Alþýðumaðurinn - 09.06.1966, Blaðsíða 4
Ritstjóri: SIGURÍÓN JÓHANNSSON (áb.).
Útgefandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. ' — Afgreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
ALÞYÐUMAÐURINN
•iiiiiiiiiiiiiiii
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
„ÞETTA VAR FYRSTA VERS“ |
¥ KOSNINGABARÁTTU SINNI fyrir nýafstaðið |
bæjarstjórnarkjör lagði Alþýðuflokkurinn á Akur- §
eyri áherzlu á það, að mynda þyrfti samstæðan, ábyrg- 1
an meirihluta í bæjarstjórninni að baki bæjarstjóran- |
um. Þykir því hlýða hér að greina frá því helztaj sem |
gerzt hefir varðandi þetta, síðan kjör fór fram.
BRÉF RITAÐ FRAMSÓKN OG SJÁLFSTÆÐI
IvF.GAR að loknum kosningum ritaði Alþýðuflokk- i
^ urinn Framsókn og sjálfstæði, eða bæjarfulltrúum i
þeirra svohljóðandi bréf:
„Að samþykkt trúnaðarráðs Alþýðuflokksfélaganna |
á Akureyri á fundi þess í gær, 23. maí, óskum við bæj- |
arfulltrúar Alþýðuflokksins viðræðna við bæjarfull- |
trúa Framsóknarflokksins og . Sjálfstæðisflokksins um \
myndun ábyrgs, samstæðs meirihluta í bæjarstjórn Ak- |
ureyrar að baki núverandi bæjarstjóra á kjörtímabili i
því, sem hafið er. §
Samkomulag þetta verði reist á fastmótaðri áætlun i
um framkvæmdir bæjarins næstu ár og samvinnu um |
nefndaskipan og val forseta.
Af hálfu okkar hafa fjórir efstu menn á framboðs- |
lista Alþýðuflokksins við nýafstaðið bæjarstjórnarkjör |
verið valdir til þessara viðræðna.
Með von um skjót og jákvæð svör.
Virðingarfyllst.
Akureyri, 24/5 1966.“
jl/IUN'NLEGT SVAR Sjáifstæðis var þannig, að það |
sæi ekki ástæðu til viðræðna, nema svar Fram- I
sóknar væri jákvætt. Svar Framsóknar var synjun á |
samstarfi nefndra þriggja flokka, en leitaði eftir stuðn- i
ingi Alþýðuflokksins við forsetaefni sín í bæjarstjórn. 1
Hluti Framsóknar vildi hins vegar ákveðið mynda |
meirihluta með Alþýðubandalagi og kjósa nýjan bæj- i
arstjóra. Til að hindra þá þróun mála bauð Alþýðu- |
flokkurinn Framsókn að kjósa með henni Jakob Frí- |
mannsson sem forseta bæjarstjörnar og varaforsetann I
einnig úr hennar hópi, enda styddi Framsókn Magnús i
E. Guðjónsson áfram senr bæjarstjóra um næstu 4 ár. |
Fimm dögum eftir þetta boð barst svar Framsóknar |
jákvætt.
Að þessu svari fengnu innti Alþýðuflokkurinn Sjáíf- 1
stæði el tir því, hvort það vildi hafa samstarf við hann i
um nefndakjör, þar sem slíkt gat verið ávinningur fyr- |
ir báða aðila, þó ekki lyrir Sjálfstæði nema hætta væri i
Sjálfstæði hafnaði allri samvinnu um nefndir við I
Alþýðufl. um nefndakjör, og mun hafa treyst því, að i
Alþýðuflokkurinn beitti sig ekki harðræðum í þessum |
málum, hvað og ekki varð, því að hver flokkur gekk i
einn til nefndakjörs, eftir að Alþýðuflokkurinn hafði |
í byrjun fyrsta bæjarstjórnarfundar óskað eftir allsherj- I
arsamkomulagi um kjör 4 manna nefnda, þannig að i
hver flokkur fengi þar einn fulltrúa. Bæði Sjálfstæði i
og Framsókn neitaði, en þar sem nær hvert hlutkesti 1
gekk Alþýðuflokknum í vil, fékk hann fulltrúa í allar i
4 manna nefndir nema eina. Hins vegar missti Al- |
þýðubandalag sæti í þeim flestum.
