Alþýðumaðurinn - 12.09.1969, Side 1
Verzlið i sérverdun.
Þaö trygglr gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Simi 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VEIKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.G9.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
Theodóra Þórðardóttir, Henny Hermannsdóttir og Ragnheiður
Pétursdóttir sýna nælonslopp, nælonundirkjól og nælonnáttföt á
sýningunni „Islenzkur fatnaður“.
Án lEppbygpgar íslenzks iðnað-
ar heldur þjóðin ekki vöku sinni
NÚ síðustu daga hefir verið haldin í Laugardalshöllinni í Reykja-
vík sýning er nefndist „fslenzkur fatnaður“ — og stendur Félag
íslenzkra iðnrekenda að sýningu þessari. Fréttatilkynning um sýn-|
ingu þessa barst all siðborin til AM. Engu að síður birtir AM hana
orðrétta og vill með því undirstrika þá skoðun sina, að án upp-
byggingu þróttmikils iðnaðar, hvort sem það er á sviði fatagerðar
eða á öðrum sviðum, haldi ekki íslenzk þjóð vöku sinni. |
Haustkaupstefnan „íslenzk-
ur fatnaður“ var haldin í
Laugardalshöllinni í Rvík. 7.—
10. september. Sautján íslenzk
fyrirtæki munu kynna þar nýj-
ungar í fataframleiðslu sinni og
sýna þann fatnað, sem á boð-
stólum verður í haust og vetur.
Það er Félag íslenzkra iðn-
rekenda, sem gengst fyrir kaup
stefnu þessari en hún er sú
þriðja í röðinni; þær fyrri voru
haldnar haustið 1968 og dagana
13.—16. apríl sl. — Á haustkaup
stefnunni 1968 voru seldar vör-
ur fyrir átta milljónir króna og
á vorkaupstefnunni 1969 voru
seldar vörur fyrir hálfa sautj-
ándu milljón króna. — Vor-
. kaupstefnuna 1969 sóttu 111 inn
kaupastjórar verzlana um land
allt.
Eins og við fyrri kaupstefn-
urnar hefur nú náðzt samkomu
lag við Flugfélag íslands og
helztu hótel í Reykjavík um
25% afslátt á fargjöldum og
gistirými fyrir þá innkaupa-
stjóra, sem sækja haustkaup-
(Framhald á blaðsíðu 6).
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 12. sept. 1969 — 22. töluhlas)
Bjartsýnir á framtíð Sana. Frá vinstri: Magnús Þórisson verkstjóri
og Börkur Eiríksson sölustjóri. Ljósni.: H. T.
Áskorun um
„FIJNDUR stjórnar og trúnaðar
mannaráðs Vklf. Einingar hald-
inn 11. sept. 1969 lýsir þungum
áhyggjum félagsins vegna ríkj-
andi atvinnuástands á félags-
svæðinu og þess ískyggilega út-
lits, sem nú er á mjög vaxandi
atvinnuleysi þegar vetur geng-
ur í garð, ef ekki koma til gagn-
gerðar ráðstafanir.
Fundurinn felur stjórn félags
ins að vinna að því eftir fremstu
getu og í samstarfi við Alþýðu-
samband íslands að stórauknu
fjármagni verði beint til bygg-
ingaiðnaðarins, þ. á. m. til Fram
kvæmdanefndar byggingaáætl-
unar á Akureyri og að almenn-
ar ráðstafanir verði gerðar til
þess að iðnaðurinn geti eflt at-
hafnasemi sína. Alveg sérstak-
lega telur fundurinn mikilvægt
að Slippstöðinni h.f. verði feng-
in fullnægjandi verkefni og að
greitt verði úr fjárhagserfiðleik
um þess fyrirtækis.
Fundurinn beinir því sérstak
lega til bæjarstjórnar Akureyr-
ar að hún hlutist til um að tog-
ararnir leggi allan afla sinn upp
til vinnslu á komandi hausti og
vetri og ennfremur að hún haldi
verklegum framkvæmdum í há
marki meðan ekki rofar til um
atvinnu verkamanna. Þá telur
fundurinn það í verkahi'ing
bæjarstjórnar að fylgjast með
rekstrarhorfum Niðursuðuverk
smiðju K. Jónsson & Co. og að
aðstoða það fyrirtæki eftir
Innlit í ölyerksmiðjuna SANA
ÞETTA HEFUR GENGIÐ ÁGÆTLEGA - SEGIR
MAGNÚS ÞÓRISSON VERKSTJÓRI
ÉG HAFÐI ekki komið í Sana síðan er vígsla verksmiðjunnar fór
frani, en síðan liefur mikið vatn til sjávar runnið, seni kunnugt er.
