stærð við skógar- þröst, en að öðru leyti ekki líkur honum i vexti, t. d. hefir starinn hlutfallslega miklu styttra stél, og er það áberandi á fiugi. I vetrarbúningi er starinn dökk- móbrúnn eða svartur (eftir aldri og Þessi stari er taminn og er kallaður „Títla". Hún er aS öllu leyti mjög merkilegur fugl, — kann m. a. aS segja nafnið sitt. Sagt verður nánar frá Títlu í blaðinu síðar. kynferði), með þéttum, ljósum dröfnum, hvítum eða ljós-móleit- um. Auk þess slær víða grænleitri, purpuralitri og blárri málmslikju á fiðrið hér og þar, einkum á höfði, baki og á hliðunum. Nefið er mó- leitt og fæturnir rauðleitir. Sumarbúningurinn er mjög skrautlegur. Dröfnurnar eru horfn- ar. Litirnir hreinni og skýrari og málmgljáinn á fiðrinu mjög áber- andi. Nefið er þá gult. Á haustin fær hann á sig dröfnurnar á þann hátt, að þá lýsast fiðurþökurnar í oddinn, þannig að á bringu, kviði og á hliðunum verða fjaðraoddarnir hvítir, en ljós-móleitir á höfði og baki. Á vorin detta þessir ljósu odd- ar af fjöðrunum, og er hann þá korninn í sumarfötin. Starinn er félagslyndur fugl og sést oftast í smáhópum, sem eru fremur ókyrrir. Þar, sem þeir eru að leita sér fæðu, hoppa þeir til og frá, líkt og hrafnar gera stunduin, eða fljúga skyndilega upp og setjast þegar aftur. Hér er starinn oftast þögull, en annars er honum það ekki lagið. Hann hefir heldur þægi- lega rödd og er auk þess mikil hermikráka. Hann verpur hér að líkindum sunnanlands, endrum og eins. Eggin eru 5-7, einlit, ljósblá. Hann verpur helst í holum, á inisa- þökum, útihúsum o. v. Hann er að- allega skordýra- og ormaæta. (Nú mun starinn orðinn hér miklu algengari en þegar þessi bók er rituð, og er það vel því hann er einstaklega fjörugur og skemmti- legur fugl, sem gaman er að veita athygli.) AUÐNUTITTLINGURINN (Carduelis flammea (L), subsp.P) í sumarbúningi er hann dökkur, svart-móleitur á baki, en all ljós á 23

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.