Alþýðumaðurinn - 19.05.1966, Síða 2
■yERKAMAÐURINN, 13. þ.
T m. tekur sér fyrir hendur
að birta bæjarmála-afrekaskrá
Ingólfs Árnasonar og Jóns Ingi-
marssonar, fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins í bæjarstjórn Ak-
ureyrar líðandi kjörtímabil. Rit
stjóri blaðsins á það til að vera
smágamansamur, og við yfii'lest
ur „afrekaskrárinnar“ gæti sá
grunur læðzt að manni, að hann
hafi kímt ofan í barm sinn, þeg
ar Ingólfur og Jón fengu honum
skrána, mennirnir, sem véku
honum við síðasta bæjarstjórn-
arkjör langt niður á lista, „af
því að hann væri svo duglaus“.
Afrekin eru semsé örfáar til-
lögur, sem tvímenningarnir segj
ast hafa flutt í bæjarstjórn, feng
ið þar samþykktar, en síðan ver
ið á þær lagzt af vondum bæjar-
stjórnarmeirihluta, að manni
skilst, og ekkert komið út af
þeim. Svefnskálinn hafi verið
bæjarráð. Þegar þess er gætt,
að allt líðandi kjörtímabil hef-
ur Ingólfur Árnason að nafni til
myndað meirihluta bæjarráðs
með fulltrúum Framsóknar,
verður „afrekaskráin“ enn bros
legri, og enn augljósara, að all-
ur tillöguflutningur Ingólfs og
Jóns hefur verið miðaður við
auglýsingagildi, ekki fram-
kvæmdavilja.
Þegar menn hafa svo í huga
sambúð þessara tveggja heið-
ursmanna í bæjarstjórn, þar
sem ósamkomulag hefir rikt
á milli þeirra, að þeir
hafa enga samvinnu nema
stundum um handauppx-éttingu,
þá getur margur enn betur gert
sér í hugarlund bros ritstjóra
Ym., er hann las í eigin blaði
um „afrekin“, munandi t. d. af-
greiðslu fjárhagsáætlunar æ of-
an í æ, þar sem Ingólfur sam-
þykkti, en Jón sat hjá eða
greiddi atkvæði móti um ýms
atriði.
Vm. spyr AM um afrek Braga.
Þau verða ekki fram talin í
sýndartillögum, því að þannig
telur Bragi ekki rétt að starfa
í bæjarstjórn. Sem minnihluta-
fulltrúi þar líðandi kjörtímabil
íylgdi hann undanbragðalaust
fram þeim málum, sem hann
taldi meirihlutann bera fram
bæjarfélaginu til góðs, eða barð
ist gegn öðrum, er hann taldi
horfa til hins verra, eða sat hjá
í smámálum eða sýndarmálum,
svo sem þegar Ingólfur Árna-
son vildi slá sig til riddara í
barnaleikvallamálum, vitandi
að bærinn hafði kjörið sérstaka
nefnd til að athuga og gera til-
lögur um þau mál, þar.á meðal
var fulltrúi frá Alþýðubandalag
inu, og sú nefnd var að skila á-
liti og tillögum, sem gengu ná-
kvæmlega í sömu átt og Ingólf-
ur lagði til, eftir að hafa komizt
að, hvað nefndin ætlaðist fyrir.
Nú er það vitað af þeim er
gei-þekkja úrlausnir bæjarmála,
að: valdamesta nefnd um þær
er bæjaráð. Líðandi kjörtímabil
hafði Alþýðuflokkurinn ekki
bolmagn til að fá fulltrúa kjör-
inn í bæjarráð. Það gefur því
auga leið, að Bragi getur enga
langa afrekaskrá birt frá setu
sinni í bæjarstjórn líðandi kjör-
tímabil, fyi'st hann fór ekki út
í sýndai'tillagnasmíði og flutn-
ing. Hitt vekur ugglaust meiri
undrun, að fulltrúar meirihlut-
ans geta ekkert annað sýnt en
sýndina. Til hvers notuðu þeir
meii'ihlutaaðstöðuna? spyr fólk
að vonum.
