Búnaðarrit - 01.01.1931, Blaðsíða 404
BÚNAÐARRIT
ÐÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
hefir skrifstofu í Reyhjavík, Lækjargötu 14 B. Skrifslofan gefur
upplýsingar og leiöbeiningar í öllum greinum landbúnaöarins, eftir því,
sem starfsmenn félagsins geta í té látið. AÖal-starfsgreinar eru þessar:
A vegum Sigurðar Sigurðssonar búnaðarmálastjóra :
1. Umsjón með framkvæmd jarðræktarlaga og sandgræðslu:
Sigurður Sigurðsson, búnaðarmálastjóri.
2. Jarðyrkja: Ráðunautur Pálmi Einarsson, annast allar mæl-
ingar fyrir stærri jarðabótum, einkum áveitum, framræslu og
sandgræðslu.
Samskonar störfum gegnir Ásgeir L. Jónsson, vatnsvirkja-
fræðingur, undir umsjón félagsins, en á kostnað ríkissjóðs.
Á vegum Metúsalems Stefánssonar, búnaðarmálastjóra :
3. Garðyrkja: Ráðunautur Ragnar Asgeirsson, annast garðyrkju-
tilraunir í Gróðrarstöðinni í Reykjavík og leiðbeinir í garðrækt.
4. Fóðurrækt: Ráðunautur Metúsalem Stefánsson, búnaðarmála-
stjóri, annast fóðurræklar- og áburðartilraunir í Gróðrarstöðinni
í Reykjavík; hefir eftirlit með tilsvarandi tilraunum annarsstaðar
á landinu og leiðbeinir í fóðurrækt.
5. Grasfrærækt: Ráðunautur Klemenz Kr. Kristjánsson. Hann
rekur fræræktarbú félagsins á Sámsstöðum í Fljótshlíð, og
leiðbeinir um allt er að grasfrærækt lýtur.
6. Hrossarækt: Ráðunautur Theodór Arnbjörnsson, annasf allt
er að hrossarækt lýtur, og eftirlils- og fóðurbirgðafélögum.
7. Nautgriparækt: Ráðunautur Páll Zóphóníasson, veitir allar
leiðbeiningar um nautgriparækt.
8. Sauðf járrækt: Ráðunautu Páll Zóphóníasson, veitir allar
Ieiðbeiningar um sauðfjárrækt.
9. Verkfæra-val og verkfæra-tilraunir. Ráðunautur Árni G.
Eylands, leiðbeinir um verkfæri og vélar, í samvinnu við S. í. S.,
og stendur fyrir verkfæra-tilraunum sem B. í. lætur gera.
10. Fóðurtilraunir: Þórir Guðmundsson, kennari á Hvanneyri,
stendur fyrir fóðurtilraunum, er félagið lætur gera með sauð-
fé og kýr.
11. Klak og veiði í vötnum: Ráðunautur Ólafur Sigurðsson,
bóndi, Hellulandi.
JRT Þeir, sem óska ieiðbeininga, sendi um það skrif-
lega beiðni til skrifstofu Búnaðarfélags íslands.
ÖLLUM FVRIRSPURNUM ER SVARAÐ ÓKEVPIS!