Alþýðumaðurinn - 10.12.1974, Side 6
\ bókamarkaðinum
.❖❖❖❖❖❖.^❖❖❖.^.^^❖❖❖❖.^^❖❖❖.❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖.^.❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖<.
skil. Þá eru í henni meira en
1200 uppsláttarorð i stafrófsröð,
sem vísa til annarra orða, svo
að gildi bókarinnar verður enn
meira. Auk þess eru orðaskýr-
ðlálmblendi
Framhald af bls. 1.
notkun með hitaveitu svo eitt
dæmi sé nefnt“.
„Alþýðuflokkurinn hefur um
árabil haft þá afstöðu, að við
Islendingar eigum ekki að binda
með lögum, einhverjar reglur
um þátttöku erlends fjármagns í
íslensku atvinnulífi, heldur eig-
um við að taka afstöðu til hvers
atviks fyrir sig, þegar það kem-
ur fyrir. Alþýðuflokkurinn
studdi á sínum tíma byggingu
álversins í Straumsvík og telur
að þar hafi í meginatriðum
tekist vel til.
Við munum svo á flokks-
stjórnarfundi ræða nánar þær
aðstæður, sem nú er uuppi í
samningamálunum við Union
Carbide“.
Flónu smjörlíki
er heiti á nýútkomnum bæklingi,
sem Smjörlíkisgerð KEA gefur
út. Þar eru kökuuppskriftir, sem
liinn þekkti danski húsmæðra-
kennari og matreiðslubókahöf-
undur, frú Bodil Dörge, er höf-
undur að. Við tilraunir með
þessar kökuuppskriftir notaði
frúin Flóru smjörlíki og Robin
Hood hveiti, þannig að segja
má, að hinn rétti árangur bakst-
ursins byggist á notkun þessara
tveggja vöruheita.
Þessi bæklingur er sá fyrsti
af sex, sem Smjörlíkisgerð KEA
mun gefa út ánæstu mánuðum
og dreift verður ókeypis á öllum
útsölustöðum Flóru smjörlíkis.
Væntanlega þykir íslenskum
húsmæðrum akkur í því að
kynnast kökum Bodil Dörge, en
fáar þjóðir — ef nokkur —
munu standa dönskum framar í
kökugerð.
Bæklingur þessi er mjög
smekklegur. Prentun annaðist
Prentverk Odds Björnssonar og
hönnun Kristján Kristjánsson,
Akureyri.
Fréttatilkynning.
Hægri vinstri
sólar, njóti ekki sjálfs lífsins.
Þjóðfélag okkar má ekki vera
þannig upp byggt, að ungt fólk
þurfi að vinna svo mikið að það
hafi ónógan tíma fyrir sjálft sig
og sitt fólk. Þetta er í sjálfu sér
ekki hægri stefna og ekki vinstri
stefna. Þetta er stefna framtíð-
arinnar.
ingar, litmyndir og svart-hvítar
myndir, kort, línurit, ártöl,
fjölda margir ritningarstaðir og
margt annað, sem að gagni kem-
ur, við lestur Biblíunnar. Marg-
ur spyr í dag: Hver er ham-
ingjuleiðin, og hvar er hennar
að leita? Hún er nær, en nokkur
hyggur. „Taktu og lestu“, var
eitt sinn sagt við niðurbrotinn
ungan mann. Hann hlýddi, tók
Biblíuna og las, og varð síðan
mikill spekingur.
Taktu og lestu Biblíuna, þar
finnur þú hamingj uleiðina, les-
andi góður. Lestur hennar verð-
ur þér auðveldari og gagnlegri,
ef þú hefur Biblíuhandbókina
þína við hendina. Hún er vissu-
lega uppsprettulind mikillar
visku og speki og vel þess virði,
að eftir henni sé tekið.
Ég lfk þ essum eftirmála, með
hvatningarorðum spámannsins:
„0, land, land, land, heyr orð
Drottins“. -
Setning, prentun og band bók-
arinnar er unnið hjá Prent-
smiðjunni Eddu hf. Hilmar
Helgason gerði káputeikningu.
Silhouette
Blúnduplast í
metratali
Stórkostleg nýjung
Komið, skoðið, sannfærist
AMARO
Lúðvík og togarakaupin
í sjónvarpsþætti nú fyrir
skömmu sátu fyrir svörum hjá
Eiði Guðnasyni, þeir Jón A.
