Hlín - 01.01.1927, Blaðsíða 86
84
Hlín
eftirlœtisgoð hennar. María varð miðdepillinn, sem alt
líf hennar snjerist um og miðaðist við. — Þegar María
var liðlega tvítug veiktist hún, og náði aldrei heilsu síð-
an. Hún andaðist á Vejlefjord heilsuhæli í janúar árið
1907, tuttugu og þriggja ára gömul.
Þá fanst frú St. sem sólin myrkvaðist. Hún gat ekki
skilið, að líf sitt hefði neinn tilgang, þegar sú, sem hún
unni heitast var horfin frá henni. f mörg ár mintist
hún aldrei ógrátandi á Maríu sína. Það varð henni helst
til huggunar að ráðstafa eigum sínum þannig, að það
sem hún ljeti eftir sig, mætti halda uppi minningu
Maríu. Tók hún til að semja arfleiðsluskrá og vakti oft
við hugsun um það á nóttunni. Las hún upp kafla úr
skjali þessu fyrir þeim, sem hún treysti best.
Tíminn leið og hún lifði Maríu sína í 15 ár. — Smá-
saman tók frú St. aftur gleði sína. Hún tók sjer nýja
fósturdóttur, sem varð henni bæði til gleði og sóma.
Frú Stephensen andaðist á Landakotsspítala 29. júní
1922.
I mínum augum var hún ímynd sannrar höfðings-
konu, og vildi jeg óska að ísland ætti mai’gar slíkar.
Akureyri í júlí 1927.
Kristín Matthiasson.
Ættjarðarást.
Erindi
flutt í Kennaraskólanum af sr. Magnúsi Helgaayni, skólastjóra.*
Ýmsir segja, að aldrei verði góð vísa of oft kveðin.
Jeg held, að það sje nú ekki satt. Það má þrástagast svo
á góðri vísu, fögrum orðum, hollum áminningum, jafn-
* Erindið birtist samkvæmt beiðni ritstj. »Hlínar«.