Fyrirtækið varð gjaldþrota um síustu áramót og margt um þau tíð-
indi rætt sem vonlegt var í bænum — og sem hér skal eigi rakið
né vaktir upp gamlir draugar. Um hið gjaldþrota fyrirtæki var síð-
an stofnað almenningshlutafélag, þar sem m. a. Akureyrarbær gerð
ist hluthafi að og vakti það miklar deilur í bænum. En þrátt fyriíj
það, að enn er rifist og þráttað meðal bæjarbúa skal AM liiklaust
játa að blaðið kom fyrst allra fram með þá hugmynd að um Shna
yrði stofnað almenningshlutafélag í stað þess að fjársterkir menn í
Reykjavík fengju á „slikkverði" fullkomnustu öl- og gosdrykkja-
verksmiðju, sem reist hefur verið á Islandi til þessa og blaðið von-
ar að saga Akureyrar sanni þá fram líða stundir að blaðið hafi
haft rétt fyrir sér.
Tveir ungir og geðþekkir
menn bjóða mig velkominn,
Börkur Eiríksson sölustjóri og
Magnús Þórisson verkstjóri.
Sana er í raun og veru nýtt
fyrirtæki í höndum nýrra
manna, en fyrsta spurningin er
ég spyr félaganna er.
Hver sé framkvæmdastjóri
Sana nú?
Þeir brosa báðir félagarnir.
Framkvæmdastjóri hefur enn
enginn verið ráðinn. Prókúru-
hafi er Ásmundur Jóhannsson
fulltrúi bæjarfógeta, en við höf
um sölu og verkstjórn á hendi.
Hvað er starfsfólk margt?
12 manns vinna hér um þess-
ar mundir.
Og hvernig gengur svo starf-
semin?
Við teljum að okkur sé óhætt
að fullyrða að hún gangi vel, og
eins og nú horfir megi telja
framtíðina næsta örugga.
Hvað framleiðið þið margar
gosdrykkjategundir?
Við framleiðum 7, Mix, Morg
an, Engiferöl, Krímsóda, Crape
fruit, tvennskonar Valash, bæði
sætan og sykurlausan og svo
Jolly-kóla, sem er eina kóka-
tegundin er við framleiðum.
Þótt hálfgerð skömm sé frá
að segja af Norðlendingi að
vera viðurkenni ég fyrir þeim
Magnúsi og Berki, að þann
drykk hefði ég víst aldrei bragð
að. Magnús réttir mér brosandi
flösku og mér finnst drykkur-
inn Ijúffengur og sem allmikill
kókneytandi er ég að hugsa,
eftir þessi fyrstu kynni mín af
Jolly kóla, að kúpla yfir á Sana
í stað Vífilfells.
Eru þessir gosdrykkir á boð-
stólum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu?
Nei, ekki enn. Neyzlan hér
nyðra er það mikil á gosdrykkj
um Sana, að við höfum
reynt að nema land á sunnlenzk
um markaði enn sem komið er.
Svo er það ölið ykkar, hvern-
ig gengur með sölu á því?
Salan á Thule lageröli fer ört
vaxandi, hið sama má segja um
Maltölið og þessar framleiðslu-
vörur okkar eru einnig seldar
sunnanlands og hefur Sanitas
h.f. dreifingarkerfi á hendi á
Reykjavíkursvæðinu og einnig
á Suðurnesjum.
Ehi svo er það sterki bjórinn,
sem er bannvara fyrir okkur ís
lendinga. Hvernig gengur með
hann?
Það er einnig stöðugt vaxandi
sala í honum — og þar njótum
við góðs af trausti og tiltrú ís-
(Framhald á blaðsíðu 7)
S >0OC^-'-...........
Glæsilegur
sigur norskra
jafnaðarmanna
í NÝAFSTÖÐNUM kosningum
til norska Stórþingsins unnu
jafnaðarmenn glæsilegan sigur.
Leiðari blaðsins í dag fjallar
einmitt um norsku kosningarn-
ar, er AM vill vekja athygli
lesenda sinna sérstaklega á.
bætt alvinnuasland
mætti við að halda rekstri sín-
um sem samfelldustum.
Fundurinn beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til Síldarútvegs
nefndar og ííkisstjórnarinnar
að Tunnuverksmiðjan verði rek
in á næsta vetri a. m. k. jafn-
langan tíma og sl. vetur og að
starfrækslan verði hafin eigi
síðar en 1. nóv. n. k.
Þar sem nú er sýnt að starf-
semi Atvinnumálanefndar ríkis
ins hefur borið verulegan árang
ur, en að á hinn bóginn er fjár-
magn það sem nefndin fékk til
ráðstöfunar svo til eða alveg
þrotið, telur fundurinn að ASI
beri að vinna að því að aflað
verði aukins fjár til áframhald-
andi starfsemi hennar.“
...- \
Rabbað við Einar M. Jóhannesson, Húsavík - sjá bls. 5
Leiðarinn: NORSKU KOSNINGARNAR