Alþýðumaðurinn - 07.02.1969, Blaðsíða 4
4II1U1I11IIJIIIIIIUIIUIIUUIIIIUIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII UIJIIIIIUIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIUIUIIIIIIIIIIIIUIIIIIJJIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIUIIIUUIUIUIUUIIIUIIIIIIIIIIIIUIUUIIIUIUUIJUIIIIIIIIIIIIIUIUUUIIIIIIUIIIUIIIUUUIIUUUIIIIUUIIUIIIIIIUIIIIIIIUIIIIUIUIIIIIUIUIIUUIIUUIIIIIIIIIIUIIIIIUIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIUIII
0 AL ÞÝ€> T~ Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (áb.). Utgeíandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR- EYRAR. — Aigreiðsla og auglýsingar: Strandgötu 9. II. hæð, sími (96)11399. — Prentverk Odds Björnssonar h.i./ Akureyri UMAÐURINN
ATVINNUSKORTUR |
VIÐA um land er nú atvinnuskortur, jafnframt því |
sem verkfall stendur yfir á veiðiflotanum. Þetta eru 1
þungbúnustu skýin á efnahagshimni þjóðarinnar eins |
og er, og leiða hugann að ýmsu í atvinnu- og þjóð- |
málum almennt. Það er að vísu engin ný bóla, að víðá I
hérlendis sé þröngt um atvinnu um þetta leyti árs, en |
undanfarin velmegunarár hefir blessunarlega lítið I
orðið vart við það ásteytingarsker. Bjartsýnustu menn |
voru jafnvel farnir að vona, að á svonefndu „árstíðar- I
bundnu atvinnuleysi“ hefði verið sigrazt að fullu, en 1
nú sést glöggt, að það er eitthvað annað. Atvinna I
manna í langflestum þorpum og jafnvel stærstu bæj- I
unum er svo háð sjónum, að gangi þar verulega úr- \
skeiðis, er vá fyrir dyrum. Iðnaður, verzlun og þjón- |
usta bætir þar vissulega mikið úr, en um verzlun og |
þjónustu, og raunar vissar greinar iðnaðar, giklir það, |
að þegar almenn kaupgeta minnkar, komast þessar at- |
vinnugreinar fljótt í þröng. Nú sést vel, hve allt hér I
hefir risið með rniklum síldveiðum, og fallið með I
þurrð þeirra, og jafnframt leiðir það hugann að því, !
hve líf jiessarar úthafsþjóðar er mjög undir sjávar- 1
happdrætti komið.
ALMENNINGUR er kvíðinn: Hvað er framundan? I
Eru þessar atvinnu- og efnahagsþrengingar tíma- §
bundnar eða verða þær langvarandi? hugleiða margir. [
Eru þær sjálfskaparvíti eða voru þær óumflýjanlegar? I
Stjómarandstæðingar fullyrða hið fyrra, stjórnarsinn- |
ar hið síðara. Svo er a. m. k. opinberlega. Vér leyfum |
oss að fara bil beggja og segja að livorttveggja hafi liér f
lagt hönd að. Það er alltaf vandi að stjórna vel, en i
ekki síður við velmegun en liarðdrætti. Þetta hefir =
sannazt á oss íslendingum undanfarin ár. Bæði hefir i
gerzt, að ríkisstjórnin hefir ekki horft fram til hugsan- i
legra erfiðleika með nógu mikilli fyrirhyggju, enda |
þjóðin öll ekki viljað liugsa á þann veg. Allir hafa i
verið önnum kafnir að raka að sér sem mestu. Þegar |
að kreppti, gættu allir sín of seint. Verulega sök verður |
ríkisstjómin þar að bera, því að hennar var og er vald- i
ið, en hún á vissulega sínar afsakanir í því kerfi, sem |
vér búum við, seinvirku embættismannakerfi, sem tek 1
ur ótrúlega seint við sér, háskalega seint við sér, liggur |
oss við að segja. Samt sem áður þjónar það ekki neinu i
góðu að horfast ekki í augu við þá staðreynd, að það I
hefði talsverðu bjargað, ef röggsamlega liefði verið i
tekið í efnahagstaumana, strax í fyrravor, í stað þess f
að draga aðgerðir fram á haust. Þetta sést vel eftir á, i
en var ekki jafn auðséð fyrirfram. Enn var það sjávar- f
gróðinn, sem var hin mikla óþekkta stærð.
