Heimilið og KRON - 01.06.1940, Side 9

Heimilið og KRON - 01.06.1940, Side 9
HEIMILIÐ OG KRON Aðalfundur Sambandsins Dagana 24.—27. júní s. 1. var aðalfundur SÍS að Laugarvatni. Aðalfundirnir hafa undanfarin ár verið haldnir á ýmsum skólastöðum: Hallormsstað, Reykholti, Laugarvatni, þar sem húsakostur er næg- ur fyrir fundargesti. Fulltrúar, sem mæta ár eftir ár, fá á þennan hátt tækifæri til að sjá verulegan hluta af landinu. Ferð- irnar á fundina verða því skemmtiferðir, jafnhliða og fulltrúar leysa af hendi skyldustörf sín. Fundurinn var afar vel sóttur, 67 full- trúar frá 47 sambandsfélögum voru mætt- ir, auk þess 7 stjórnarnefndarmenn, fram- kvæmdarstjórn og endurskoðendur. Af þeim, sem rétt hafa til fundarsetu, vant- aði að eins einn fulltrúa. Fulltrúarnir voru umbjóðendur 16.287 félagsmanna og munu það fjölmennustu félagssamtök, sem enn hafa þekkst hér á landi. Á fundinufn gekk eitt félag í samband- ið, Kaupfélag Suður-Borgfirðinga á Akra- nesi. Styrjaldarástandið og hinir óvissu tímar framundan settu svip sinn á fundinn. Um- ræður um nýjar framkvæmdir og starfs- breytingar voru litlar. En í sambandi við skýrslur félagsstjórnar og framkvæmdar- stjórnar, var rætt um hvernig erfiðleikun- um yrði bezt mætt. Hinn góði hagur Sam- bandsins og sambandsfélaganna og ágæt rekstursútkoma siðasta árs gerði léttari blæ, dró úr þunga yfirstandandi erfiðleika og gaf von um, að mótstöðukraftur félag- anna myndi sigrast á afleiðingum styrj- aldarinnar og skapa þeim að stríðinu loknu nýja og bjarta framtíð. Skýrsla félagsstjórnar. Einar Árnason alþm., formaður Sam- bandsins, skýrði frá gjörðum sambands- stjórnar síðasta ár. Hann gat þess, að búið væri að ganga frá stofnun lífeyrissjóðs S. í. S. og væTi sjóðurinn nú tekinn til starfa. Sjóðurinn tryggir lífeyri fyrir starfsmenn Sambandsins, fyrirtækja þess og þeirra sambandsfélaga, sem óska. Ennfremur tryggir hann lífey.ri fyrir ekkjur starfs- mannanna og börn innan 16 ára aldurs. Hann gat þess ennfremur, að stjórnin væri að undirbúa stofnun bréfaskóla, sem væntanlega tæki til starfa í haust og yrði byrjað að kenna: a. Skipulag samvinnufélaga og starfs- hætti þeirra. b. Fundarsköp og framkomu á fund- um. c. Bókfærslu. d. Ensku. Þá gat hann um viðbætur, sem gerðar hefðu verið á árinu við verksmiðjur Sambandsins á Akureyri, bæði aukningu húsakosts og véla. Loks gat hann um, að unnið hefði verið að því að samræma og bæta skipulag sambandsfélaganna og væru þau nú betur undir erfiðleika styrjaldar búin en nokku sinni fyrr. Skýrsla framkvæmdarstjórnar. Siguröur Kristinsson forstjóri og fram- kvæmdarstjórarnir Aðalsteinn Kristins- son og Jón Árnason gáfu skýrslu um starf- semi Sambandsins síðastliðið ár og hag þess. Hjá Sambandinu unnu í árslokin 206 karlmenn og 218 konur eða samtals 424 menn, þar af 324 við iðnað og 100 við verzlun og vörudreifingu. Vörusala Sambandsins 1939 var: Erlendar vörur og innlendar iðnaðarvör- ur frá öðrum en verk- smiðjum Sís .......... kr. 13.079.446.00 Innlendar afurðir......... — 14.959.352.00 57

x

Heimilið og KRON

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilið og KRON
https://timarit.is/publication/609

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.