Dvöl - 04.03.1934, Blaðsíða 9
4. marz 1934
D V
Ö L
7
Frá Spáni.
S e r k j a
Márarnir voru yfirstétt á Spáni
í margar aldir. Þeir fluttu úr
fjarlægum löndum, sunnan og
austan við Miðjarðarhaf, venjur,
sem voru sérkennilegar fyrir hin
heitu lönd, sem þeir komu frá.
Ein af þeim eru Serkjagrafirnar.
I kirkjugörðum á Spáni eru
víða stórbyggingar úr steini, þar
sem geymdar eru jarðneskar
leifar hinna framliðnu. Eftir
byggingunni miðri liggur stein-
veggur, nokkurra metra hár, og
skiftir henni í tvo jafna hluta.
Veggur þessi aðskilur graf-
hólfin. Það eru steinhólf, hæfi-
lega stór til að rúma eina líkkistu.
Oftast eru 4—5 hólf hvert yfir
öðru, og miðast hæð byggingar-
innar við það, að ekki sé mjög
erfitt að lyfta kistunum inn í
efstu hólfin. Vegna hitans á
Spáni er með lögum fyrirskipað,
a<3 jarðarför fari fram innan sól-
arhrings frá andláti mannsins.
er líkið sett í mjög þunna og
ódýra kistu, miklu veigaminni
heldur en tíðkast hjá norrænum
hjóðum. Síðan leggur líkfylgdin
af stað, og er venjulega fámenn.
Tveir eða fleiri prestar fylgja.
Kirkjugarðarnir eru nú hafðir ut-
an við borgirnar. Þegar þangað
kemur, er kistunni lyft af vagn-
lnnm, og ýtt inn í gröfina. Stein-
smiður lokar grafarmunnanum
gr afir.
með hellu, sem fellur í opið, og
er fest með steinlími, svo að gröf-
in er nærri loftheld. Hin eig-
inlega dánarminning fer fram
nokkrum dögum síðar í kirkju
hlutaðeigandi ættar. Þangað safn-
ast ættingjar og vinir, og þar er
haldin sorgarguðsþjónusta,. mis-
jafnlega vegleg eftir því sem að-
staða ættingjanna leyfir.
Hinn sterki sólarhiti nær til lík-
anna í múrgröfunum og veldur
því, að þau leysast skjótt í sund-
ur, og eftir verður hismið tómt.
Þar sem umkomulausir menn eiga
í hlut, eru grafirnar opnaðar eft-
ir nokkur ár, hismið er tekið og
grafið í kirkjugarðinn þar sem
múrgrafirnar eru, en ný líkkista
er sett í staðinn. En þeir sem bet-
ur mega, borga nógu vel fyrir, að
leifar þeirra megi vera í friði
meðan múi'veggirnir standa.
Norrænu þjóðirnar fela leifar
hinna dánu í faðmi moldarinnar.
Einar Jónsson hefir sýnt í einni
af höggmyndum sínum, hvernig
moldin faðmar lífið. En á Suður-
löndum er klettagröfin heimkynni
hinna dánu. Suður við strendur
Miðjarðarhafsins endurtekur sig
2000 ára gömul sögusögn nýja
testamentisins. Sá, sem kveður
lífið, er fluttur í klettagröf og
grafarmynninu lokað með steini.
J. J.