Þær nefndir, sem Bragi starf-
aði í fyrir hönd bæjarins á líð-
andi kjörtímabili, voru elliheim
ilisnefnd, íþróttai'áð og launa-
nefnd, og AM þorir að stað-
hæfa, að þar hafi Bragi ekki
unnið verr en þeir heiðurs-
menn, . .er Alþýðubandalagið
valdi í sömu nefndir, þótt þeir
hefðu meiri fulltrúastyrk að
baki sér og 'ættu1 því að hafa
haft meira ,að segja.
(Framhald af blaðsíðu 1).
að meii’ihluta, en gerðu ekki.
Sjálfstæði og Alþýðubandalag,
en vildu ekki. Framsókn og Al-
þýðubandalag, en þorðu varla.
Þannig hlutföll í bæjarstjóm er
því gagnslaust að kjósa fyrir þá,
sem vilja vasklegri tök á fram-
kvæmdamálum bæjarins. Auk-
in fulltrúatala Alþýðuflokksins
býður ein upp á möguleika til
að komast frá þessu vandræða-
hlutfalli, sem var milli fulltrúa
flokkanna hér síðastliðið kjör-
tímabil, og mér er það gleði-
efni að finna, að kjósendur virð-
ast skilja þetta mjög margir.
—Hvers konar nieirihluta
hyggst Alþýðuflokkurinn að
niynda, þegar kjósendur hafa
veitt lionum aðstöðu til for-
göngu um það?
— Meirihluta um málefni og
framkvæmdir að sjálfsögðu.
Hann mun senda fulltrúum
hinna flokkanna tilboð um fram
kvæmda- og málefnasamning.
Þá mun í-eyna á, hverjir vilja
að þeim samningi standa og hve
bindandi samstöðu þeir vilja
mynda. Samhentur og sókn-
djarfur meirihluti er fyrir öllu.
— Og hvaða mál bíða að þín-
um dómi helzt úrlausnar?
— Þau eru raunar svo möi'g,
að það er börin von, að þau
verði öll leyst á komandi kjör-
tímabili.
Varðandi hreina þjónustu
bæjai-félagsins við íbúa sína, er
aukin vatnsveita, stórátak í mal
bikun gatna og skipulagsmálum
bæjarins.
Af byggingaframkvæmdum
nefni ég bókhlöðuna, Iðnskól-
ann, íþrottahus, nýjan gagn-
fræðaskóla og nýtt barnaskóla-
hús, að ógleymdu fullkomnu
leikhúsi, sem bærinn verður að
koma sér upp. Það finnst mér
að ætti að byggja sem félags-
heimili í samvinnu við verka-
lýðsfélögin, æskulýðssamtök og
önnur félagasamtök í bænum,
sem aðild geta átt lögum sam-
kvæmt að félagsheimilabygg-
ingu. Akureyri er orðin aftur
úr öllum bæjum og mörgum
sveitarfélögum, hvað aðstöðu til
leikmenntar snertii’.
Þá er nauðsynlegt að stækka
Fjórðungssjúkrahúsið og bæta
alla aðstöðu til heilsugæzlu og
heilsuverndar, og endurbæta
þarf Elliheimilið í Skjaldarvík
og byggja við Elliheimili Akur-
eyrai', en þar bíða margir eftir
vistrúmi.
Ekki má gleyma endui-nýjun
togaranna, en þar verður varla
hafizt handa, nema bærinn hafi
um það forgöngu.
Sem sagt, verkefnin eru bæði
skuggalega og skemmtilega
mörg.
—Þú nefnir félagsheimili. —
Ætluðu ekki verkalýðsfélögin
að byggja félagsheimili hér við
Strandgötuna fyrir 4 árum?
— Svo sögðu bæjarfullti-úar
Alþýðubandalagsins. Og þeir og
fulltrúar Framsóknar sam-
þykktu lóðarúthlutun handa
slíkri byggingu á uppfylling-
unni suðvestur af B. S. O., og
lá svo mikið á, að eigi mátti
bíða eftir samþykkt endanlegs
skipulags af svæðinu. Síðan
hefur lítið verið á málið minnzt,
nema uppkast að byggingu
munu einhverjir aðilar hafa
fengið. Átti hún samkvæmt
lauslegri áætlun að kósta um
40 millj, kr.
