Alþýðumaðurinn - 10.12.1974, Blaðsíða 8
<NXV
=S
EIN OGRUNIN ENN
Kjarasamningar þeir, sem gerð-
ir voru á s. 1. vetri, áttu að gilda
fram til 1. apríl 1976. Með því
að semja til svo langs tíma,
gengu verkalýðsfélögin til móts
við það sjónarmið, að æskilegt
væri að tryggja frið á vinnu-
markaðinum um nokkurt skeið,
svo stjórnvöld gætu fengið þann
frið til athafna, sem þau hafa á
stundum ásakað verkalýðshreyf-
inguna fyrir að vilja ekki veita.
Með því má segja, að verkalýðs-
hreyfingin hafi ásett sér ,að taka
þá áhættu, að treysta ríkisstjórn
þeirri, sem þá sat að völdum í
landinu og þeim ríkisstjórnum,
sem kynnu að leysa hana af
hólmi.
En ríkisstjórnin reyndist ekki
traustsins verðug — hvorki sú,
sem sat í vetur og vor og nefndi
sig „vinstri stjórn“ né hin, sem
tók við af henni. Ríkisstjórn
Framsóknarflokksins og Al-
þýðubandalagsins lét það verða
eitt sitt fyrsta verk að ógilda
með valdboði hina nýgerðu
kjarasamninga og Alþýðubanda-
lagið ætti að minnast þess, að
það voru ráðherrar þess, sem
tóku höndum saman við ráð-
herra Framsóknarflokksins um
það verk, jafnvel þótt þeir hafi
áður verið búnir að leggja bless-
un sína yfir þá samninga, sem
gerðir voru. Ihaldsstjórnin, sem
tók við völdum í sumar, gekk
svo enn lengra uns nú er svco
komið, að bein kaupmáttar-
skerðing launanna nemur 13 —
22%. Ef kjarasamningunum
liefði verið fylgt, hefði launa-
fólkið nú átt að fá 38 — 39%
kauphækkun, til þess að vinna
upp á móti þeim óðaverðhækk-
unum, sem orðið hafa undan-
farna mánuði. En launafólkið
fær ekki svo mikið sem brota-
hrot af þessum verðlagsbótum.
Því réðu fyrst Framsóknarflokk-
urinn og Alþýðubandalagið í
sameiningu, og nú Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokk-
urinn.
Um fyrri helgi hélt Alþýðu-
samhand Islands sambands-
stjórnarfund, þar sem þessi mál
voru rædd. í ályktun fundarins
er lögð þung áhersla á, að við
svo búið megi ekki standa og
einkum og sér í lagi þurfi hið
hráðasta að leiðrétta kjör
þeirra, sem lægst eru launaðir
og verst hafa farið út úr sam-
skiptunum við ríkisstjórnir
Framsóknarflokksins og Alþýðu-
handalagsins og Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins. Takmark verkalýðshreyfing-
arinnar er ekki það að krefjast
meiri kjarabóta en samningarnir
frá því í vetur færðu launþegum.
Takmarkið er að við þá verði
staðið — að stjórnvöld skili
verkalýðnum aftur því, sem frá
honum hefur veriðtekið.
Þessari kröfu verkalýðssam-
takanna hefur ríkisstjórnin svar-
að. Og svarið var ein ögrunin
enn. I kjölfar kjaramálasam-
þykktar sambandsstjórnarfund-
ar ASÍ tilkynnti ríkisstjórnin um
allt að 20% verðhækkun á land-
búnaðarafurðum — mikilvæg-
uslu neysluvörum heimilanna.
Og svo vill til, að sú verðhækk-
un svarar nokkurnveginn til þess
hundraðshluta, sem kaupmáttur
launa fjölmargs láglaunafólks
hefur lækkað um. Þannig ögrar
ríkisstj órnin verkalýðnum.
44. árgangur - AUureyri, þriðjudaginn 10. des. 1974 - 21. tbl.
s
Rækjustríð við Húnaflóa
„Flóabardagi hinn nýi“, eins og
rækjustríðið við Húanflóa hefur
verið nefnt, hefur nú tekið nýja
stefnu.
Rækjuvinnsla mun hafa hyrj-
að eitthvað á Blönduósi fyrir
helgina, og bátarnir
tveir, Nökkvi og Aðalbjörg, sagt
upp samningum sínum til lönd-
unar á Hvammstanga og byrjað
að leggja upp afla sinn á
Blönduósi.
Eins og kunnugt er, gaf sjáv-
arútvegsráðuneytið út veiðileyfi
til rækjuveiða, til handa þessum
tveimur bátum, og má það telj-
ast furðulegt, að gefin séu út
veiðileyfi háð þeim skilyrðurn,
að viðkomandi bátar landi ekki
í heimahöfn.
Alþýðumaðurinn snéri sér um
helgina til Kára Snorrasonar á
Blönduósi, og innti hann frélta
þaðan. í dag, sunnudag, erum
við að vinna hér rækju, sem
bátarnir lögðu upp líklega um
fjögur tonn og verðum allan
daginn á morgun að minnsta
kosti.