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN |
A LÞÝÐUFLOKKUR, Framsókn og Alþýðubandalag §
1 báru fram til lögur á fyrsta bæjarstjórnarfundin- §
um um samningu framkvæmdaáætlunar fyrir bæinn. i
Var tillögunum öllum vísað til nýkjörins bæjarráðs til i
(Framhald á blaðsíðu 7.) i
it ifitui ii ii ijiii i ii ii ij 111 n 11 iji i iiii i iii i iii 11 ii i ■ i
■1111111111111111111111111111111111111111111111111iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii.
^...........................
HHEFIR bent blaðinu á það,
að oft sýni bifreiðaeigend-
ur mikið tillitsleysi varðandi
umferð, hvemig þeir Jeggi bíl-
um sínum og þá sérstaklega á
götuhornum, þar sé vissulega
leikið að háskanum, og þá eink
um þar sem götur eru þröngar.
Við vitum að þetta er sannleik
ur og bendum við okkar ágætu
lögreglu á það, að fara eftirlits-
ferð um bæinn og rannsaka
þetta mál. AM þakkar H. fyrir
að minna á þessa staðreynd.
XSKRIFAR: Glerárgatan er
aðalleiðin inn í höfuðstað
Norðurlands. Þar blasir við kol
svart og ómálað hús. Okkar
ágæti bæjarstjóri ætti að fara
þess á leit við eigandann að
liann málaði húsið. Það væri
engin óskammfeilni sökum þess
að ég veit að eigandinn hefir
cfni á því.
MHEFIR horizt allmörg
bréf að undanförnu, þar
sem kvartað er yfir því, að sím
-------<\\V-----------
inn sé eigi í ,n,ormal“ ástandi
og hér lieyrið þið reynslu ungs
manns, sem er nýlega fluttur í
bæinn.
„Er ég flutti liingað til Akur-
eyrar, flutti ég síma minn með
HEYRT
SPURT
HLERAÐ
mér, eins og margir gera og
víst gekk allvel að fá hann
tengdan. En fljótt komst ég að
því, að samhandið var mjög
slæmt, og oft á tíðum fékkst
ekki samband nema við eitt á-
=“s
kveðið númer. Ég kvartaði yfir
þessu og það var lagfært, og
var orsökin sögð ruglingur á
tengistöð símans. Síðan fóru
reikningar að berast og hljóð-
aði fyrsti reikningurinn upp á
3642 umframsamtöl, er gerðu
kr. 4006.00 eða eins og hjá all-
stóru fyrirtæki. Ég vissi að ég
myndi eiga eitthvað í þeim og
gerði engar athugasemdir, en
sá reikningur var samtals uop
á kr. 4836.00, en þó fannst mér
þessi reikningur verá óeðlilega
liár, þar sem símí var ekki mik-
ið notaður. En þegar næsíi
símareikningur kom, fannst
mér mælirinn fullur, þar seiu
umframsímtöl voru á 4500 kr.
og hljóðaði allur reikningurinn
upp á kr. 5302.70. Ég talaði við
ábyrga aðila lijá símanum, m.
a. símastjórann, þá var mér
sagt að mælirinn sýndi þetta
og af þeim sökum myndi engin
kvörtun tekin til greina, en þd
því lofað að láta teljara á nú-
(Framhald á blaðsíðu 7).
■' 1 ..
• AF NÆSTU GRÖSUM*
MESSAÐ í Akureyrarkirkju
kl. 10.30 árd. á sunnudaginn
kemur. Sálmar nr. 26, 25, 355,
356, 657. P. S.
AKUREYRARSÓKN! — Aðal-
safnaðarfundur verður hald-
inn í kirkjukapellunni sunnu
daginn 12. þ. m. kL 4 e.h. —
Sóknarnefndin.
HVAÐ ER TRÚ ÞÍN STERK?