— Þú nefndir nýjan gagn-
fræðaskóla. Ef ég man rétt,
mæltir þú fyrir nýjum gagn-
fræðaskóla þegar fyrir 4—5 ár-
um?
— Já, ég vildi þá þegar láta
reisa nýjan gagnfi-æðaskóla til
að létta á þeim, sem fyrir vai',
en geyma umbætur á honum,
unz sá nýi væri í'isinn. Ég leit
svo á, að það yrði affarasælli
vinnubrögð, en bæta svo við
gamla gagnfi’æðaskólahúsið,
sem nú er orðið. Ég tel, að
reynslan hafi sýnt, að ég hafði
rétt fyrir mér, en oi'ðið er orð*
ið, og nú er nauðsynlegt, að all-
ir leggist á eitt við að i'eisa nýj-
an, því að viðbygging gamla
gagnfræðaskólahússins var að-
eins bráðabirgðalausn, sem þeg-
ar er orðin -ófullnægjandi.
— Og hvað segir þú um liið
umtalaða „unga fólk“ nú til
dags?
— Ekkert nema allt hið bezta,
eins og fólk yfirleitt.j Ég er svo
lánsamur, að hafa nær undan-
tekningarlaust aðeins kynnzt
góðu fólki um dagana, ungu
sem öldnu og þar á milli. Ekk-
ert hefir veitt mér eins mikla
bjartsýni á lífið og tilveruna
eins og einmitt kynnin af góðu
fólki, heiðarlegu fólki, duglegu
fólki. Nei, ég tek ekki undir
sönginn um gerspillta æsku og
ábyrgðarlausa fófeldra. Ég veit
að vísu, að til-eru dapurlegar
undantekningar, én heilt yfir er
fólk í dag þrekmikið, starfsamt
og framsækið. Margt af Akur-
eyrarbúum nú á miðjum aldri
eða tæplega það eru gamlir
nemendur mínB- úr gagnfræða-
skólanum, sem -ég kynntist þar
sem beztu ungmennum. Enginn
þarf að segja mér, að börn
þeirra nú á ungmennaskeiði séu
ekki sæmdaræskufólk í stórum
dráttum talað.
— Og hvað viltu svo segja að
lokum um „bæinn okkar“?
— Ég ber óbugandi traust til
vaxtar og viðgangs Akureyrar.
Þetta traust mitt byggist á kynn
um mínum af íbúum bæjarins
og þekkingu minnf á Jhöguleik-
um staðarins. Ég SX’ Sannfærð-
ur um, að bærinn á sér mikla
og glæsilega fiamtíð, svo fremi
sem við, né eftirkomendur okk-
ar, liggjum hvergi á liði okkar.
Engan barlóm, ekkert vonleysi.
Guð hjálpar þeim, sem hjálpar
sér sjálfur, og þetta gildir ekki
sízt um bæjarfélögin. Með vaxt-
arþrótti skal vextinum náð.
— Nokkuð fleira?
— Aðeins að lokum þetta:
Allir A-lista styðjenduf, þakka
ykkur þegar míkið, og gott
starf. Vinnum öll ósleitilega
fram að kjördegi og á kjördag.
Vinna og aftur vinna er það
sem þarf, og þá er sóknarsigur-
inn vís.
Þá er að þakka Braga fyrir
viðtalið og AM vill Urtdirstrika
lokaorð hans. Vinnum öll að
sigri A-listans. s. j.
Kosningaskrifstofa
A - Iistans
verður í Félagsheimilinu Bjargi, Hvannavöllum 10, á kjördag
! UPPLÝSINGASÍMAR: 11399 og 21450
BÍLASÍMAR: 11909 og 21451
Á-LISTA KJÓSENDUR: Auðveldið starfið á kjördag með því
að kiósa snemma.
íí J
AKUREYRINGAR! KJÓSIÐ A-LISTANN.