Okkur hér á Blönduósi finnst
það harla einkennilegt, að öll
þessi læti skuli þurfa að vera út
af okkur, á sama tíma og verið
er að byrja rækjuvinnslu á
Djúpavík, en það þykir kannski
horfa öðruvísi við, þar sem ég
veit ekki betur en bæði Stein-
grímur Hermannsson alþingis-
maður og Matthías Bjarnason
%
VOTERGATE Á ÍSLANDI
Tólfta grein frumvarps ríkis-
stjórnarinnar „um upplýsinga-
skyldu stjórnvalda“, sem samið
er að tilhlutan Ólafs Jóhannes-
sonar, dómsmálaráðherra, hefur
meðal löglærðra manna hlotið
nafnið: „Nixon-ákvæðið“. I
þessu umdeilda frumvarpi gerir
Ólafur Jóhannesson, dómsmála-
ráðherra, ráð fyrir því, að ráð-
herra viðkomandi stjórnvalds
felli fullnaðarúrskurð um, livort
skylt sé að afhenda eða veita
vitneskju um opinbert skjal, ef
deila rís um það, hvort það
skuli afhent, eða því haldið
leyndu fyrir almenningi. Ekki
er gert ráð fyrir, að hægt verði
að að skjóta úrskurði ráðherra
til hlutlausra dómstóla.
í frumvarpinu gerir Ólafur
Jóhannesson, fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar, nákvæmlega sams
konar kröfu og Richard Nixon
gerði við rannsókn Watergate-
málsins fræga, þegar hann hélt
því fram, að það væri fram-
kvæmdavaldsins, þ. e. forsetans,
að skera úr um, hvaða skjöl
og segulbandsspólur forsetaem-
bættisins skyldu gerð opinber
vegna rannsóknar málsins, en
ekki hlutlausra dómstóla.
í Watergate-málinu var ein-
mitt tekist á um valdsvið forset-
ans annars vegar, og starfssvið
dómsvaldsins hins vegar. I
Bandaríkj^unum varð, eins og
kunnugt er, ofan á, að dómstólar
skuli skera úr um upplýsinga-
skyldu stjórnvalda.
Verði tólfta grein frumvarps-
ins um „upplýsingaskyldu
slj órnvalda“ samþykkt óbreytt,
verður það háð duttlungum ein-
stakra ráðherra liverju sinni,
hvort almenningur á Islandi fær
upplýsingar um opinber mál.
n\\v
Aðalfundur Alþýðu-
flokksfélags Eyjafjarðar
S. 1. laugardag var haldinn aðal-
fundur Alþýðuflokksfélags Eyja-
fjarðar í Víkurröst á Dalvík.
Fundurinn var nokkuð vel sóttur
og meðal annarra voru mættir
geslir frá Ólafsfirði og
Akur-
málflutningi þeirra tvímenning-
anna, og tóku margir til máls,
og voru þeir spurðir spjörunum
úr, en þeir leistu vel og greið-
lega úr öllum spurningum.
Að sjálfsögðu fór fram stjórn-
eyri, og auk þeirra Finur Torfi arkjör á aðalfundinum, og
Stefánsson og Vihnundur Gylfa-
son úr Reykjavík. Skýrðu þeir
fundarmönnum frá störfum
fimm manna nefndar þeirrar,
sem kosin var á nýafstöðnu
flokksþingi Alþýðuflokksins, til
þess að leggja drög að nýrri
stefnuskrá flokksins, en sú nefnd
hefur það að markmiði að hafa
lokið störfum fyrir mánaðamót-
in janúar/febrúar 1975, og gæti
þá jafnvel orðið af aukaþingi
Alþýðuflokksins eigi síðar en
um páska í vetur.
Góður rómur var gerður að
eflirlaldir kosnir í stjórn Al-
þýðuflokksfélags Eyjafjarðar
næsta starfsár:
Formaður: Birgir Marinósson.
Ritari: Þóra Angantýsdóttir.
Gjaldkeri: Snorri Snorrason.
Varastjórn:
Viðar Jónsson.
Árni Ólafsson.
Jóhann Tryggvason.
Um kvöldið var svo haldinn
dansleikur með hingói í Víkur-
röst, á vegum Alþýðuflokksfé-
lagsins.
sj ávarútvegsráðherra séu í
stjórn Byggðasjóðs.
Vinnsla þessi hefur notið fyrir-
greiðslu úr byggðasjóði, en ekk-
ert slíkt hefur komið til hjá
okkur, enda höfum við ekki far-
ið fram á það.
Það er allt klárt hj á okkur hér
á Blönduósi, fiskmatið er búið
að gefa tilskilin leyfi og við
munum standa fast á rétti okkar
með að halda áfram rækju-
vinnslu hér, og ekkert getur
heldur stoppað bátana okkar af,
nema þá að landhelgisgæslan
verði látin skerast í leikinn. Við
teljum, að við höfum ekkert af
okkur brotið á einn eða annan
hátt, og erum alls ekki hressir
yfir þeim aðförum, sem að okk-
ur eru farnar, sagði Kári að
lokum.
Veistu
þetta?
Árið 1946
voru sett ný og
fullkomin lög
um almanna-
tryggingar,
fyrir forgöngu
Albýðuflokksins
Framsókn
var á móti