í KJÖLFAR þess, að öll velmegun stóraflaáranna f
Iiafði farið í fjárfestingu og hækkað verðlag og kaup- i
gjald, liafa dunið yfir tvær gengislækkanir með árs f
millibili, og þjóðinni er að vonum orðið órótt. Það I
hefir þrengt að henni verulega á öllum sviðum, og hið |
eina ljósa í því er, að vandfundið er, hvaða stétt er |
minnst óánægð með hlutskipti sitt. Það bendir a. m. k. |
til þess, að ríkisvaldið sé minna hlutdrægt en stjórnar- |
andstaðan vill vera láta, þegar hún gerir blekkingar- |
gælur við hverja stéttina fyrir sig. Raunar viljum vér f
telja, að almenningur hafi tekið núverandi efnahags- I
vanda af mikilli þolinmæði og skilningi, en hins skyldi 1
ríkisstjómin ekki ganga dulin, að hún þykir ekki fljót- i
virk á úrbætur, og öruggustu stuðningsmenn hennar I
eru uggandi yfir því, hve öll úrlausnarefni eru sein að |
(Framhald á blaðsíðu 5)
S ......... “V,
RÆKJA f FISKINUM. — Sjó-
menn hafa komið að máli við
blaðið og mikið bæri á rækju
í þeim fiski er aflazt hefði að
undanförnu hér í firðinum m. a.
í fiski er landað hefur verið á
Hjalteyri. Bendir þetta óneitan
lega að sér skammt frá muni
leynast rækjumið, þótt ófundin
séu.
AM minnir í þessu sambandi
á áskorun er samþykkt var á
atvinnumálaráðstefnu jafnaðar-
manna á Norðurlandi, þar sem
skorað var á lilutaðeigandi
aðila að láta gera ítarlega leit
að rækjumiðum úti fyrir Norð-
urlandi.
AKUREYRINGUR spyr, og
beinir spumingu sinni til bæjar
stjóra: Er það rétt að keypt liafi
verið áfengi fyrir 16.000 kr. á
vegum bæjarsjóðs Akureyrar f
tilefni af vígslu nýja Amtsbóka
safnsliússins í haust. Ég er
sæmilegur skattþegn og krefst
þess að svarað verði.
í tilefni af ofanrituðu vill AM
vinsamlegast mælast til við
bæjaryfirvöld Akureyrar, að
þau sýni gott fordæmi og spari
með öllu áfenga drykki í boðuni
sínum á þessum erfiðustu og
verstu tímum. AM finnst það
alveg ómögulegt að það vín sem
drukkið var í bókhlöðuvígsl-
unni hafi verið hægt að koma
á kostnaðarliðinn „dýpkunar-
framkvæmdir“ eins og veigum
þeiin er kneyfðar voru í Reykja
línsveizlunni frægu þá er drátt-
arbrautin var vígð.
AKUREYRINGUR spyr hverj-
ir séu í stjórn Kísilgúrverk-
V--...........
smiðjunnar og svo sölufélags
fyrirtækisins af fslands hálfu.
Ja, AM minnir að eftirtaldir
skipi stjórn verksmiðjunnar fyr
ir íslands hönd: Magnús Jóns-
son ráðherra, sem er formaður,
Pétur Pétursson forstjóri og
Karl Kristjánsson fyrrv. alþing
ismaður, en hverjir skipa stjórn
sölufélagsins alveg á því miður,
en vonandi fær blaðið upplýs-
ingar um það eftir að þessi
klausa sér dagsins ljós.
1 , . ,
AKUREYRINGUR skrifar. Mér
fannst ágæt klaust í síðasta AM
um Sanamálið og gjarnan að
skaðlausu mætti skrifa meira
um það — í stað þess að nú er
reynt að slá skjaldborg um þá
menn er þeirri glæframennsku
ollu. Það er verið að læða því
meðal manna núna að þetta séu
máttarstólpar bæjarfélagsins og
þess vegna sé öllum bæjarbú-
um það skylt að láta þá lenda
mjúklega eftir þetta ævintýri
sitt út í geim bissnismennskunn
ar, jafnvel mér eyrarkarlinum.
..........................
Ég neita því að stuðla að liinni
mjúku lendingu Sanamanna.
Þeir mega koma harkalega nið-
ur fyrir mér.
