Dvöl - 04.03.1934, Blaðsíða 14

Dvöl - 04.03.1934, Blaðsíða 14
12 D V Ö L 4. marz 1934 kemur öllum saman um það, að Þingvelliri sé skínandi — a lion! Kvöldverður — egg, lax og te, og nú segir þreytan til sín. Rúm- in í herberginu okkar eru mjög þægileg, en þiljurnar eru þunnar eins og pappír og hér er hrotið í hverju rúmi. — Hér er sögulegur, heilagur staður, hjartastaður íslands um nærri níu aldir. Hér voru lög sett, barizt, farið í leiki og drukkið. í því tóku þátt allir þeir menn, sem kunnir eru af sögunum vegna afreksverka, sem enn hleypa kappi í kinn hverjum manni af norrænu kyni. Þú segir, að þessir menn hafi verið ósið- aðir ruddar, bardagamenn. Hvað get ég sagt við því ? En þetta var líka á öld sterkra tilfinninga mag-naðra ástríðna, háska og af- reksverka. Þegar Egill Skalla- grímsson fann líkið af óskasyni sínum, reiddi' hann það fyrir framan sig að haugi föður síns og lét rjúfa hann, til þess að geta byrgt son sinn þar inni. Sagan segir, að ekki mælti hann orð frá vörum meðan haugurinn var rofinn, en svo fékk þetta horium mikils, að nærskorin klæðin rifn- uðu af honum. Þú mátt kalla sorg þessa frumstæða og frásöguna sögn. En ég trúi þessu og ég skil það. Um þetta hraun hafa þeir gengið Njáll og Gunnar frá Hlíð- arenda, tvær hinar merkustu persónur, sem sögurnar greina frá. Og þarna er Öxarárhólmi. Þar voru einvígi háð. Hið síðasta að landslögum háðu þeir Skáld- Hrafn og Gunnlaugur ormstunga, vegna Iíelgu hinnar fögru á Borg. Allir sem drukkið hafa Suttunga- mjöð, allir sem til heyra hinu viðkvæma kyni skáldanna, lenda fyrr eða síðar í þvargi vegna kvenfólks. En nú eru skáldin hætt að heyja einvígi — í þess stað skrifa þau sögur undir rós. Hver öld hefir sína siði. Iíingað reið Skarphéðinn, hinn hrausti, í flokki með föður sínum, hér fór Snorri Sturluson með vélræði, og enn í dag getur þú séð rústirnar af búð Snorra goða í brekkunni við Almannagjá. Víga-Glúmur og Börkur digri, Þorsteinn þorska- bítur og ÞorgTÍmur nefja, Þorgeir smjörhringur og Mörður gigja — allar þessar fornu söguhetjur hafa gengið hér um Þingvalla- hraun. Og þarna, við eystri vegg Almannagjár, hlýtur hið rétta Ijögberg að hafa verið, en þar sagði lögsögumaður upp lög, dóma og tilkynningar. Og rétt þar í ná- munda var Lögréttan með sæta- hvirfingu sína, en bar áttu sæti 49 goðar og ráðunautar þeirra — 144 stórbændum, margir þeirra höfðu verið víkingar og kvongað- ir írskum konungadætrum. Vestan við Öxará sjást enn rústir af búðum þeim, sem þing- heimur hafðist við í meðan á Al- þingi stóð, hálfsmánaðartíma á hverju ári, í lok júní ogí jújíbyrj-

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.