Alþýðumaðurinn - 02.12.1972, Page 2
Opinnskóli - Hvers vegna?
ÞEGAR litiS er yfir sögu skóla
bygginga, má oft sjá þess
merki, að náin tengsl eru milli
lögunar og gerðar skólabygg-
inga og starfseminnar, sem
fram á að fara innan veggja
þeirra, þó er það ekki fyrr en
nú hin alra síðustu árin, sem
farið er að gefa þessum tengsl-
um verulegan gaum.
Oft var það svo hér áður
fyrr, að þeir, sem töldust bera
ábyrgð á skólabyggingarfram-
kvæmdum, mátu meir, að reisa
sveitarfélaginu eða jafnvel
sjálfum sér eins konar minnis-
varða, heldur en að taka mið
af þeirri starfsemi, sem fram
skyldi fara í húsinu og talið
var æskilegt, að nemendur
nytu góðs af og efldu alhliða
þroska þeirra.
Af nærtækum dæmum má
benda á: nýtt skólahús Iðn-
skóla Akureyrar. Hver skyldi
ætla við fyrstu sýn, að um
væri að ræða höfuðstöðvar iðn
fræðslunnar á Akureyri. í
sömu súpunni er Oddeyrarskól
inn. Þar spáði byrjunin heldur
góðu, en lokin hafa reynzt
hörmuleg, og enn er fullnaðar-
gerð skólans ekki lokið.
Skólahús koma til með að
standa áratugum saman, því er
nauðsynlegt, að til þeirra sé
vandað og horft fram í tím-
ann, hvað notagildi af húsnæð
inu snertir. Hér læt ég staðar
numið, en mörgu má bæta við
í þessa upptalningu.
Hin síðari ár er smátt og
smátt að koma æ betur í ljós,
að skólahúsið sjálft reynist oft
vera beinlínis Þrándur í Götu
eðlilegra og nauðsynlegra
breytinga á kennsluháttum,
sem fram koma á hverjum
tíma. í stað þess að vera tæki
til þess að auðvelda nýjungum
inngöngu í skólana, hefir skóla
húsið með sínum mörgu hólf -
um, — svonefndum kennslu-
stofum —, stuðlað fremur að
status quo innan stofnunarinn
ar. Sjá allir hversu óheppilegt
slíkt er, þegar haft er í huga,
að eitt helzta markmið skóla-
starfseminnar í dag, er að búa
nemendur undir að lifa í sí-
breytilegum heimi, — heimi
tækni og vísinda, sem oft er
svo nefndur.
Ég lít svo á, að það séu eink
um tvö atriði, sem ráðið hafa
úrslitum um stefnubreytingu í
byggingu skóla. Hið fyrra á
rætur að rekja til kennslunn-
ar og breytinga á henni, en hið
síðara kemur inn á hina fjár-
hagslegu hlið og tæknilegu
lausn viðfangsefnisins. Ég ætla
að freista þess, að lýsa þessu
öllu nánar, einkum þó fyrr-
nefnda atriðinu.
Mér er hins vegar ljóst, að
ýmsir erfiðleikar eru á því, að
gera í stuttu máli grein fyrir
eðli þeirra breytinga, sem eru
að gerast í skólum út um allan
heim. Greinilegt er, að nýjung
ar í kennslu geta borið að
garði með ýmsu móti, sem jafn
framt er oft ákvarðandi um
langlífi þeirra.
Hér er á ferðinni viðfangs-
efni, sem ekki er hægt að af-
greiða á þann einfalda hátt, að
um tízkufyrirbæri sé að ræða.
Það á sér til muna dýpri ræt-
ur eins og eftirfarandi upptaln
ing ber vitni um:
1. Þær lýðræðishugsjónir,
sem talið var æskilegt, að skóla
kerfi ættu að grundvallast á,
hafa raskazt og breytzt skyndi
lega.
Nú er svo komið, að skyldu-
námsfræðsla í 8—9 ár, er tal-
in til sjálfsagðra, almennra
mannréttinda hjá flestum þjóð
um heims. Og þeim einstakl-
ingum fjölgar sífellt, sem leita
eftir framhaldsnámi og síðan
áfram til „æðra“ náms.
Menntun er ekki lengur
bundin við tiltölulega fámenn-
an hóp einstaklinga, heldur er
henni ætlað að ná til alls
fjöldans.
2. Vaxandi skilningur á fél-
agslegu misrétti þegnanna,
sem viðgengst allt of víða í
þjóðfélaginu, og er tíð orsök
þess, að námshæfileikar fara
í súginn.