Héðinsson alþingismaður og
Kristján Ragnarsson formaður
L. í. Ú.
Báðum þessum mönnum kom
saman um það, að togarafloti
landsmanna hefði verið allt of
hratt endurnýjaður, fjárhagsleg
geta þjóðarbúsins hefði ekki
verið fyrir hendi.
Maður er nefndur Lúðvík
Jósepsson, telur sig þjóðhollan
mjög, og var sjávarútvegsráð-
herra á þeim árum sem skipin
voru hvað flest keypt til lands-
ins, og engin mátti nein varn-
aðarorð láta frá sér fara, svo
Lúðvík og hans flokksbræður
hrópuðu ekki á afturhald, og
verið væri að reyna, að koma í
veg fyrir eðlilega endurnýjun
togaraflotans.
En mörgum finnst það vafa-
söm þjóðhollusta hvernig staðið
var að þessum málum, þegar að
allflestir sáu það löngu fyrir-
fram hvað ætti eftir að ske í
fjármálum þjóðarinnar og talið
er að fyrrv. sjávarútvegsráð-
herra hafi gert sér grein fyrir
því, að hann myndi ekki um
margra ára bil verma setu ráð-
herrastólsins, og þá yrði á hönd-
um annarra, að glíma við eftir-
leikinn.
Öl, brennivín, fóbak og
bíómiðar hækka I verði
Loksins eru þau komin,
Straubrettin
með
taugrindinni
Nokkur
ermabretti
fylgdu með í sendingunni.
Einnig
sturtuhengi
íbúðin hf.
Strandgötu 13 —
Sími 2-24-74.
Nýlega hafa orðið nokkrar verð-
hækkanir á vörutegundum svo
sem áfengi og tóbaki m. a.,
þannig að áfengi hækkaði um
15% en lóbak um 10%, einnig
öl um 10—15% og bíómiðar
um 18%.
Til samanburðar kostaði ein
flaska af íslensku brennivíni
1210 kr., en kostar nú 1390 kr„
og wiskytegund sem kostaði áð-
ur 1850 kr. kostar nú 2150 kr.
Þá fór sígarettupakki, sem
kostaði áður 115 kr. upp í 127
kr.
Bíómiðar fullorðinna kostuðu
áður 165 kr. en kosta nú 195 kr.
og barnamiðinn fór úr 60 kr. í
70 kr.
01 hækkar nokkuð mismun-
andi eftir tegundum l. d. fer
lítil kókflaska úr 27 kr. í 29 kr.,
pilsner úr 38 kr. í 42 kr. og
maltöl úr 37 kr. í 41 kr., og er
þetta miðað við öl og gosdrykki
úr Reykj avík.
Aftur á móti finnst okkur á-
stæða til að benda fólki, sem á
eftir að kaupa öl til jólanna, á,
það, að appelsínflaska frá Sana
kostar nú 24 kr. á móti 31 kr.
á appelsíni frá Reykjavík, eða
7 kr. mismunur og maltölflaska
frá Sana kostar nú 32 kr. eða
9 kr. mismunur miðað við malt-
öl úr Reykjavík.
Þessi mikli verðmismunur
stafar af flutningskostnaði á öl-
inu á milli Reykjavíkur og Ak-
ureyrar.
Lán úr
fiskveiða-
Til jólagjafa
Síðir telpnanáttkjólar,
stærðir 2—14,
— fjórar gerðir.
Dömunáttkjólar,
síðir og stuttir.
Verslurtin
DRÍFA
sími 2-35-21.
Hafnarstræti 103,
• > % •
SJOOI
Fyrir nokkru rákumst við á all
merkilegar tölur úr ársskýrslu
Fiskveiðasjóðs frá árinu 1973.
Þar var upptalin skipting lána
úr sjóðnum til hinna einstöku
kmrdæma landsins. Það vakti
athygli, að Austurlandskjör-
dæmi var þar með langhæsta
lánið, eða 681 milljón sem gera
30% af heildar lánsfjúrupphæð-
inni. En þegar að betur var að
gáð, þá er þetta kannski ekkert
óeðlilegt, því einn af þingmönn-
um Austurlandskjördæmis, er
einmitt Lúðvík Jósepsson, og
hann var einnig sjávarútvegsráð-
herra árið 1973.
Til fróðleiks og samanburðar
skal þess líka getið, að hlutur
Norðurlandskjördæmis eystra
þetta sama ár, var 124 milljónir
eða 6% og var ekkert af kjör-
dæmum landsins með lægri töl-
ur. Það er munur að eiga sjávar-
útvegsráðherra úr sínu kjör-
dæmi.
6 - ALÞÝÐUMAÐURINN