Alþýðumaðurinn - 03.10.1969, Page 1
VerzUS 1 sérverzlun.
ÞaS tryggir gæSin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Simi 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20-00.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
^000«
,
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 3. okt. 19G9 — 24. tölublað
■
Fjölbreytt tónleikaskrá TA í vetur
VETRARSTARFSEMI Tónlist-
arfélags Akureyrar er nú að
'hefjast og verða 1. tónleikar á
vegum þess n. k. mánudag kl. 9
í Borgarbíói og er það hinn
þekkti norski óperusöngvari
Olav Eriksen sem syngur við
undirleik Árna Kristjánssonar.
Næstu tónleikar T. A. verða
jólatónleikar Jóhannesar Vig-
fússonar, ungs og efnilegs píanó
leikara héðan úr bænum, sem
stundað hefir nám í Sviss undan
farin ár.
Þriðju tónleikar félagsins
verða að öllum líkindum seint
í janúar og er þá fyrirhugað að
hingað komi japönsk listakona,
þekktur fiðluleikari.
Loks er í athugun að koma
hér á fjölbreyttu söngvara-
kvöldi í marzmánuði.
Styrktarfélagar Tónlistarfé-
lagsins vitji aðgöngumiða sinna
í Bókaverzl. Huld frá föstudegi
til hádegis á mánudag. Verði þá
einhverjir miðar ósóttir verða
þeir seldir öðrum.
Borholur og stöðvarhús, yfirlitsmynd.
Fyrsta jarðgtxfuaflstöð íslands senn tekin í notkun
SAMKVÆMT upplýsingum er AM fékk hjá Knúti Otterstedt raf-
veitustjóra, mun jarðgufuaflstöðin í Bjarnarflagi verða tekin í
notkun í næstu viku, þó ekki með fullum afköstum, því að enn
skortir jarðgufu til slíks og á þessu stigi málsins væri eigi vitað
hvenær sú viðbótarorka yrði leyst úr Iæðingi. í tilefni þessa merkis
viðburðar birtir AM hér á eftir grein um gufuaflstöðina í Bjarnar-
flagi eftir Svein S. Einarsson verkfræðing, er birtist í tímaritinu
Iðnaðarmál.
anir voru lagðar á hilluna, þeg-
ar Búrfellsvirkjun var ákveðin.
Þegar borað var eftir jarð-
gufu vegna reksturs Kísiliðj —
unnar í Bjarnarflagi, kom í ljós
■sNN*
f
“S
Þingeyingar mófmæla enn - en Laxár
virkjunarstjórn svarar meS úfboðsaug-
lýsingu varðandi Gljúfurversvirkjun
í SÍÐASTA blaði birti AM útdrátt úr greinargerð frá Laxárvirkj-
unarstjórn, þar sem andmælt var mótmælum ýmissa félagasam-
taka, er mótmælt var fyrirhugaðri Gljúfurversvirkjun. Nú hefur
blaðinu borizt svar til Laxárvirkjunarstjórnar frá andmælendum
virkjunarinnar. Er hér um langa grein að ræða, sem blaðið getur
ekki rúmsins vegna birt í heild.
ber 1955 var vatnsmagn Svarár
hjá Bjarnastöðum 19.6—20.0
m-'Vsek. á móti 55—57 m;!/sek.
heildarvatni í Skjálfandafljóti
hjá Fosshóli á sama tíma. Sam-
anber „íslenzk vötn.“). Það
(Framhald á blaðsíðu 6).
í síðustu viku marzmánaðar
1969 var raforka, framleidd með
jarðgufu, flutt til notenda hér á
landi í fyrsta sinn, en þá fóru
fram prófanir véla í jarðgufu-
aflstöðinni, sem Laxárvirkjun
hefur reist í Bjarnarflagi við
Mývatn.
Mönnum hefur lengi verið
Ijóst, að í jarðgufusvæðunum ís
lenzku er fólginn gífurlegur
forði ódýrrar orku, og því hafa
þeir, er unnið hafa að jarðhita-
málum, haft mikinn hug á því
að byggð yrði jarðgufuaflstöð í
landinu, þannig að landsmenn
fengju reynslu af rekstri slíkra
stöðva. Á árunum 1960—63
voru gerðar áætlanir um bygg-
ingu jarðgufuaflstöðvar í Hvera
gerði á vegum Raforkumála-
stjórnarinnar, en þær fyrirætl-
Sveinn R. Einarsson.
hærri hiti en menn höfðu áður
mælt í borholum hérlendis, eða
270—280 gráður-C. Vorið 1967
vakti höfundur þessara lína at-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Getur haft áhrif á hag
300 bænda.
í greinargerðinni segir orð-
rétt:
1. í þeim 6 hreppum í Suður-
Þingeyjarsýslu, sem fyrirhugað
ar breytingar á vatnasvæðum
Laxár og Skjálfandafljóts
snerta, búa nú yfir 300 bændur
og gætu breytingarnar haft
áhrif á hag flestra þeirra beint
eða óbeint.
