Alþýðumaðurinn - 27.01.1966, Síða 8
Ertu með eða móti neyzlu áfengs
íórs á
bí
MHEFIR hér umræður um sterka bjórinn, en eins og kunn-
ugt er hefir enn á ný verið lagt fram bjórfrumvarp á lög-
gjafarþingi okkar. Það er kannski tómt mál að ræða þessa hluti
þar sem áfengislöggjöf okkar virði^t vera eitt allsherjar lekahrip,
og þó ekki. Arnfinnur Amfinnsson, einn af ötulustu bindindis-
mönnum Akureyrar „startar“ umræðum, en í næsta blaði munið
þið heyra skoðanir Harðar Adólfssonar Qg Jóns R. Thoraren-
sen o. etv. fl. Nú gefum við Amfinni orðið, en yfirskrift hans er:
ÞAÐ ERU ENGIN RÖK TIL FYRIR NAUÐSYN A NEYZLU
ÁFENGIS NÉ TÓBAKS.
í
Ég er alveg andstæður því að
farið verði að framleiða og selja
áfengan bjór. Reynsla okkar af
áfengi og almennri meðferð
þess mælir eindregið á móti því
og ég vona að allir menn með
óbrenglaða skynsemi leggist á
móti þessu með það í huga að
grafa engann slíkan brunn,
enda þarf þá ekkert að byi’gja.
Ég þekki það mikið til áfeng-
is og neyzlu þess, að bjór og
ekki sízt áfengur er mjög æski-
legur til að friða sig fyrir timb-
urmönnum og er þá hægur
vandi að halda drykkjunni
áfram. Mundi þetta gefa mönn-
um tækifæri til þess að vera
undir áfengisáhrifum vikum
saman og mundi þetta verða til
þess að skapa stóran hóp dag-
drykkj umanna en af þeim er
orðið meira en nóg.
Og hvernig er það, er reiknað
með því að fyrsta tillagan frá
Landssambandinu gegn um
ferðaslysum verði sú, að heimta
Vasjúkof kemur
¥Y Ú SSNESKI skákmeistarinn
Vasjúkof mun koma hingað
norður um helgina og þreyta
skák við norðlezka skákmenn,
en eins og kunnugt er hefir
Vasjúkof teflt á Reykjavíkur-
mótinu í skák. Vasjúkof mun
tefla klukkuskák við 10 til 12
meistaraflokksmenn á laugar-
dag, en á sunnudag teflir hann
fjöltefli, og er öllum heimil þátt
taka. Teflt verður í Lands-
bankasalnum.
Eigi er að efa að skákunnend-
ur þyki Vasjúkof góður gestur.
“S
Þorri allkaldur
Svarfaðardal 25. jan. E. J.
HÉR HEFIR verið kalt í veðri
að undanfömu, en ekki er
hægt að segja að snjóað hafi
mikið og eru vegir enn sæmi-
lega færir a. m. k. jeppum og
stærri bílum. Annars er hér lít-
ið um stórtíðindi.
Nokkrir ungir menn úr sveit
inni hafa farið að heiman nú
eftir áramótin á vertíð syðra.
framleiðslu og sölu á áfengum
bjór.
Nei, bjórinn -yrði til þess að
auka slysahættuna að miklum
mun. Og það virðist ganga nógu
Amfinnúr Amfinnsson.
erfiðlega að ná þeim mönnum,
sem hafa neitt áfengis í veizlu-
partíum og öðru slíku og aka
síðan allar götur án þess að hafa
áhyggjur af því að dauðinn held
ur um stýrið.
Svo er það áfengisneyzla unga
fólksins. Það er hætt við því að
aldur þeirra sem neyta áfengis
mundi enn lækka og held ég þó
að flestum sé farið að renna
drykkjuskapur æskunnar til
rifja. En þetta mun ekki hvað
sízt hugsað þannig að komast að
vasaaurum unglinganna svipað
og sjoppumar og skynhelgi
þjónustunnar við almenning
notað sem ýfirvarp. Bjórbar-
dagamenn gera þetta ekki af
hugsjóna- eða þjónustulund
heldur er hér meðfædd eða upp
þjálfuð gróðrarbrallssýki á ferð
og er þá hverki skeytt um
skömm né heiður.
Ég held að almenningur sé
farinn að sjá í gegnum þjóns-
lund braskaranna, og þeir geti
ekki boðið hvað sem er, eða
svikið þetta endalaust. En eitt
skulum við undirstrika. Bind-
indismenn munu fylgjast vel
með afstöðu einstaklinga og
flokka til þessa máls, við telj-
um landi okkar og þjóð fyrir
béztu, að vera án áfengs bjórs
og-munu engin flokksbönd fá
okkur til að víkja frá þeirri
skoðun. I. O. G. T. mun berjast
gegn þessari ógæfu íslands í
hvaða mynd sem hún birtist hér
eftir sem hingað til.
Verum minnugir þess templ-
arar og aðrir sem lesa þessa
grein. Að það eru engin rök til
fyrir nauðsyn á neyzlu áfengis
eða tóbaks.
ALÞYÐUmAÐURINN
XXXVI. árg. - Akureyri, fimmtudaginn 27. janúar 1966 - 3. tbl.
Afli Ákureyrarfogaranna jóksf
Harðbakur aflahæstur sl. ár, með 2.810.697 kg.
AM
HEFIR nýverið borizt
skýrsla Útgerðarfélags
Akureyrar h.f. um afla togara
félagsins á síðasta ári og kem-
ur í Ijós að afli togaranna varð
nokkru meiri, en árið 1964, og
■\\V^
N
Frá bæjarstjórn Akureyrar
á
FUNDI bæjarstjómar Akureyrar 18. janúar voru ýmis mál
til afgreiðslu auk fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir yfirstand-
andi ár, en frá afgreiðslu hemiar var sagt í síðasta blaði. Hér skal
nokkurra getið:
Reikningar bæjarsjóðs 1964,
hafnarsjóðs, vatnsveitu og elli-
heimilis lagðir fram til síðari
umræðu. Samþykktir sam-
hljóða.