Mun hún geta staðizt reynsl-
ur? Hvers vegna er áríðandi
að hafa trú? Opinber fyrir-
lestur fluttur af Leif Sand-
ström fulltrúa Varðturns
félagsins 12. júní kl. 16 í
Bjargi Hvannavöllum 10. All
ir, sem leita Guðsríkis, eru
velkomnir, ókeypis. Engin
samskot. Vottar Jehóva.
KVENFÉLAG AKUREYRAR-
KIRKJU heldur aðalfund í
kirkjukapellunni laugardag-
inn 11. júní kl. 8,30 e. h. —
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Kaffiveitingar. Nýir félagar
velkomnir. — Stjórnin.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR
Næsta ferð verður 11. júní.
Farið um Tjörnes, skoðuð
surtarbrandslögin og ekið út
á Máná um miðnættið.
RAKARASTOFUR okkar eru
lokaðar á laugardögum sum-
armánuðina. Sigtr. Júlíusson,
Valdi, Ingvi og Halli.
MINJASAFNIÐ er opið dag-
lega kl. 1.30—4 e.h. Á öðrum
tímum verður þó tekið á móti
ferðafólki ef óskað er. Sími
safnsins er 1-11-62, en safn-
varðar 1-12-72.
MUNIÐ minningarspjöld Elli-
heimilis Akureyrar. Fást í
Skemmunni.
GJÖF. I tilefni af 60 ára af-
mæli frú Laufeyjar Sigurð-
ardóttur, Hlíðargötu 3, af-
henti frk. Jóhanna Jóhannes-
dóttir kr. 1000,00 að gjöf, til
fegrunar við barnaheimilið
Pálmholt. Jóhanna hefur áð-
ur sýnt barnaheimilinu góð-
vild. Þökkum við af alhug
þessa gjöf. — Minningar-
sjóðsnefnd.
NONNAHÚS verður opið í
sumar alla daga vikunnar kl.
2—4 e.h. Uppl. í símum
1- 13-96, 1-15-74 og 1-27-77.
MATTHÍASARSAFN verður
opnað n. k. sunnudag, og
verður opið framvegis kl.
2— 4 e.h. Sími safnvarðar er
1-17-47.
HEIMSÓKNARTÍMI í Elliheim
ilið í Skjaldarvík er á virkum
dögum kl. 15—16 og 19—20.
Á sunnudögum kl. 13—15 og
19—20. — Forstöðumaður.
FRÁ OG MEÐ laugardeginum
11. júní 1966, verður aðeins
opin lækningastofa hjá helgi
dags-varðlækni, kl. 11—12
f.h. (varðlæknir um næstu
helgi er Sigurður Ólason) og
auk þess er lækningastofa
héraðslæknis opin eins og ver
ið hefir frá kl. 10.30—11.30.
Þær vitjánabeiðnir sem ber-
ast eftir kl. 12 á laugardög-
um falla undir varðlækna-
þjónustu og verður sjúkling-
ur þá að greiða af þeim varð
læknagjald. Fyrirkomulag
þetta gildir í 3 sumarmánuð-
ina (júní—ágúst). Nafn helgi
dagsvarðlæknis verður aug-
lýst í dagbók bæjárblaðanna
að hverju sinni. Það skal tek
ið fram, að um helgar næstu
3 mánúði verður aðeins sinnt
aðkallandi læknisstörfum.
BRÚÐHJÓN. Sl. laugardag
voru gefin saman í Reykja-
vík brúðhjónin Rannveig
Óskarsdóttir Norðurgötu 38
Akureyri og Einar Björnsson
Hafnarstræti 88 Akureyri. —
Heimili þeirra verður að
Hafnarstræti 64 Akureyri.
HJÚSKAPUR. Laugardaginn
28. maí voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Hertha Jó-
hanna Kristjánsdóttir, flug-
freyja (dóttir Kristjáns P.
Guðmundssonar forstjóra á
Akureyri og Ingvar Björns-
son stud. juris úr Hafnar-
firði (sonur Björns Ingvars-
sonar lögreglustjóra). Hjóna-
vígslan fór fram í Kaupangs-
kirkju og var hún fram-
kvæmd af sóknarprestinum í
Grundarþingum.