Jafnframt hefir breyting
orðið á skilningi manna á hug
takinu námshæfileikar. Ame-
ríski sálfræingurinn Benjamín
Blomm frá Chicago heldur því
m. a. fram, að mun hærra hlut
fall hvers aldursárgangs eigi
að geta skilað viðunandi af-
köstum í námi en hingað til
hefir verið álitið, en bætir þó
við, til þess þarf bæði tíma og
rétta kennslutækni. Blomm er
einn af höfundum svonefnds
hlítarnáms, mastery learning.
en kenningin á rætur að rekja
til ofangreindrar tilgátu
Blomms.
Að allir einstaklingar skuli
hafa jafnan rétt og tækifæri
til menntunar, eru sjónarmið,
sem flestar þjóðir í dag viður-
kenna. En spurningin snýst
ekki einungis um það að
opna skólana fyrir öllum,
heldur verða skólarnir fyrst
og fremst að vera undir
það búnir að mæta þörfum
nemendanna og leiðbeina þeim
eftir getu hvers og eins, —
einstaklingshæfa kennsluna, ef
því er að skipta.
Fer því í vöxt, að líkamlega
og andlega fötluð börn sæki
almenna skóla, þar sem séð
er fyrir sérþörfum þeirra.
3. Reynt er að miða kenn-
sluna meir við hvern ein-
stakling en áður hefir tíðk-
ast. Sökum þess er hin hefð-
bundna skipun nemenda í
fasta bekki mjög að hverfa úr
sögunni. Nemendum er raðað
saman með ýmsu móti í mis-
munandi fjölmenna námshópa,
þar sem skírskotað er til sam-
starfsvilja nemenda sín í milli
eða kennara og annars starfs-
fólks, þega rt. d. er um stóra
nemendahópa að ræða.
Lengd kennslustunda er
ekki eins afmörkuð og áður
var, því ræður fremur við-
fangsefnið, sem glímt er við
hverju sinni.
4. Ný kennslutæki af ýmsu
tagi hafa gert skólunum kleift
að einstaklingshæfa kennsluna
betur en áður var. Ekki er
lengur bundið við það, að kenn
arar stjórni þessum kennslu-
tækjum, heldur eru þau feng-
in nemendum í hendur til af-
nota. Margháttuð kennslu-
tækni hefir því rutt sér til
rúms með tilstuðlan kennslu-
tækja, og beinist hún einkum í
þá átt, að nemandinn verði
sem virkastur í skólastarfinu.
5. Inntak menntunarinnar
hefir breytzt mjög ört á síð-
ustu árum. Skeður það eink-
um með þeim hæti, að nýtt
námsefni á sviði raungreina,
t. d. stærðfræði, eðlisfræði,
efnafræði og líffræði hefir
færzt í vöxt 1 skólunum. í kjöl
far þessa hefir svo komið fram
þróun á námesfni í félagsfræð
um, tungumálum og fleiri
greinum. Hafa þessar breyting
ar gjarnan leitt til endurskoð-
unar á eldra námsefni skól-
anna, og hefir sú leið víða ver-
ið farin að þjappa skyldum
námsgreinum saman með það
fyrir augum, að draga úr náms
efnismagninu, og þannig reynt
að forðast að íþyngja nemand-
anum um of.
Af því, sem hér að framan
hefir verið talið upp, má ráða,
að heildaráhrif nýjunganna
virðist stefna í þá átt að leysa
upp hið einstrengislega skóla-
kerfi, ekki til þess að annað
nýtt og jafnvel enn verra kerfi
komi í staðinn, heldur til þess
að skólarnir eigi auðveldara
með að taka upp ný vinnu-
brögð og ný námsmarkmið,
sem þeim fylgja og eru í takt
við tímann, sem sagt námsskrá
skal sífellt vera í endurskoðun.
Að sjálfsögðu myndu nýj-
ungar í kennslu, krafan um
sveigjanleika húsnæðis og vax
andi þörf skóla fyrir kennslu-
tæki, — sem sum hver eru afar
dýr, hækka verulega stofn-
kostnað skólanna, ef ekkert
væri að gert.
Ýmsar leiðir hafa verið
reyndar til þess að draga úr
byggingarkostnaði skóla. —
Brezk skólayfirvöld munu
hafa vei’ið einna fyrst til þess
að taka nýja byggingartækni í
þjónustu sína, á árunum kring
um 1950.
Stöðlun á skólaeiningum hef
ir víða komið fram. Burðar-
veggjum hefir fækkað. Sbr.
FYEN-áætlunin í Danmörku.