Samþykkt var að selja Húsa-
víkurbæ þurrkara með matara
ásamt hrærivél, allt eign véla-
sjóðs, fyrir 570 þús. kr.
Samþykkt var að veita bæjar
ráði heimild til að ganga frá
kaupum á lóð Steinsteypuverk-
stæðis Akureyrar austan Geisla
götu, áðúr Túngata 4, lóðar-
stærð 728 ferm. Eigendur lóðar
hafa boðið bænum lóðina fyrir
500 þús. kr.
Samþykkt var að veita OIíu-
félaginu h.f. bráðabirgðastöðu-
"S
Vinsæll Skagfirðingur láfinn
Sauðárkróki 18. jan. J. K.
15. þ. m.
frá Sauðár-
I AHPARP^ginn
■*^,vvar jfjrðsunginn :
króksk.irkju Gísli Sigurðsson
bifreiðastjóri og sérleyfishafi
frá Sleitustöðum, en hann lézt
anngn_ jan.úar sl. Gísli rak um-
fángsmikla þílaútgerð og hafði
m. á. sérleyfi á leiðunum Siglu-
fjörður — Akureyri og Siglu-
fjörður — Reykjavík. Var Gísli
heitinn mjög vinsæll og var víð
kunnur fyrir lipurð sína, hjálp-
semi og glaðværð. Var jarðar-
för hans ein sú allra fjölmenn-
asta er hér hefir farið fram.
Nýlega er hér byrjað meira-
prófsnámskeið. Aðalkennarar
eru þeir Geir S. Bachmann bif-
reiðaeftirlitsmaður og Vilhjálm-
ur Jónsson frá Akureyri. Nem-
endur eru 29.
Gott tíðarfar hefir verið hér
frá áramótum, suðlæg átt og
þíðviðri langst af og eru svella-
(Framhald á blaðsíðu 7.)
leyfi fyrir nýjum olíutanka (tog
araolíu) á lóð félagsins á Odd-
eyrartanga. Brunavarnaeftirlit
ríkisins hafði áður gefið sam-
þykki sitt.
Samþykkt var samkvæmt til-
lögu bygginganefndar að hækka
lóðartökugjöld úr 800 kr. í
1000 kr. miðað við lóðarnúmer,
sömuleiðis gjöld fyrir nafna-
skipti. Einnig var samþykkt að
byggingaleyfisgjöld yrðu fram-
vegis, þar til annað verður
ákveðið, kr. 6 á rúmmetra.
Samþykkt var að veita Frið-
jóni F. Axfjörð löggildingu sem
múrarameistari hér í bæ.
Samþykkt var að tillögu hafn
arnefndar, að ársleiga fyrir
dráttarhrautirnar yrði frá 1.
jan. þ. á. kr. 800 þús. og árs-
leiga á viðlegukanti í báíadokk
jnni (30 m.) 60 þús. kr.
' Samþykktur var eftirfarandi
' aðstöðugja’.dastigi til að leggja
■á eftir hér í bæ í ár:
0,5% Rekstur fiskiskipa og
'flugvéla, fiskvinnsla, nýsmíði
skipa, búrekstur.
0,8% Heildsala.
1,0% Rekstur farþega- og
farmskípa, matsala og hótel-
rekstur, tryggingastarfsemi, út-
gáfustarfsemi, verzlun ót. ann-
arsstaðar, iðnaður og iðja ót.
annarsstaðar.
1,5% Sælgætis-, efna-, öl- og
mun meiri afli á hvem veiðidag
en árið áður. Útlialdsdagar tog-
aranna voru frá 262—384. Afli
togaranna var þessi:
Kaldbakur 2.516.629 kg. Harð
bakur 2.810.697 kg. Svalbakur
2.436.531 og Sléttbakur 2.395.521
kg. Afli til jafnaðar á hvern
veiðidag varð 11.9 tonn, en árið
1964 varð hann 9.1 tonn. Heild-
araflinn 1964 var 6972 tonn en
nú 10159 tonn, en þess ber að
gæta í þessu sambandi að út-
haldsdagar voru fleiri á síðasta
ári en 1964.
Eins og kemur fram hér á
undan er Harðbakur aflahæst-
ur. Skipstjóri á Harðbak er Áki
Stefánsson. Kaldbakur var í 16
ára flokkunarviðgerð framan af
árinu og hóf því ekki veiðar
fyrr en 15. apríl.
Farnar voru 23 söluferðir á
árinu, þar af 18 til Bretlands.
Birgðir voru mjög litlar um
áramót og hafði framleiðslan
selzt á hækkandi verði.
Eins og kunnugt er var Hrím
bakur ekki gerður út á árinu.
AM telur ástæðu til að fagna
hve vel hefir gengið með akur-
eyrsku togarana sl. ár, og telur
að eigi megi draga úr togaraút-
gerð í höfuðstað. Norðurlands.
Leitin í dag bar
engan árangur
Raufarhöfn í gærkveldi. G.Þ.Á.
UM 50 manns leituðu í dag að
Auðunni Eiríkssyni pósti,
sem týndist í foraðsveðri sl.
sunnudag, en leitin bar engan
árangur og var þó veður bjart
í dag. Leitinni mun eflaust
verða haldið áfram á morgun.
Annað er hér lítið tíðinda,
veður hefir verið allrysjótt að
undanförnu og má segja að
foraðsveður hafi verið á sunnu-
daginn er þessi hryggilegi at-
burður skeði.