Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Qupperneq 27

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Qupperneq 27
vængirnir. Fjórar fremstu flugfjaðr- irnar eru jafnlangar, en sneitt fram- an af 2., 3. og 4. flugfjöður, og nemur sneiðingurinn allt að V-S af lengd fjaðrarinnar. Ungarnir eru dekkri á baki og gulleitari á kviði. Vængþökurnar eru með ljósum jöðrum, og er það áberandi, þegar hann leggur saman vængina. Klóin á afturtánni er löng og lengri en táin sjálf. Ystu stélfjaðrirnar eru hvítfjaðraðar. Fyrir ofan augað er ljós rák á augabrúninni. Hann velur sér varpsvæði snemma á vorin, oft þegar í byrjun maí, og fer þá að syngja og ver öðr- um sinnar tegundar sitt heimaland. Syngur hann mjög í tilhugalífinu og út allan varptímann. Mest syng- ur hann á flugi og leikur þá ýmsar fluglistir. Varptíminn byrjar oft í maílok og nær að jafnaði fram eft- ir júní. Það kemur fyrir, að hann verpur tvisvar á sumri. Hreiðrið er ofið saman úr sinu og stráum og fóðrað innan oftast nær með þurr- um mosa. Það er ekki eins haglega gert og sumra annarra smáfugla, en það er vel falið í grasi eða sinu ut- an í þúfnakollum eða í götuskorn- ingum, og er grasið oftast vafið í skúf yfir það eins og þak, en dyrn- ar eru til hliðar og ber eigi mikið á þeim. Eggin eru 5-6 eða fleiri, dökk móleit á lit. Kvenfuglinn ligg- ur að mestu einn á eggjunum, en bæði foreldrarnir hjálpast við að afla fæðu og mata ungana. Karl- fuglinn heldur vörð, meðan frúin bggur á, og syngur hann þá mikið. Útungunartíminn er 13 dagar, og fara ungarnir úr hreiðrinu, þegar þeir eru 10-14 daga gamlir og oftast áður en þeir eru vel fleygir. Þúfutittlingarnir fara að sýna á sér ferðasnið, úr því að komið er að úgústmánaðarlokum, og eru þá flestir komnir í grennd við sjávar- DÝRAVEKNDARINN síðuna, en þó fara þeir ekki strax, oft ekki fyrr en í septemberlok. Smyrillinn eltir þá mjög á haustin, áður en þeir fara héðan, og tekur oft af þeim ómakið að fljúga suð- ur um höf, því að þeir eru aðalfæða hans. Þúfutittlingurinn er orma- og skordýraæta aðallega, en getur þó brugðið fyrir sig að éta jurtafæðu, ef ekki er annað að fá. Hann er heldur minni en maríuerlan. Heimkynni erlendis. Þúfutitt- lingurinn er algengur í hinum norðlægari löndum Norðurálfu, en upp til fjalla hittist hann víðast hvar þótt sunnar sé, allt suður að Miðjarðarhafi. Hann fer á vetrum suður til Norður-Afríku o. v. (Stærð: 1. 145-160 mm, v. um 80 mm, n. 10,5—11,5 mm, fl. 19,5- 21 mm. Þyngd um 17,5-21,5 gr.) SKÓGARÞRÖSTURINN (Turdus musicus coburni, Sharpe) Skógarþrösturinn er algengur víðast hvar í skóg- og kjarrlendi á sumrin, en vor og haust er hann algengur víða við sjávarsíðuna, þar sem helst er æti að fá. Hann er far- fugl að mestu hérlendis. Kemur snemma á vorin, oftast um miðjan marsmánuð, og fer oft ekki fyrr en eftir veturnætur. í mildum vetrum er hann hér oft ílendur allt árið, einkum sunnanlands. íslenski skógarþrösturinn er að mestu mógiár á baki og vængjum, en aftari flugfjaðrirnar eru með gráleitum jöðrum. Framan á hálsi og bringu er hann með áberandi dökkum, mó-svörtum dröfnum, en mjög ljós eða hvítleitur á kviði. Yfir augunum er hvít rák. Neðan á vængjunum er hann rauð-móleit- ur og eins á síðunum. Kynferðis- munur er lítill, karlfuglinn aðeins stærri. Snemma á vorin velur hann sér varpstað og ver öðrum þröstum all- stóra landareign. Hreiður gerir hann sér inni í þéttum runnum, oftast í krika milli greina, en það kemur fyrir, að hreiðrið er á jafn- sléttu. Hreiðrið er allstórt, en laus- lega ofið saman úr stráum úr ull og hárum. Aðalvarptíminn er frá miðjum maí, ef það vorar sæmi- lega, og fram í júní. Það kemur fyr- ir, að hann verpur tvisvar á sumri, og lengist þá varptíminn fram eftir júlí eða lengur. Eggin eru að jafnaði 5-7, alldökk, græn-móleit. Útungunartíminn er um 14-15 dagar, og annast kvenfuglinn það starf að mestu. Þegar eggin eru orð- in vel unguð, liggur hún allfast á og flýgur ekki af hreiðrinu fyrr en mjög er að henni þrengt. Ungarnir fara úr hreiðrinu, áður en þeir eru fullfiðraðir, hlaupa þeir allvel og eru slungir í því að fela sig í kjörr- unum, en fljúga ekki, þótt fleygir séu orðnir, fyrr en þeir mega til að forða sér úr bráðri hættu. Þeir eru venjulega um 10-14 daga, þegar þeir fara úr hreiðrunum. Á síðari árum hafa þrestirnir tekið upp þann sið að verpa við og við í görð- um og runnum í einstaka bæjum og kauptúnum, t. d. í Reykjavík, og væri eflaust auðvelt að fá þá til þess að verpa í hreiðurkassa, en vegna kattamergðarinnar alls staðar er naumast hvetjandi til þess að hæna þá að mannabústöðum. Fjölskyld- 27

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.