«iiiiiiiiiii ii liiiiiimtiiiiiiiiui ii iiiiiii 111111111111 iiiiii>»i>
| KJÖRDÆMISRÁÐS-1
IFUNDUR |
| JAFNAÐARMENN í Norð- í
| urlandskjördæmi eystra, at- |
1 hugið. Kjördæmisráðsfund- i
§ urinn verður haldinn í félags i
i heimilinu að Strandgölu 9, i
i Akureyri, dagana 25.—26. i
i október n. k. Þess er vænst i
i að jafnaðarmenn í kjördæm- i
i inu fjölsæki á fundinn. Frá i
i tilhögun dagskrár o. fl. verð- i
[ ur nánar frá skýrt í næsta i
i blaði. i
• • •< i ■ i ■ ■ 111 ■ 111 • 11 ■ 11 ■ 11 ■ ■ ■ i ■ i
i ■ ■ ii 11 ■ ■ ■ ■ ■ i ■ 111111 ■ ■
2. Vatnasvæði Skjálfanda-
fljóts nær til Aðaldæla, Reyk-
dæla, Ljósavatns og Bárðdæla-
hrepps. Skjálfandafljót er fisk-
gengt frá sjó um 30 km. veg
fram að fossum við Þingey, á
því svæði hefur silungsveiði og
nokkur laxveiði verið stunduð.
frá ómunatíð fyrir landi fjöl-
margra jarða. Með því að gera
laxgengt fram fyrir fossa bætist
við allt að 60 km. vatnasvæði í
Bárðardal. Slík fiskvegargerð
er ekki talin kostnaðarsöm og
þegar hefur verið kosin nefnd
veiðiréttareigenda, sem vinnur
að undirbúningi fyrir stofnun
veiði- og fiskræktarfélags fyrir
allt vatnasvæðið. Skjálfanda-
fljót er jökulá mjög blandað
bergvatni og verður alltært
þegar jökulleysingar eru litlar.
Svartá með Suðurá eru megin
bergvatnsárnar, sem falla í
Skjálfandafljót. Það er kunnugt
frá fornu fari að veiðin í Skjálf
andafljóti, hvort sem stunduð
var með netum eða stangveiði,
var við það bundin að fljótið
væri hreint, það er að berg-
vatn væri þar yfirgnæfandi.
(Eftir vatnamælingum í októ-
Skipulagsnefnd bæjarins sefur á tillögum frá
íþrótfaráði í tvo mánuði -
Akureyri 30. sept. S. J.
Á bæjarstjórnarfundi í dag
upplýstist það að skipulags-
nefnd Akureyrarkaupstaðar
hefur lúrt á tillögum frá
fþróttaráði bæjarins í 2 mán-
uði varðandi tillögur ráðsins
að svæðið sunnan sundlaug-
anna yrði skipulagt, en íþrótta
ráð hafði einróma mælt með
því að á þessu svæði yrði kom
ið upp vélfrystu skautasvelli
— og framkvæmdir yrðu þeg-
ar hafnar á þessu sumri. í dag
fyrir bæjarstjórnarfundinn
rumskaði skipulagsnefnd loks
ins við sér — og varð niður-
staða hennar sú, að eigi væri
búið að skipuleggja svæðið og
hið vélfrysta skautasvell virð-
ist því enn vera fjarlægur
draumur í bæ þeim sem kjör-
inn hefur verið miðstöð vetrar
íþrótta á íslandi.
Á bæjarstjórnarfundinum
gagnrýndu þeir Þorvaldur
Jónsson og Gísli Jónsson þenn
an seinagang og vildu að þeg-
ar í stað yrðu hafnar fram-
kvæmdir við skautasvellið. En
skoðanir þeirra hlutu ekki náð
fyrir augum meirihluta bæjar
stjórnar og var samþykkt að
vísa málinu til bæjarráðs. Að-
eins 3 bæjarfulltrúar greiddu
atkvæði móti þeirri málsmeð-
ferð, Gísli Jónsson og báðir
fulltrúar jafnaðarmanna, Þor-
valdur Jónsson og Valgarður
Haraldsson.
Ráðgert er að halda hér í
vetur vetrarhátíð í íþróttum
og mun íþróttaráð hafa verið
búið að ganga frá drögum að
dagskrá þeirra hátíðahalda, en
sýnt er að skipulagsnefnd bæj
arins hefur komið í veg fyrir
það með „svefni" sínum að
boðlegt svæði varðandi skauta
íþróttina verður ekki fyrir
hendi. Mun mörgum finnast
það allóréttlátur löðrungur í
garð akureyrsks íþróttafólks á
þessu sviði, eða hvert er álit
Skautafélags Akureyrar? því
að einmitt í þessari íþrótta-
grein hafa Akureyringar náð
hvað lengst á sviði iþrótta á
landsmælikvarða.
Já, og til hvers eru ráða-
menn bæjarins yfirleitt að
hafa á vegum sínum íþrótta-
ráð, úr því að skipulagsnefnd
er látið líðast það að hunza
tillögur þess með tveggja
mánaða svefni?
Leiðarinn: SAMEINING - EN EKKI SUNDRUNG