SKATTÞEGN hefir eftirfarandi
að segja. Mér finnst það í hæsta
máta óréttlátt og tel það Ijóta
gloppu í skattalöggjöf okkar að
foreldri, sem kostar bam sitt í
skóla og barnið hefir ekkert
haft upp úr sér, þ. e. ekkert
geta unnið sér inn, skuli aðeins
fá persónufrádrátt, frádráttar-
bæran af tekjum, en annað
foreldri, sem hefir haft barn
sitt í vinnu og unnið sér inn
verulega upphæð, skuli bæði fá
persónufrádráttinn og kaup
bamsins til frádráttar varðandi
skattaframtal. Það foreldri, sem
ekki hefir getað fengið neina
vinnu fyrir barn sitt hlýtur að
standa Iakara að vígi til að
kosta bam sitt í skóla. Mér
finnst hér vera ljót gloppa í
skattalöggjöf okkar, sem hæst-
virtir alþingismenn okkar ættu
að fylla upp í liið bráðasta.
Blaðið Alþýðumaðurinn,
co. hr. ritstjóri
Sigurjón Jóhannsson,
Akureyri.
Hr. ritstjóri!
I blaði yðar 31. jan. sl. er
veitzt að Jóni Egilssyni for-
stjóra Ferðaskrifstofu Akureyr
ar með getgátum um að liann
liafi brugðizt skyldu sinni sein
umboðsmaður Ferðaskrifstofu'
Zoega h.f. við móttöku erlendra
skemmtiferðaskipa á Akureyri.
Er því varpað fram sem spurn-
ingu, hvort þetta sé meginástæð
(Framhald á blaðsíðu 7)
n ÓTT A M
Æ®í$W Æámk* JkWJL
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Sálmar: 131 — 431 — 419 —
428 — 687. — B. S.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA
Messað á sunnudaginn kl. 2.
Biblíudagur. Sálmar nr. 500
— 131 — 119 — 425 — 687.
Tekið á móti gjöfum til biblíu
félagsins. Bílferð úr Glerár-
hverfi. — P. S.
SUNNUDAGASKÓLI Akur-
eyrarkirkju verður n. k.
sunnudag kl. 10.30 f. h. í kirkj
unni og kapellunni. Oll börn
hjartanlega velkomin. —
Sóknarprestar.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Samkoma sunnudag 9. febr.
kl. 8.30 e. h. Ræðumaður Guð
mundur Ó. Guðmundsson og
Jón Viðar Gunnlaugsson. —
Allir velkomnir — Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin.
Æ.F.A.K. ALLAR DEILDIR.
Skemmtikvöld verður haldið
í Lóni laugardagskvöldið 8.
febrúar kl. 8.30 stundvíslega.
Happdrætti, bögglauppboð og
fjölbreytt skemmtiatriði. —
Heimsfrægar hljómsveitir
spila fyrir dansi. Veitingar.
Aðgangseyrir aðeins kr. 35.
Aðeins fyrir félaga úr ÆFAK
— Stjórnin.
SUNNUDAGASKÓLI Glerár-
hverfis í skólahúsinu kl. 1.15
n. k. sunnudag. Öll börn vel-
komin.
VIÐ erum xmdursamlega gerðir
Opinber fyrirlestur fluttur af
Ulf Carlbark sunnudaginn 9.
febrúar kl. 16 að Kaupvangs-
stræti 4, II hæð. Allir vel-
komnir — Vottar Jehóva.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Föndrið hefst mánu-
dagskvöldið 10. febrú-
ar. — Föndurnefndin.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
(.SþýU Árshátíð félagsins
jiSj verður haldin í Bjargi
/*Cí3|L\ laugardaginn 8. febr.
—-a' og hefst kl. 8 síðdegis.
Að þessu sinni verður þorra-
matur á borðum. Mörg
skemmtiatriði og góð músik.
Miðar eru seldir hjá Karli
Stefánssyni í Electro Co. til
fimmtudagskvölds kl. 6. Allir
þeir sem áhuga hafa á að
skemmta sér með Sjálfsbjörg
eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Aðgangseyrir er kr.
250. — Sjálfsbjörg.
GEYSISKONUR minna á
barnaskemmtun n. k. sunnu-
dag. Sjá auglýsingu á öðrum
stað í blaðinu.
SLYSAVARNADEILD kvenna,
Akureyri, sendir bæjarbúum
hjartans þakkir fyrir ágæta
þátttöku í fjáröflun sl. sunnu
dag. Sérstaklega þökkum við
öllum þeim, sem lögðu fram
skemmtikrafta og yfirleitt
alla veitta aðstoð. — Slysa-
varnadeildin.
BRÚÐHJÓN. Hinn 29. des. sl.
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju, ung-
frú Sigríður Jónasdóttiý og
Baldvin Björnsson sjómaður.
Heimili þeirra verður að Hóla
braut 4, Hrísey. — Ljós-
myndastofa Páls.