Heimilið og KRON - 01.02.1939, Blaðsíða 8

Heimilið og KRON - 01.02.1939, Blaðsíða 8
HEIMILIÐ OG KRON Samvinnumaðurinn og KRON Það voru nokkrir verkamenn í Reykjavík, sem komu sér saman um að létta af sér kaupmannaokrinu. Þeir fóru að panta lífs- nauðsynjar sínar sjálfir, og notuðu kvöld- stundirnar til að skipta þeim á milli. Varan varð miklu ódýrari en hjá kaupmönnum. Verkamennirnir höfðu unnið stóran sigur í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þegar þessi fámenni hópur hafði brotið ísinn urðu þeir fleiri og fleiri sem sáu, að hér var stefnt í rétta átt og vildu slást í för. Þannig óx og dafnaði Pöntunarfélag verka- manna, unz það var orðið voldugt verzlun- arfyrirtæki, sem hafði aðstöðu til þess að hafa áhrif á allt verðlag og verzlunarháttu í höfuðstaðnum. Samhliða Pöntunarfélag- inu hafði vaxið upp önnur samvinnuverzlun hér í bænum, það var Kaupfélag Reykja- víkur. Þetta félag var stofnað fyrir atbeina Framsóknarmanna, og það voru þeir fyrst og fremst, er mynduðu félagið, og mun það hafa tafið nokkuð fyrir vexti þess, að fjöldi manna var haldinn af þeim fáránlega mis- skilningi, að félag þetta, sem og önnur kaupfélög, væri einskonar einkafyrirtæki Framsóknarflokksins. Það er rétt að taka fram til þess að fyrirbyggja allan misskiln. ing, að fjarri fór því að Framsóknarmenn sjálfir litu þannig á. Það var öllum hugsandi samvinnumönn- um ljóst, að ef samvinnuhreyfingin ætti að verða stórveldi á sviði verzlunarmálanna í höfuðstaðnum, þá þyrfti að sameina þessi félög. Heilbrigð skynsemi sigraði, félögin voru sameinuð, KRON var myndað. í stað- inn fyrir kjallarakompurnar, þar sem verkamenn hittust, að loknu dagsverki, til þess að skipta með sér vörunum, eru nú komnar nýtízku búðir, skrifstofur, bílar o. s. frv. í stað þeirrar hagsmunabaráttu, sem háð var í kyrrþey, af örfáum verkamönnum, 24 er nú komin voldug hreyfing, sem öll þjóðin þekkir og talar um, hreyfing, sem ógnar ægivaldi heildsalanna og annarra arðráns- manna. Þannig hefir sagan um vefarana frá Rochdale endurtekið sig hér í Reykjavik. En verkamaðurinn, sem á byrjunarskeið- inu tók virkan þátt í þvi að mæla og vega vöru, finnur það ef til vill ekki eins vel í dag eins og þá, að þessi volduga hreyfing er hans verk, að án hans væri hún ekki til, og að án hennar væri hann berskjaldaður fyrir okri kaupmannanna. En einmitt þann- ig er sambandið milli hvers einasta sam- vinnumanns, sem starfar innan vébanda KRON. Án einstaklinganna ekkert KRON, án KRON engin vörn gegn okurstarfsemi kaupmannastéttarinnar. Því verður ekki lengur við komið, að allir félagsmenn í KRON vinni að vöruúthlutun eða öðrum verzlunarstörfum eins og á fyrstu árum Pöntunarfélagsins, en eigi að siður getur hver einasti félagsmaður unnið persónulega fyrir félagið. Störf hans geta falizt í þessum atriðum: 1) Hann á að fylgjast með öllum rekstri og starfsemi félagsins í smáu og stóru, enda á hann heimtingu á öllum upplýsingum um þessi efni hjá skrifstofu félagsins eða full- trúum þess, sem kosnir eru á aðalfund. 2) Hann á að skýra starf og stefnu félags. ins fyrir þeim utanfélagsmönnum, er hann hefir persónulegt samband við. 3) Hann á að beina öllum sínum viðskipt- um til síns eigin félags. Ef þetta þrennt er rækt, þá finnur hver einasti félagsmaður, að KRON er hans fé- lag, finnur það á sama hátt eins og verka- mennirnir, sem skiptu með sér vöru á síð- kvöldum, fundu, að Pöntunarfélagið var þeirra félag. Sigfús A. Sigurhjartarson.

x

Heimilið og KRON

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilið og KRON
https://timarit.is/publication/609

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.