Þó var það lengi vel svo, að
nýjungar í kennslu og bygg-
ingarlist virtust enga samleið
eiga. Það er fyrst á árunum
eftir 1960, sem skólamenn og
arkitektar í Kanada, Bret-
landi og Bandaríkjunum fara
að vinna saman á þessu sviði,
og upp af þessu samstarfi
spratt hugmyndin um „opinn
skóla“. Um reynslu sína af
fyrstu opnu skólunum í Banda
ríkjunum segir Jonathan King,
sem um árabil var varaforseti
skólabyggingarráðs New York
borgar þetta:
„Ekki ná allir opnir skólar
árangri. Hins vegar ef kennar
ar sýna viðfangsefninu áhuga
og skilning, og fái þeir auk
þess stuðning og uppörvun frá
skólastjóra og skólayfirvöld-
um til þess að starfa að nýjung
um í kennslu, hafa opnir skól-
ar sýnt þar ótvíræða yfir-
burði.“
f Englandi hefir opni skól-
inn fengið afar góðar viðtökur
bæði hjá sveitarstjórnum og
landsyfirvöldum og víða í þess
um opnu skólum fara fram at-
hyglisverðar tilraunir. Þróun-
in í Englandi hefir gengið í þá
átt, að nýjustu barnaskólarn-
ir eru fremur litlir, rúma ca.
300 nemendur á aldrinum
7—11 ára.
í Noregi var fyrsti opni skól
inn tekinn í notkun haustið
1968, svonefndur Hvalerskóli
á Vesturey í Oslófirði. Þetta
skólaform hefir fengið það góð
ar undirtektir hjá norskum
kennurum, að á sl. skólaári
voru starfræktir milli 40—50
skólar í 32 sveitarfélögum víðs
vegar um Noreg, og aðrir 50
eru í undirbúningi. Norska
skólarannsóknarráðið telur
nýtingu húsnæðis í opnu skól-
unum til muna betri, en sums
staðar var svo komið, að um
40% af húsnæði skólans fór í
ganga ,rangala og tengiálmur.
í Svíþjóð er þróunin með
opna skóla einna lengst komin
á vegum SAMSKAP, en svo
nefnist félagsskapur Malmö
og nærliggjandi sveitarfélaga
á sviði skólabygginga og nýrr-
ar kennslutækni. Samstarf
þetta hófst 1967 og hefir þeg-
ar komið mörgu góðu til leið-
ar.
Sl. haust var nýr skóli tek-
inn í notkun í Malmö, Örta-
gardsskólinn, og því lítil
reynsla fengin af honum. Þenn
an skóla sækja ekki aðeins
Valgarður Haraldsson.
heilbrigð börn, heldur líka
böi’n með skerta greind og
líkamlega fötluð börn og
blanda þar geði við jafnaldra
sína og stofna til vináttu. Það,
sem einkum hefir vakið at-
hygli gesta, sem að garði ber,
er sú vinnugleði og ró, sem
hvílir yfir skólastarfinu á
teppalögðu gólfinu, kennarar
ganga um leiðbeinandi, ráð-
leggjandi og hvetjandi. SAM-
SKAP telur, að samstarfið
hafi þegar borið þann árang-
ur, að nú sé byggingarkostnað
ur allt að 10—15% minni en
áður var á samsvarandi stærð
á skólum.
Þetta eru aðeins örfá dæmi
um þá athygli og viðtökur,
sem opinn skóli hefir hlotið í
nokkrum löndum. Allir skóla-
menn eru sammála um það,
að opni skólinn stuðli mjög að
nýjungum í kennslu og skóla-
starfi, enda er svo komið, að
nýir opnir skólar eru í upp-
siglingu víðs vegar um allan
heim.
Þar sem fyrir dyrum stend-
ur að reisa nýtt skólahús í
Lundshverfi hér í bæ, tel ég
sjálfsagt ný sjónarmið í þess-
um efnum séu kynnt bæjarbú-
um, og ekki síður yfirvöldum
bæjarins, sem taka endanlega
ákvörðun um hönnun skólans.
Skólahús kemur til með að
standa ekki í einn áratug held
ur marga. En skólastarfið verð
ur sífellt að breytast. Við get-
um ekki miðað eingöngu við
það, sem er í dag. Hvernig
verður skólastarfið um alda-
mótin?
Þegar horft er fram í tím-
ann, verður ekki hjá því kom-
izt, að taka tillit til- þeirra sjón
armiða, sem efst eru á baugi í
byggingu skólahúsnæðis, og
því ber að vanda allan undir-
búning og leita sem víðast upp
lýsinga.
Ekki ósjaldan er minnzt á
höfuðstað Norðlendinga sem
skólabæinn Akureyri. Þeirri
nafngift hlýtur að fylgja eitt-
hvert forustuhlutverk?
Akureyri, 30. okt. 1972.
Valgarður Haraldsson.
Heimildir:
Frá Noregi:
Forsök i Skolen 1971
Ápne Skoler 1971
B. Rodhe, Svíþjóð:
A TWO-WAY OPEN
SCHOOL.
2 — ALÞÝÐUMAÐURINN